Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.06.2005, Blaðsíða 44

Bjarmi - 01.06.2005, Blaðsíða 44
Askja og Öskjuvatn. sköpun heimsins. Svo hófst ný vika og hvað þá? Guð hélt áfram að skapa og er enn að skapa. Sköpun hans er sístæð. Við sjáum hann að verki í mótun lands og umhverfis, í veðrun og umbrotum í náttúrunni, í hverju nýju lífi sem kviknar. Okkur er falið það mikilvæga hlutverk að vera samverkamenn Guðs i hinu sístæða sköpunarferli. Sköpun Guðs — ábyrgð okkar Það er stórkostlegt að horfa upp í stjörnubjartan himin og 44 hugsa til smæðar okkar í alheimin- um. Hvert mannsbarn er eitt sex milljarða slíkra sem nú lifa á jörð- inni. Hún er ein reikistjarnanna í sólkerfi okkar sem er á einni vetrar- braut af óteljandi, óendanlega smá í óravíddum alheimsins. Það er einnig stórkostlegt að sjá ófætt barn í ómskoðun; sjá vísi að limum og liffærum sem eiga eftir að mótast og þroskast eftir gefinni forskrift erfðanna. 8. Davíðssálmur sameinar lotn- inguna gagnvart stórkostlegri sköp- un Guðs og ábyrgðina sem felst I því að vera maður, sjá v. 6nn. Þá ábyrgð berum við gagnvart Guði. Þannig berum við ábyrgð á umhverfi okkar. Mannkyninu var falið að gera jörðina sér undirgefna. Hættan er sú að við gerum hana óbyggilega með mengun, rányrkju og öðrum umhverfisspjöllum. Hér þarf ætlð að þræða hinn gullna meðalveg - að nýta án þess að ofnýta, að vita að umhverfið endurnýjar sig ef ekki er gengið of nærri því. Engin ein kynslóð hefur leyfi til að eyðileggja varanlega auðlindir eða umhverfi. Við berum ábyrgð á öllu Iffi, fæddu og ófæddu. Allt fólk er hluti af sköpun Guðs, skapað í mynd hans. Öllum ber virðing og við eigum að standa vörð um líf þeirra sem síst geta svarað fyrir sig en jafnframt stuðla að því að bæta hag og lífskjör hinna verr settu. Ein fyrsta spurning Biblíunnar er spurn- ing Kains: „Á ég að gæta bróður míns?“ (I. Mós. 4:9b) en það sem eftir er Biblíunnar er þeirri spurn- ingu margoft svarað játandi og bróðir í þeim skilningi er hver sá sem á okkar færi er að liðsinna. Við berum ábyrgð á eigin lífi og heilsu. Okkur er gefinn einn likami sem á að endast og duga. Það er líka trúarjátning í verki að fara vel með sjálfan sig, rækta heilsuna, andlega og líkamlega, og stuðla að góðri endingu. Allt þetta felst í trúnni á Guð föður, almáttugan skapara himins og jarðar. Guð hefur gefið okkur lífið. Við þökkum þá gjöf best með því að helga honum líf okkar, taka mark á vilja hans, kappkosta að lifa eftir orðum trúarjátningarinnar. Höfundur er sóknarprestur I Grensáskirkju í Reykjavík. sroljoh@bakkar.is

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.