Dvöl - 01.10.1939, Page 73

Dvöl - 01.10.1939, Page 73
D VOL 311 skíðakappi, sem er gestur íslenzkra skíðamanna, opni svigtarautina og sé að leggja af stað. „Ef hann dytti nú,“ segir illkvittnisleg rödd i hópn- um. En þegar hann tekur fyrstu beygjuna, er öllum ljóst, að hann dettur ekki. Það er eins og hann líði sjálfkrafa gegnum brautina, viss og öruggur, eins og maður, sem gengur á sléttum vegi. Nú fer hann erfiðustu beygjuna. Var þetta virkilega svona auðvelt? Svo koma keppendurnir hver af öðrum. Þeir ýmist standa eða falla. Brautin er víst ekki svo auðveld. Tvær um- ferðir og keppninni er lokið. En þessi krókótta, einkennilega braut freistar áhorfendanna. Marg- ir þeirra spenna nú á sig skíðin og fara að prófa, hvernig þeim mundi hafa gengið í keppninni. Engar töl- ur eru birtar frá þeirra keppni. Hinn erlendi skíðakappi tekur skíð- in sín og heldur upp á brautarenda. Ef til vill ætlar hann nú að skemmta sjálfum sér, án þess að þurfa að vera eingöngu til sýnis. En nú gerist dálítið atvik, sem verður þeim ógleymanlegt, er sjá það. Þegar hann kemur fyrir leiti, er nýdottinn maður á brautinni. Brautin er svo mjó, að hann hlýtur að fara yfir manninn. Nei, eld- snöggt hefir hann beygt, en nú rennur hann líka beint út í grjótið. En hvað er þetta? Fyrr en varir er hann kominn niður í snjóskafl langt niðri í brekku, án þess að koma við jörð á auða beltinu. Það er hvorki tími til að æpa af hræðslu né aðdáun, en mönnum skilst, að þeir hafa séð eitthvað stórfeng- legt. Þetta er list. II Það hallar degi. Hópurinn tvístr- ast. Bílarnir fara til byggða með syngjandi skíðamenn. Aðrir eru fram á nótt að renna sér í brekk- unum. Mánaskinið slær töfrabirtu á snjóinn og „öllu voru landi lýsa langeldar, sem nóttin kyndir.“ Nú er ekki erfitt að hugsa sér huldu- fólk í hverjum hól, ekki þetta hefnigjarna og geðilla, sem ekki þolir hávaðaleika æskunnar, held- ur vingjarnlega og káta álfa, sem koma í leik með litlu börnunum og glettast lítilsháttar við fullorðna fólkið. Það er hörmulegt að þurfa nokkurn tíma að hætta, en nú er meira en mál að halda heim í skála. Við skulum halda inn í einn af þeim, sem ekki hefir á sér gisti- hússnið. Hér komum við inn í stór- an sal, nærri þéttskipaðan af fólki. Framan úr eldhúsi leggur ilminn af kaffi, súpu og allskyns mat. „Allra þefja blessuð blanda“, sem er svo aðlaðandi fyrir svangan mann. Annars snæða menn hér mest úr bakpokum og nota alla hugsanlega borðsiði. Bráðlega hafa allir svalað hungri og þorsta og nú byrjar kvöld- skemmtun. Úti í horni sitja tveir þingmenn og ræða vandamál þjóð- félagsins í hljóði og af slíkri al- vöru, að allir fara ósjálfrátt að líta til þeirra með lotningu, en glaum-

x

Dvöl

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.