Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.06.2005, Blaðsíða 3

Bjarmi - 01.06.2005, Blaðsíða 3
Efnisyfirlit 4 Trúarsannfæring og umburðarlyndi SigurBur Pálsson fjallar um notkun og misnotkun hugtaksins umburBar- lyndi þegar kemur aB trúarsann- færingu manna. g Bænabandið Halldór Reynisson kynnir hvernig bænabandiB getur hvatt og stutt okkur í bænalífinu. Svar af vetsíBunni Christian Answers um þaB hvort dýrin hafi öll komist í örkina. 1 Með Drottin sérvið hlið Hanna Þórey GuBmundsdóttir ræöir viö Katrínu Asgrimsdóttur um gróBur, trú, kristniboösáhuga og stjórnmál. 18Að veita viðnám í tilefni þess aö 60 ár eru frá lokum síöari heimsstyrjaldarinnar skrifar Henning Emil Magnússon um þýska guBfræöinginn Dietrich Bonhoeffer og andmæli hans viB stefnu nasista. 24Vinur minn Job Elísbet Haraldsdóttir hugleiöir lif og þjáningu Jobs og hvaö viö getum lært af honum. 27Umræðanum Biblíunaog samkynhneigð Haraldur Jóhannsson veltir því fyrir sér hvers vegna umræðan veröur svo oft erfiö. 30Andaglas Ragnar Snær Karlsson lýsir þeim hættum sem fylgja þvi að leika sér meö andaglas. 32Vangavýltur um bibliuþyðmgar Kristinn Ólason veltir fyrir sér ýmsu sem snýr aö bibliuþýðingum, mismu- nandi aöferöum, markmiðum þýöen- da og fræöimennsku í þvi sambandi. 36Kjúklingar, Kristur, ast og frimerki Jóhanna Sesselja Erludóttir hitti Jarle Reiersen og ræddi viö hann um trú og ást, kjúklinga, frimerki og fleira. 42Guð er skaparinn! Ólafur Jóhannsson fjallar um 1. grein trúarjátningarinnar þar sem viö játum trúna á Guö skapara. 46 Þróu na rken n i ngi n Ragnar Gunnarsson gerir grein fyrir deilum og umræöum um þróun og sköpun og hvort annaö útiloki hitt. Auk þess: Styttri greinar, frásaga, ævintýri og Ijóö. Utrás og siðfræði Utrás er í tísku, hvort sem um er að ræða orðið sjálft eða veru- leikann sem það lýsir. Það er ekki svo að útrás sé ný sem slík, en vissulega eru hér á landi nýir tímar. Fyrir- tæki sækja út í heim, hvort sem um er að ræða kaup á fyrirtækjum í Evrópu eða fót- festu og undirbúning slíks i Asíu. Allt hljóm- ar þetta vel, því íslendingar eru að græða. En þar er einmitt hættan. Markaðs- hyggjan á auðvelt með að fá yfirhöndina. Þegar æðsta markmiðið felst í því að búa til eins mikla peninga og hægt er verður hætta á því að aðrar hugsjónir og önnur markmið falli í skuggann. Maðurinn, gildi hans og réttindi geta týnst. Allt sem ekki er pen- ingar verður minna virði en áður. Mannslíf, réttindi fólks og reisn mannlegs lifs eru áhættusvið á okkar tímum. Þess vegna er þörf á útrásarsiðfræði. En það er ekki auðvelt að tala máli hennar þegar sveifla samtímans er gróði, meiri gróði og enn meiri gróði. íslendingar fylltu heila flugvél eða svo og héldu til Kína. Tengsl íslands og Kina eru ekki ný og því gleðilegt að þau skuli eflast, en aðeins ef það leiðir til góðs fyrir báða aðila. í Kína eru ýmsir sem ekki geta talað. Þar má hvorki segja né gera ýmislegt sem mannréttindi tryggja að við getum sagt og gert hér á landi. Trúlega hefði mátt nota tækifærið betur til að benda á þá annmarka sem eru á mannréttindum i Kína í nýafstað- inni heimsókn. Voru hagsmunirnir veiga- meiri en hugsjónirnar? Voru ráðamenn ekki skammaðir af því að góðir samningar voru í húfi? Víða í Asíu þræla konur og börn tiu tima á dag eða lengur. íslendingar hafa keypt og reka fiskverkunarfyrirtæki í Kina þar sem ungar stúlkur vinna 11 tíma á dag í 11 mánuði á ári á smánarlaunum. Trúlega eru launin í takt við markaðinn, en nýta íslensk fyrirtæki tækifærið og sýna gott fordæmi og greiða betur en aðrir? Hvort ræður gróða- von eða mannúð ferðinni? Erfélagslegra réttinda gætt eða skipta þau ekki máli þar sem slíkt tíðkast ekki á þeim slóðum? Útrás til Asíu felur í sér þá áhættu að verða þátt- takendur í nýrri markaðshyggju hnattvæð- ingarinnar - nýrri heimsvaldastefnu sem ekki er stýrt af pólitískum heimsveldum 20. aldar, heldur peningavaldi og fyrirtækjum 21. aldar. Þar er þörf á útrásarsiðfræði. Sókn íslendinga í Asíu getur verið til góðs ef gætt er að siðfræðinni, helgi mannsins og réttindum okkar allra. Aukið fjármagn og atvinnutækifæri byggir upp fjárhag og framtíð fólksins í landinu - ef réttinda þeirra er gætt. Sumir siðfræðingar telja okkur á að beygja okkur fyrir nýjum tímum á sem flest- um sviðum mannlífsins. Sú hugsun felur í sér uppgjöf og vantrú á að unnt sé að stýra þróun mála, hafa áhrif og vinna hugsjónum fylgi. Markaðshyggjan má ekki valda gildis- fellingu á mannlegu lífi, hvorki nær né fjær. Sú útrás sem við fögnum hvað mest er útrás fagnaðarerindsins til fjarlægra þjóða. Slík útrás hefur verið stunduð frá íslandi i tæpa öld. Tugir þúsunda þakka í dag fyrir það framtak, fórnir og fúsleika sem nauð- synlegur var svo það yrði veruleiki. Jesús Kristur hefur með nærveru sinni getið fjölda fólks nýtt líf. Útrás annarra hjálparstofnana og samtaka sem bæta hag þeirra sem minna mega sín í fjarlægum löndum hefur farið vaxandi á liðnum árum. Það er fagn- aðarefni. Mættum við sjá meira af slíkri útrás. Hún er reyndar ekki vandalaus. Þar þarf að gæta að helgi mannlegs lífs eins og annars staðar. Forðast verður að fara í manngreinarálit eða misnota hjálpina til að þvinga fram ákveðna afstöðu í trúarlegu eða pólitísku augnamiði. Þar þurfa siðfræði og siðareglur að verða samferða eins og annars staðar í lifinu. Guð gaf okkur lífið. Hann er skaþarinn. Það er meðal þess sem bent er á i þessu tölublaði Bjarma. Skaparinn kallar til ábyrgðar á sköpun sinni og samferðafólki okkar. Lifum lífinu í kærleika og Ijósi Jesú Krists. Ragnar Gunnarsson Bjarmi 99. árg. 2. tbl. júní 2005 Útgefandi: Samband íslenskra kristniboðsfélaga. Ritstjóri: Ragnar Gunnarsson. Ritnefnd: Kjartan Jónsson og Haraldur Jóhannsson. Ritnefndarfulltrúar: Ragnar Schram og Hanna Þórey Guðmundsdóttir. Prófarkalestur: Þorgils Hlynur Þorbergsson. Afgreiðsla: Aðalskrifstofan, Holtavegi 28,104 Reykjavík, sími 588 8899, fax 588 8840, kennitala 620875 0239, reikningsnúmer 0101 26 4051, vefslóðir www.bjarmi.is og sik.is. Árgjald: 3.200 kr. innanlands, 3.700 kr. til útlanda. Gjalddagi 1. apríl. Verð í lausasölu 800 kr. Ljósmyndir: Ragnar Gunnarsson, Hermann Ingi Ragnarsson Gunnar J. Gunnarsson o.fl. Forsíðumynd: Hermann Ingi Ragnarsson. Umbrot: Steinar Ragnarsson. Prentun: Prentmet. 3

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.