Dvöl - 01.10.1939, Page 40

Dvöl - 01.10.1939, Page 40
278 D VÖL Anna — frú Baxby Eftir Thomas Hardy Enska skáldið og rithöíundurinn Tlio- mas Hardy var fæddur 1840, dáinn 1928. Skáldsögur hans náðu á sínum tíma — á síðasta tug 19. aldar og fyrsta tug þessarar aldar — afarmikilli hylli og útbreiðslu, meiri en nokkurs annars ensks rithöfundar, og enn í dag er hann mikið lesinn. Hann þykir frábærlega næmur og markviss í sálarlífslýsingum sínum og má nefna þar sem dæmi aðalpersónuna í frægustu bók hans, „Tess of the D’Urbervilles". Þó að hinar stærri skáldsögur hafi valdið mestu um hylli hans og frægð, þá eru smásögur hans þó engu síðri, og hefir seinni tíminn þó einkum lært að meta hinar hárfínu, meitluðu augnabliksmynd- ir, sem í þeim birtast, og þyrfti það engan að undra, þó að þær yrðu löngu skáld- sögunum langlífari. Þessi glettna, nærri þvi boccaccioska smásaga, sem hér birtist, er ef til vill ekki einkennandi dæmi um efnisval Hardy’s, en hún ber eigi að síður handbragði hans vitni í formi og stíl. Það var á tímum hinnar miklu borgarastyrjaldar — ef ég ætti þá ekki heldur, sem trúr og hlýðinn þegn, að kalla hana uppreistina miklu, eins og Clarendon. Það var á þessum ógæfusömu tímum í sögu okkar, að áliðnu hausti árið, sem hersveitir þingsins tóku sér stöðu fyrir framan Shertonkastala, með hátt á fjórða þúsund hermenn og fjórar fallbyssur. Kastalinn var á þessari öld, eins og við vitum öll, í eigu eins Severn-jarlsins, og notaður sem setuliðsstöð fyrir markgreifann, sem stjómaði her- sveitum konungsins á þessum slóð- um. Jarlinn og elzti sonur hans, Baxby lávarður, voru að heiman um þessar mundir, að safna liði fyrir konung. Frú Baxby, kona lá- varðarins, var í kastalanum, þegar umsátursliðið nálgaðist, ásamt þjónustufólki sínu, nokkrum vinum og nánum ættingjum lávarðarins, og vörnin var svo góð og vel skipu- lögð, að þau töldu sér ekki bráða hættu búna. Hersveitir þingsins voru einnig undir lávarðsstjórn — því að aðals- stéttin var, á þessu stigi stríðsins, engan veginn öll á bandi konungs — og menn höfðu veitt því eftir- tekt, á meðan hersveitirnar nálg- uðust kastalann í skjóli náttmyrk- ursins og um morguninn, þegar liðskönnunin fór fram, að hinn göfugi lávarður var mjög hugsjúk- ur. Sannleikurinn var sá, að undar- legir duttlungar örlaganna höfðu hagað því svo, að virki það, sem hann átti að vinna, var heimili systur hans, sem hann hafði elsk- að heitt á meydómsskeiði hennar, og elskaði ennþá, þrátt fyrir fáleika þá, sem leitt höfðu af ó- friðnum við fjölskyldu eiginmanns hennar. Hann trúði því einnig,

x

Dvöl

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.