Dvöl - 01.01.1942, Síða 17

Dvöl - 01.01.1942, Síða 17
DVÖL 11 hvaða stétt þjóðfélagsins, sem hann skipar. Hann ber á sér að- alsmerki mannsandans. Þegar ég var barn, hélt ég, að sorgir og mótlæti væri algerlega tengt gamla fólkinu, en gleðin væri heitin æskunni og hennar trúr förunautur. Brátt lærðist mér þó sá vísdómur, að æskan ber líka sorgir í skauti sínu, og þá skildi ég það líka, að gleðin, hin sanna lífsgleði, var oft trúr förunautur gamla fólksins. Þá hélt ég líka, að sorgin væri hefndargjöf, og bezt væri sorglaust líf. Ég veit ekki, hvort öllum er eins farið og mér, en ég þykist hafa skilið það æ betur, að sorgin er dögg lífs- ins. Margar æskuminninear frá sorgarstundum eru mér nú hug- þekkar, og mörg þau atvik, er þá virtust valda ólæknandi sárum, eru nú sem ánægjulegur áfangi á þroskabraut minni. Margur kvíðir ellidögunum og saknar æskualdurs og mann- dómsára, en sá, sem hefir öðlazt skilning á eðli sorgarinnar og iært að temia sér hóf í gleðinni, barf víst ekkert að óttast. Danskur málsháttur segir, að sérhvert ald- ursskeið mannsins eivi sína feg- urð. í þessum málshætti felst sann- leikur. Fegurð manns fer ekki ein- göngu eftir árum heldur þeim rúnum, sem lífsreynslan hefir rist á andlitið. •— Ég hefi séð ung and- lít 1 j ó t af lastasvip og lausung, og ég hefi séð ellihrukkótt andlit f ö g u r, þar sem rúnir lífsins spegluðu lífsgleði og göfgi undir gráum hærum. Nú heldur ef til vill einhver, að ég vilji boða þá kenningu, að lífið sé eftirsóknarverðast í sorgum og andstreymi. Slíkt er fjarri mér. En ég vil vekja athygli á því, að sorgin er eins konar systir gleðinnar. Þær eru jafn ættgöfg- ar. Bæði gleðin og sorgin rista sín- ar rúnir í sál mannsins og andlit. Sorgin ristir rúnir sínar skýrt, og rúnir hennar mást ekki út, en vel geta þær verið fagrar. Gleðin rist- ir líka sínar rúnir, en grynnra, og rúnir sorgarinnar geta hæglega afmáð þær. Bjart er yfir hinum glaða manni, en sjaldan speglast göfgi og festa í svip hans, nema sorgin eigi þar líka sína drætti. Sá, sem vill halda lifsfjöri sínu, má ekki dekra við sorgina og mótlætið og leyfa því að beygja sig, heldur skal hann mæta sorg- inni með karlmennsku eins og Ól- afur í Svefneyjum og láta hana frjóvga gáfu sina og veita sér auk- inn lífsþroska eins og Egill og Matthías. Hverjum manni, sem er þess um- kominn að mæta sorgum með svip- uðum manndómi og kjarki og þessi mikilmenni, mun snúast harmur í gleði. Lífið eykst þá að gildi, eftir því sem árin færast yfir. Þá þarf ekki að kvíða ellidögunum eða iíta á efri árin eins og skuggatilvist eftir heiðríkju æskunnar og um- svif manndómsáranna. Þá er vel lifað, er svo er lifað.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Dvöl

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.