Hlín - 01.01.1955, Qupperneq 149
Hlin
147
efna til sýningar á þeirri handavinnu, sem þær gerðu í frístund-
um sínum frá heimilisstörfunum. — Jeg færði þetta í tal við þær
í haust eð var, og þær tóku bara vel í þetta. — Mjer bárust 140
munir frá 34 konum og einum karlmanni, og var þetta til sýnis
hjer í Barnaskólanum í júlímánuði i sumar. — Þetta þótti takast
Ijómandi vel og sýningin var vel sótt. — Bara að þú hefðir verið
komin, góða mín!
Þarna var saumaskapur af fjölmörgu tagi, prjón og hekl. — Það
voru veggteppi og gólfteppi, drengjaföt og telpuupphlutir, jafn-
vel peysuföt og möttull. — Jeg vona að þetta hafi haft þau áhrif,
að það leggist ekki niður. — Þarna eru margar áhugasamar kon-
ur í þessu efni og prýðilega myndarlegar.
Myndasmiðurinn á staðnum tók margar myndir af sýningunni,
þær sendi jeg þjer með kærri kveðju. Einarína Guðmundsdóttir*)
Úr Húnavatnssýslu er skrifað: — Hjeðan er fátt sjerstakt að
frjetta, nema fremur örðugt árferði til lands og sjávar. Þó er all-
góð spretta á þeim túnum, sem eru vel hirt, en engjaspretta rýr,
og garðávexti litur hálf illa út með. — Við verðum að lifa aftur
á gömlu Islendings-seiglunni, sem svo oft hefur orðið að grípa til
áður.
Við leitum oft yfir skamt. Jófríður Kristjánsdóttir, Furubrekku,
Snæf., skrifar: — Þessi orð koma oft í huga minn, þegar verið er
að tala um að fara í skemtiferð. — Kvenfjelagið okkar heitir
„Sigurvon". Við höfum farið nokkrar skemtiferðir og gefist vel
að. — Þó hugsa jeg að við höfum oft leitað langt yfir skamt. —
Flestar sveitir eiga marga dásamlega fagra staði, sem gaman er að
skoða í næði, en það er eins og þeim sje minni gaumur gefinn, af
því sennilega, að þeir eru nær okkur. — Sveitinni okkar hjer eru
gefin mörg fegurðarskilyrði, og margan blettinn höfum við ekki
skoðað sem vert er. Svo mun vera um fleiri sveitir.
Kvenfjelögin eru oft fremur fátæk og kortur margar aurafáar.
'— Við verðum að taka að okkur hendur með að veita okkur löng
skemtiferðalög, þau eru dýr. —— Okkur myndi mikið yndi að því
að fara smátúra um okkar eigin sveitir og næstu sveitir til að
skoða fagra bletti, sem sveitirnar okkar eiga. — Ekki svo að
skilja, að jeg haldi á móti skemti-langferðalögum, síður en svo, en
jeg held að við gerum of lítið að þvi að skoða það sem nær okkur
er og kostnaðarminna.
*) Einarína hefur verið kennari við Barnaskóla Eskifjarðar ár-
um saman. — Hún hefur kent handavinnu í skólanum og hlotið
lof fyrir. — Ritstj.
10*