Dvöl - 01.01.1942, Side 81

Dvöl - 01.01.1942, Side 81
D VÖL 75 fegurri, öllu átakanlegri, öllu áhrifarík- ari lýsingu á andvöku mikils skálds, er lifir lífi sinu i tveim heimum: Heimi starfs og anna og ríki listarinnar. í þessari bók eru mörg fleiri fögur kvæði og hugstæð. Ég get ekki stillt mig um að nefna kvæðið um andlát Jóns frá Hlíð, „Ekki má ek blóð sjá“, „Bogmenn", undurljúft kvæði um bernskudaga skálds- ins, er hann var með öðrum börnum til spurninga í Reykholti, „Dauðsmanns- kvísl“ og þó ef til vill umfram allt „Lyng- heiðin rauð“. Snautt er það hjarta, sem ekki hrífst af þessum erindum: Lyngbrekku ljóði andar angan-megn ómvana þeyr um grænar hlíðarrætur. Sólskinin fjöllin ilma eftir regn, upprisin sæl úr faðmi djúprar nætur. Blágullnar hæðir baðast ljósi og yl. Blessaða líf, sem við mér hlær og grætur! Lyng, lyng og aftur lyng um drag og gil, lifandi feldur vefst um mína fætur. Lynghríslan smá við kleif og klettaþil, kyrrlát við sól og átök frosts og snjóa, — hvaðan ert þú, og hvers vegna ertu til? hvert er það afl, sem knýr þig til að gróa? Systir mín ung, sem ert svo hugstæð mér, alin á rústum löngu dauðra skóga, — hvaðan er ég, og hvers vegna er ég hér? hvers vegna er ég að yrkja í þínum móa? Andvörp hins liðna að eyrum mínum ber, ókomnir dagar birtast sjónum mínum. Ráðgáta heilla heima felst í þér, hvísla þú að mér leyndardómi þínum. Freistast ekki einhver til þess að bregða fyrir sig orðum skáldsins sjálfs og spyrja þenna „sjálfboðaliða í söngvum á fátæk- um stað“: „Hver kenndi yður þvílíka list?“ Að formi kvæða hefir ein breyting orð- ið á um skáldskap Guðmundar frá því fyrri bækur hans komu út: Hann er hætt- ur að yrkja rímlaus kvæði. Að sjálfsögðu getur slíkur skáldskapur verið stórbrotinn og snjall. En fáum íslendingum mun þó verulega hugarhaldin þau kvæði, sem ekki uppfylla venjulegar kröfur um höfuðstafi og rím. Og illa væri farið, ef beztu skáld þjóðarinnar hættu að skeyta um slíkt. Ég gleðst þess vegna yfir, að Guðmund- ur Böðvarsson hefir horfið frá þvi að yrkja rímlaus kvæði, þótt ýms góð kvæði séu með því sniði 1 fyrri bókum hans. Ég vék að því hér að framan, er Goethe sagði um þarfir mikilla skálda til full- nægingar anda sínum. Guðmundur Böðv- arsson er á unga aldri orðinn glæsilegt skáld, mitt í búskaparönnum uppi í Hvít- ársíðu, þar sem tónlist er sjaldheyrð nema sú, er „söngvarar kjarrs og kræklóttra greina" iðka, og fá listaverk að skoða, nema þau, sem gert hafa guð og eldur. En væri samt úr vegi fyrir nokkra fjáða menn, sem unna íslenzkri list og Ijóðum Guðmundar, að taka höndum saman og gera honum kleift að hverfa um nokkurra mánaða skeið frá búi og búsáhyggjum, þegar átökum heimsveldanna linnir, til ríkari landa og suðrænni og eiga þar þægi- lega stundardvöl? Hversu mörg gullfögur kvæði mundi ís- lendingum gefin þær vikur? Fyrir fáum árum lagði Reykjavíkurbær Tómasi Guðmundssyni fé til utanfarar. Ef til vill mundi sýslunefndum Mýra- manna og Borgfirðinga þykja sómi að fylgja því fordæmi og eiga hlut að utan- för Guðmundar Böðvarssonar. J. H. Stefan Zweig: María Stúart. Magnús Magnússon þýddi. Reykjavík. ísafoldarprent- smiðja 1941. Um svipað leyti og hið útlæga austur- ríkska skáld, Stefan Zweig, réð sér bana fjarri ættjörðu sinni, kom í íslenzkar bókabúðir í íslenzkri þýðingu eitt meira

x

Dvöl

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.