Dvöl - 01.01.1942, Side 45

Dvöl - 01.01.1942, Side 45
dvöl 39 *nig hvítan hauk, sem kom fljúg- andi með sólina og tunglið í klón- um og settist á úlnliðinn á mér. Ég sagði við menn mína: „Þetta er heillaboði.“ Nú hitti ég ykkur hér, feðgana. Þessi sonur þinn mun giftudrjúgur. Við höfum aldrei deilt um lönd eða vatns- ból. Margar ungar stúlkur úr minni ætt hafa verið gefnar frændum þínum og orðið höfð- ingjakonur þeirra á meðal. Þá er vel stofnað til hjúskaþar, er brúð- guminn hefir auð og völd, en brúð- urin fegurð. Bróðir! Ég á unga dóttur heima. Viltu sjá, hversu fögur hún er?“ Síðan voru kaupin gerð, og drengurinn varð eftir í fóstri hjá gamla manninum. Á heimleiðinni réðust erfða- f.iendur Jesúasjeis, Tartarar, á hann og særðu hann til ólífis. Djengis varð að hverfa hið skjót- asta heim til ættflokks síns. Jesúasjei hafði aldrei verið frækinn vígamaður, og eftir dauða hans brugðu flestir, sem þó höfðu taiizt fylgismenn hans, trúnaði við mtt hans, og Djengis Kan. móðir hans, fóstra og þrír bræður hrökkl- uðust brott, úr tjaldbúðum sínum og urðu sjálf að sjá sér farborða úti á sléttunni. Á sléttunni er stfeild umbreyt- ing. Gamlir ættflokkar hverfa úr sögunni og nýir myndast. Djengis Kan komst að raun um, að fáein- ir gamlir vinir föður hans báru nokkurt traust til hans og vildu hlíta forsjá hins útlæga höfðingja- sonar.Og smám saman efldist hann að vinum og bandamönnum. Móð- ir hans hvatti hann mjög til að hefna þess ranglætis, er þau höfðu verið beitt. Fyrr en varði rann UPP sá dagur, að hann fór í hern- að með sveit sína. Hann kom aft- ur með mikla hjörð fénaðar, er hann hafði rænt frá óvinum sín- um. Nú flykktust ungir og ævintýra- gjarnir menn, sem þótti höfðingj- ar sínir athafnalitlir og væru- kærir, til Djengis Kans og gengu í sveit með honum. Þótti honum brátt tími til þess kominn að end- urnýja kaup þau, er faðir hans hafði gert við Setsén gamla. Gamli maðurinn fagnaði hin- um unga höfðingja vel, leiddi Mor- tei dóttur sína út úr tjaldi sínu og lagði röggvarfeld við fætur tengdasonar síns. Það var heiman- mundurinn. „Á fölum himni blika stjörnur líkt og tár, sem gömlum föður hrynja af augum, þegar dóttir hans hverfur brott úr tjaldi hans,“ sagði hann með skáldlegum fjálgleik. Djengis Kan safnaði nú að sér meira liði. En sá maður, er hon- um þótti mestur styrkur að, var Togral, sem var voldugur höfðingi og áhrifamikill, bæði í Mongólíu og Kína. Faðir Djengis Kans hafði endur fyrir löngu bundizt vináttu við hann. Þessum manni færði hann röggvarfeldinn góða að gjöf. Togral hafði haft fregnir af sigr- um hins unga manns og þótti góð vinátta hans. Hann hét honum því liðveizlu sinni, ef til þyrfti að taka. Sérhver höfðingi á sléttunni, hversu voldugur sem hann er, get- ur átt von á næturárás óvina og ræningja. Nótt eina vöknuðu menn Djengis Kans við það, að óvinaher réðist að náttbóli þeirra. Eftir harðan bardaga varð hinn ungi ættarhöfðingi að leggja á flótta. Margir komust á hestbak, sumir földu sig í tjöldunum eða hlupu út í náttmyrkrið og nokkr-

x

Dvöl

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.