Dvöl - 01.01.1942, Síða 64

Dvöl - 01.01.1942, Síða 64
58 DVÖL Bróðnrleit Eftir Pilr Lngerkvist Hclgi Sæmundsson þýddi T BORG NOKKURRI áttu bræð- A ur tveir heima. Hinn eldri þeirra hét Mikael, en hinn yngri Stefán. Faðir þeirra hafði verið mjög framtakssamur og dugandi maður. Bræðurnir höfðu hlotið í arf eftir hann smiðju, er þeir ráku í félagi. Smiðjan stóð í út- jaðri borgarinnar rétt við veginn, sem lá út í sveitina. Veggir henn- ar, pem upphaflega höfðu verið hvítkalkaðir, voru nú svartir af sóti. Gluggarnir voru litlir og þaktir köngullóavefum. Það var myrkt inni þar og lágt til lofts. Steðjinn stóð á miðju gólfi. Kol aflsins brunnu í varmri glóð. Belgurinn hófst og hneig með stunum og gný. Þetta var gömul smiðja. Völlurinn umhverfis hana var troðinn og gróðurlaus. Bræðurnir bjuggu í fornfálegu húsi hinum megin vegarins. Móð- ir þeirra bjó hjá þeim. Hún mat- reiddi handa þeim og bjó um rekkjur þeirra. Þegar bræðurnir yoru að vinnu sinni í húmi smiðjunnar, virtist sem þeir væru ein sál í tveim lík- ömum. En kæmu þeir út í dags- birtuna, sást hversu gerólíkir þeir voru. Báðum óx þeim skegg, sem þó gat eigi dulið hinn mikla mun andlita þeirra. Andlitsdrættir eldra bróðúrins voru djúpir og festulegir. Varir hans voru þunn- ar, og augnaráðið bar vott um al- vöru og greind. Yngri bróðirinn var aftur á móti draumlyndur og við- kvæmur. Óljós þrá lá falin í aug- um hans. Munur þeirra bræðra hafði eigi birzt með áberandi hætti, meðan faðir þeirra var á lifi. Hann gat látið alla lúta vilja sínum. Hann var líka heilbrigt mikilmenni. En kvöld nokkurt, þegar hann stóð við steðjann og rauður bjarminn frá glóð aflsins lék um glugga, hneig hann örendur til jarðar. Aðeins örfá augnablik voru iiðin, síðan sleggja hans hafði mótað stálið. Bræðurnir báru hann út úr lág- reistri smiðjunni, þar sem hann hafði unnið ævistarf sitt, yfir veginn og inn í húsið hinum meg- in. Þeir klæddu hann úr vinnu- fötunum og þvoðu sótið af lík- ama hans. Síðan færðu beir hann 1 mjallhvítan búning. Útförin fór fram skömmu síðar. En eftir að faðirinn var látinn, tók munur þeirra bræðra brátt að birtast. Mikael kvað það vilja sinn, að þessi fornfálega og þrönga smiðja yrði rifin og önnur stærri
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Dvöl

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.