Dvöl - 01.10.1939, Page 50

Dvöl - 01.10.1939, Page 50
288 D VÖL Skelfiskarnir Eftir Mogens Lorentzen. Gangbrúin út í Finnlandsskipið var dregin skröltandi upp á stein- bryggjuna og hásetarnir voru til- búnir að sleppa landfestunum. Þá kom allt í einu maður út úr einu húsasundinu niður á bryggjuna og öskraði af öllum kröftum. Hann var prýðilega af guði gerður, hár, þrekinn, ljósrauður yfirlitum og vel búinn. Stórir, þreknir menn njóta sérstakra réttinda, eins og kunnugt er. Gangbrúin var í snatri sett niður aftur, allir stóðu kyrrir og biðu, meðan maðurinn mjakað- ist um borð í virðulegri ró, og þegar hann var kominn á skipsfjöl, hvarf hann samstundis niður í káetuna. En „Döbelen“ fór í boga fram hjá Katrínarlyftunni og hélt af stað út í skerjagarðinn fram undan Stokkhólmi. Það var heiðskírt vorkvöld yfir borginni, sumarbústöðunum, korn- hlöðunum og greniklæddu hólm- unum, þar sem ljósin blikuðu í litlu, hvítu vitaturnunum, meðan rökkrið var að síga yfir. Sjórinn var rólegur og rann saman við himininn, og vélin knúði skipið áfram um þetta ríki norrænnar fegurðar. Það varð ekki of kalt á þilfarinu, fyrr en langt var liðið á kvöld. Þrekni maðurinn sat klofvega yfir miðjan legubekkinn í káet- unni, þegar ég kom niður. Ég var Stormurinn fellir hin feysknu tré, fjörgar og hressir, þótt kaldur sé. — Syngjum snœinn í sveitir, syngjum brimið að strönd. — Fögnum árstíðum öllum vel, uppstyttir sérhvern byl og él. Ljúfast er vor eftir vetur, vitur, sá jafnt þau metur. Syngjum vor og sumar, vetur og haust velkomin jörðunni endalaust.

x

Dvöl

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.