Dvöl - 01.10.1939, Page 71

Dvöl - 01.10.1939, Page 71
D VÖL að gaula. Hann virtist biða þess með eftirvæntingu, svo að hann gæti fyrir alvöru látið til sín taka. En við höfðum, hvað sem öðru leið, borgarana, sem sátu í kringum okkur, á okkar bandi. Stúdentar voru í hærra gengi þá en nú. Og allt í einu stóð maður nokkur upp frá borði sínu og kom til okkar. — Mundu herrarnir ekki vilja syngja einn glunta? Hvort við vildum! Ernst Konjak og Nisse Prillén voru snillingar á því sviði. Þeir byrjuðu samstundis: „Hár ár gudagott att vara!“ Veitingamaðurinn kom eins og skot. — Hér má ekki gaula! Ef einn tónn heyrist frá herrunum í við- bót, verður herrunum kastað út! Þeir hættu auðvitað. En frá hin- um gestunum heyrðist óánægju- muldur. Við urðum daufir í dálkinn. En við fengum meira púns og gleymd- um brátt hinu drungalega and- rúmslofti. Veitingamaðurinn hélt áfram að ganga um gólf í göngun- um og leit út eins og óargadýr í veiðihug. En Jóhann Ágúst og Karl Frið- rik lutu höfðum saman og bolla- lögðu eitthvað í hálfum hljóðum. Svo sagði Jóhann Ágúst: — Heyrðu, Albert, hér hefirðu peninga. Farðu til stúlkunnar þarna fyrir innan og borgaðu alla veizluna, kauptu síð- an nokkrar „heilar“ og farðu og 309 stingdu þeim í frakkavasa okkar. Því að innan fárra mínútna verð- um við af fara! Ég gerði eins og fyrir mig var lagt og gekk síðan aftur til sætis mins. Jóhann Ágúst og Karl Friðrik stóðu upp og gengu að dyrum gangnanna og endurguldu fólsku- legt augnaráð veitingamannsins með góðlátlegu glotti. Hann sneri alveg við og hélt áfram að ganga um gólf. En þegar hann var nærri kominn að þeim enda gangnanna, sem fjær okkur var, þrifu þeir báðir í einu í gólfdregilinn og kipptu í. Veitingamaðurinn valt um koll. Með eldingarhraða þutu þeir til og köstuðu sér yfir hann, náðu í gólfdregilinn og veltu karli, þrátt fyrir hávær mótmæli, innan í honum eins langt og dregillinn náði, að þröskuldi veitingahússins. Að svo búnu reistu þeir strangann, með veitingamanninum í, upp við vegginn og hrópuðu: — Nú förum við, piltar! Hinni djúpu þögn, sem ríkti í veitingasalnum, og hinum óstjórn- lega hlátri, er fór á eftir þessari þögn og hljómaði í eyrum okkar, þegar við stikuðum út á götuna, mun ég aldrei gleyma. Við gengum til næsta þorps. Því að bæjarleiðirnar eru stuttar á þeim slóðum. L. Har. þýddi. Engström, vinsælasti skopsagnahöfund- ur Svía, varð 70 ára 12. maí sl. Hann er kunnur lesendum Dvalar m. a. af ferða- söguþáttunum, er birtust í 1. árg. ritsins.

x

Dvöl

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.