Dvöl - 01.10.1939, Side 78

Dvöl - 01.10.1939, Side 78
316 syngja þar, af því að þar voru engin börn, og trén gleymdu að blómgast. Einu sinni teygði fagurt blóm kollinn upp úr grasinu, en þegar það sá auglýsingaspjaldið, kenndi það í brjósti um börnin, hné í skaut jarðarinnar og féll í svefn. Þeir einu, sem voru ánægðir, voru Snjórinn og Kuldinn. „Vorið hefir gleymt garðinum," kölluðu þeir, „svo viö getum búið hér allt árið.“ Snjórinn þakti grasið stór- um, hvítum hjúpi og Kuldinn prýddi trén silfri. Síðan buðu þeir Norðanvindinum heim, til þess að dvelja hjá þeim, og hann kom. Hann var dúðaður í loðfeld, og hann buldi allan daginn í garðin- um. „Þetta er unaðslegur staður,“ sagði hann, „við ættum að bjóða Haglbylnum heim.“ Haglbylurinn kom. Þrjár klukkustundir á hverj- um degi dundi haglið á þaki kast- alans, unz það hafði brotið flestar þakhellurnar. Síðan þaut hann aftur og fram um garðinn, eins hratt og hann gat. Hann var grá- klæddur og andardráttur hans kaldur sem ís. „Ég get ekki skilið, hvers vegna Vorið kemur svona seint,“ sagði Risinn eigingjarni, þar sem hann sat við gluggann og horfði út í hvíta og kalda garðinn sinn; „ég vildi óska, að veðrið færi að breyt- ast.“ En Vorið kom aldrei og ekki Sumarið heldur. Haustið gaf sín gullnu aldini hvarvetna, nema í garði Risans. „Hann er of eigin- D VÖL gjarn,“ sagði það. Þannig hélzt alltaf vetur í þessum garði. Og Norðanvindurinn, Haglbylurinn, Kuldinn og Snjórinn hoppuðu og léku sér milli trjánna. Morgun einn, þegar Risinn lá vakandi í rúmi sínu, heyrði hann unaðslegan söng. Hann lét svo ljúft í eyra, að Risinn hélt, að söngsnillingur konungsins væri að koma. En í raun og veru var það dálítil línerla, sem söng úti fyrir glugganum hans, og þar sem svo langt var liðið, síðan hann hafði heyrt fugl syngja í garðinum sín- um, fannst honum þetta vera feg- ursti söngur í veröldinni. Þá hætti Haglbylurinn að þjóta yfir höfði hans, Norðanvindurinn hætti að drynja og Ijúffengur ilmur barst að vitum hans inn um opinn glugg- ann. „Loksins held ég, að vorið sé komið,“ sagði Risinn; og hann stökk fram úr rúminu og leit út. Hvað sá hann? Hann sá dásamlega sýn. Gegn- um lítið gat á múrveggnum höfðu börnin smogið inn í garðinn, og nú sátu þau á greinum trjánna. Á hverju einasta tré, sem hann sá, var lítið barn. Og trén voru svo glöð yfir því, að börnin skyldu vera komin aftur, að þau höfðu öll klæðzt blómum og veifuðu grein- unum vingjarnlega yfir höfðum barnanna. Fuglarnir flögruðu til og frá og sungu af einskærum fögnuði. Blómin gægðust brosandi upp úr grænu grasinu. Þetta var dásamleg sjón; aðeins í einu horni

x

Dvöl

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.