Dvöl - 01.01.1942, Side 47

Dvöl - 01.01.1942, Side 47
DVÖL 41 sjá, er loks dró Djengis upp frið- arfána og sendi menn með frið- mæli á fund Tograls og minnti hann á forna vináttu. En sonur Tograls óttaðist, að þeir frændur fengju ekki staðizt gegn gæfu Djengis, ef vald hans væri ekki þegar brotið á bak aftur. Bersýni- lega þættist hann sjálfur vanbú- inn. Togral hafnaði því friðarboð- unum fyrir áeggjan sonar síns. Djengis Kan varð æfur, þegar hann fékk þetta s,rar. Hann tefldi fram öllum her sínum, hundrað þúsund mönnum, og réðist á To- gral og lið hans. Orrustan stóð í þrjá daea, og áttatíu þúsund hermenn féllu eða særðust. Djeng- is vann frægan sigur og gerðist einráður um gervalla Mongólíu, er aldrei áður hafði -alið neinn þann mann, er verðskuldaði að bera neitt það tignarnafn, er nálgast gat konungsheiti. Það fólk, sem hvergi átti sér hæli eða bústað, heldur flæktist úr einum bithaga í annan eftir næturdvöl, var að verða ein frægasta sigurblóð ver- aldarsögunnar. Enginn fékk rönd við reist, þegar mongólsku her- mennirnir æddu fram. Merkítar, móðurfrændur Dieng- is Kans, urðu næst fyrir barðinu á honum. Er vörn þeirra þra.ut. var enginn þjóðflokkur, sem ekki lyti valdi hans, allt sunnan frá Kína- múrnum mikla norður að Altai- f j allgarði. Djengis Kan var nú orðinn fimmtugur að aldri. Hann hafði borið sigur af fjölmörgum þjóð- um. Öllum ægði vald hans og riki. En valdalöngun hans var síður en svo fullnægt. Hann var skapofsa- maður mikill, og þegar hann eltist, íékk hann oft flogaveikisköst. En er af honum bráði eftir slík köst, hafði hann jafnan á prjón- unum nýjar ráðagerðir um hern- að og landvinninga. Hann var og hjátrúarfullur og lét jafnan brenna ókjörum af herðablöðum úr kind- um í herbúðum sínum. Sat hann löngum við eldana, meðan herða- blöðin brunnu, og ákallaði her- guði sína. Þegar allar varnir voru þrotnar í Mongólíu, sneri hann her sínum suður í Kína. Ástæðan til þess var í senn hagfræðileg þörf og óseðj- andi landvinningahugur. Kína laut um þessar mundir valdi tveggja ætta. f Norður-Kína ríktu útlend- ir menn, Kin-ættin, og lögðu þunga skatta á óánægðan lands- lýðinn og skeyttu lítt um heilbrigða stiórnarhætti. í Suður-Kína var þá Tanerut-ríkið við líði. bar sem Sung-ættin ríkti og Búddhatrú- armenn áttu sitt höfuðvígi. Voru í- búum norðurríkisins torveldaðar allar samgöngur suður á bóginn. Land það. sem nú er nefnt Turke- stan, og hluti af Persíu. var þá vold- ugt ríki. en konungur þess var lítt vinveittur Kínverjum, svo að þeim var hætt.a búin bæði heima fyrir og erlendis. Þegar Djengis barst fregn um. að keisarinn í Peking væri látinn, þótti honum langþráð tækifæri gefast. Nýi keisarinn taldi sig fast- an 1 sessi og bauð Mongólum að fiölmenna til krýningar sinnar í Peking eins og tíðkanlegt hafði verið. Og til Peking komu þeir, bótt ekki væri sú ferð farin til bess að hvlla keisarann. Áður en Pekinastiórnin uggði að sér voru Mongólar komnir með her mikinn inn í landið. Hafði vígbúnaður þeirra verið svo ákafur, að jafn- vel konur unnu að vopnasmíði. Var hverri konu boðið að smíða á-

x

Dvöl

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.