Dvöl - 01.01.1942, Síða 40

Dvöl - 01.01.1942, Síða 40
34 D VÖL steinninn er orðinn mosavaxinn. En sá, sem deyr á ísbreiðum Vatnajökuls, verður í minnum hafður. í heilan vetur talaði Þorgrimur sífellt um ferðalagið. Um vorið, þegar grös fóru að gróa, hestarnir að fitna og skógarkj arrið að líkj- ast kornakri, fannirnar hurfu og dalirnir leystust úr álögum vetr- arins, bjó hann allt undir þessa langþráðu för. „Snækollur er átta vetra,“ sagði Þorgrímur,“ og upp á sitt bezta, hraustur og sterkur. Sjálfur er ég þrítugur, og ef við getum ekki sannað það nú, að við séum af góðu, íslenzku bergi brotnir, þá getum við það aldrei. Aldurinn mun gera okkur báða lata og framtakslausa, og menn munu segja, að ef við hefðum lifað meðal fornkappanna, hefði verið lítið gagn í Snækolli til hestaata, og ég hefði verið látinn sitja inni og spinna með konum, í stað þess að fara í víkingu með Víga-Glúmi, Haraldi hárfagra, Askaspilli, Ás- grími og öðrum frægum köppum.“ Konu Þorgríms fannst þetta kjánalegt, en dáðist þó að honum öðrum þræði. Hana grunaði þó, að Þorgrímur hefði, við lestur forn- sagnanna, komizt á snoðir um fal- inn fjársjóð frá fornöld, sem lægi einhvers staðar grafinn, því að hún gat ekki hugsað sér, að mað- urinn vildi hætta lífi sínu að á- stæðulausu. Hún skildi það ekki, að lífið er lítils virði án hugsjóna. Ef til vill var hún líka hálf fegin því, að Þorgrímur færi, því að vegna grúsks síns, lesturs, flæk- ings og rannsóknarferða, þótti hann heldur óskemmtilegur hús- bóndi. En Þorgrímur tók ekkert tillit til skoðana hennar. Ef til vill vissi hann ekki um þær. Hann gerði við hnakkinn sinn, bjó til tauma úr selskinni, sex feta langa og mjög sterka, fléttaði hrosshárs- reipi og ný höft, saumaði sér nýja selskinnsskó og tók til nesti, saltfisk og rúgbrauð. Fréttir berast fljótt á íslandi, eins og í Arabíu og á sléttunum í Rússlandi og Patagóníu, þar sem engin dagblöð eru. Umrenningar, sem stundum eru hálfgerðir bján- ar, flytja þar fréttir svo fljótt, að ekki sýnist, að þar sé þörf talsíma eða ritsíma. Það, sem gerist í einum landshluta í dag, hefir frétzt í margra mílna fjarlægð á morgun, álíka mikið rangfært og aðstoðar dagblaða hefði notið við. Vegna þess að áform Þorgríms hafði frétzt um alla Rangárvelli og allt Suðurland, kom fólk víðs- vegar að til þess að heimsækja hann. Tíminn er dýrmætur á ís- landi, eða að minnsta kosti álíta menn að svo sé, og þess vegna eyða þeir honum eins og þeim bezt lík- ar og þykir skemmtilegast og skrafa endalaust um ekki neitt. Þó geta íslendingar stundum verið iðnir eins og bifrar. Þenna dag hafði fjöldi fólks safnazt saman
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Dvöl

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.