Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.06.2005, Blaðsíða 6

Bjarmi - 01.06.2005, Blaðsíða 6
í eðli sínu álitamál. En sama gildir einnig um lífsviöhorf almennt, eins og t.d. guðsafneitun. Fjölmenning íslenskt samfélag er óðum að verða það sem kallað er fjölmenn- ingarsamfélag. Það felur í sér að hér sest að fólk sem flytur með sér eigin trú og menningu sem það vill leggja rækt við. Til þess hefur það rétt sem þegnar I íslensku sam- félagi. Þar með ber okkur sem fyrir erum að sýna því umburðarlyndi um leið og við væntum hins sama En skortur á umburðarlyndi þarf ekki endilega að koma fram með beinum hætti heldur einnig og oft ekki síður með óbeinum hætti. af þvi. Múslimar hafa t.d. rétt til að boða trú sína og reisa moskur, ef þeir kjósa svo, rétt eins og við höfum frelsi til að reisa kirkjur og kristin samkomuhús. Við slíkar aðstæður reynir á umburðarlyndið, á báða bóga. Umburðarlyndi gagn- vart aðkomnum felst ekki í því að við sem fyrir erum hopum með þau gildi sem okkur eru mikilvæg. Umburðarlyndið leggur báðum þá skyldu á herðar að læra að lifa saman í friði. Enda þótt orðið fjöl- menningarsamfélag sé tiltölulega nýtt í tungunni er orðið fjölhyggju- samfélag og það sem það stendur fyrir ekki nýtt. í trúarefnum hefur fjölhyggja verið staðreynd í íslensku samfélagi lengi. Það sýnir ekki aðeins fjöldi trúfélaga, heldur einnig fjöldi þeirra sem aðhyllast lífsviðhorf sem fela t.d. í sér efahyggju og veraldarhyggju sem afneitar öllu sem ekki er þessa heims. Að rnínu mati hefur þessi sannfæring, sem með vissum hætti eru trúarlegs eðlis, meiri ítök víða i þjóðfélaginu en t.d. kristin trúarvið- horf, og fer því fjarri að margir þeirra sem aðhyllast þessi viðhorf sýni trúarviðhorfum annarra umburðarlyndi, þótt þeir ásaki þá iðulega um skort á umburðarlyndi sem halda fram eindregnum trúar- viðhorfum og kristnum siðgæðis- viðmiðum. En skortur á umburðar- lyndi þarf ekki endilega að koma fram með beinum hætti heldur einnig og oft ekki síður með óbein- um hætti. Þöggun, það að nota aðstöðu sína til að hindra að trúar- leg viðhorf heyrist ekki er einnig skortur á umburðarlyndi. Með hvaða hætti ætli það sé gert í íslensku þjóðfélagi? Hvað er sannleikur? Þótt í misríkum mæli sé, halda ólík trúarbrögð því fram að þau hafi í sér fólginn sannleikann um Guð. Þannig er það sannfæring kristinna manna að Jesús Kristur hafi birt manninum sannleikann um Guð, - hafi í raun verið sannleikurinn um Guð, eða með öðrum orðum Guð í heiminn kominn. Það er reyndar grundvöllur kristinnar trúar. Önnur trúarbrögð halda öðru fram af sama sannfæringarkrafti. Er það skortur á umburðarlyndi að halda því fram að það sem eigin trúarsannfæring byggist á sé rétt en aðrir séu á villigötum? Ég tel svo ekki vera. Ég er frjáls skoðana minna og frjáls að því að tjá þær. En það eru þeir einnig sem hafa aðra trúarsannfæringu. Enda þótt ég hafni eindregið eða hafi jafnvel skömm á viðhorfum annarra, hvort sem er I trúarefnum eða á öðrum sviðum, felur það ekki i sér fyrirlitn- ingu á þeim einstaklingum sem hafa tiltekið viðhorf. Þeir eru menn með sömu réttindi og ég. Þannig er fyrir öðrum. Umburðarlyndinu er ekki ætlað að þagga niður í mönn- um heldur er því ætlað að tryggja frjálsa tjáningu sannfæringar. Samkvæmt þvi býður umburðar- lyndið upp á átök, þ e. að tekist sé á um það sem mönnum finnst skipta máli, hvort sem er fyrir þá sjálfa eða á vettvangi þjóðmálanna. Með átökum á ég að sjálfsögðu ekki við að menn hafi leyfi til að berja hverjir á öðrum. Svokölluð afstæðishyggja, sem fer vaxandi á Vesturlöndum og er nú um stundir gjarnan kennd við postmodernisma, hefur tilhneigingu til að gera lítið úr ágreiningi um lífs- gildi með því að halda fram því viðhorfi að allt sé jafngilt, ekkert sé í sjálfu sér öðru betra þegar um lífsviðhorf og gildismat er að ræða. Menn geti haft sitt fyrir sig ef þeir láta aðra í friði fyrir því. Þeir sem telja allt jafngilt skreyta sig gjarnan með umburðarlyndi. En að mínu mati þurfa þeir ekki að hafa fyrir því að vera umburðarlyndir ef þeir eru sannfærðir um að allt sé jafngilt og ekkert öðru betra. Þá er þeim sama um hvað er hvað. Það er ekki umburðarlyndi heldur afstöðuleysi. Að standa á sama er ekki umburð- arlyndi. Menningarátök Viða tala menn í vaxandi mæli um menningarátök. Með því er átt Þá er þeim sama um hvað er hvað. Það er ekki umburðarlyndi heldur afstöðuleysi. Að standa á sama er ekki umburðarlyndi. mikilvægt í átökum um viðhorf að sýna andstæðingum ekki lltilsvirð- ingu sem manneskjum. Það felur m.a. í sér það sem áður er sagt að fara rétt með og andmæla heiðar- lega því sem manni er ekki að skapi. Umburöarlyndi býður upp á átök Að þessu sögðu vil ég staðhæfa að trúarsannfæring og umburðar- lyndi fari vel saman. Umburðar- lyndið tryggir öllum rétt til að hafa sannfæringu og tjá hana. Umburðarlyndið krefst virðingar við átök á milli ólíkra viðhorfa sem líkleg eru til að móta viðkomandi samfélag, bæði í nútíð og framtíð. Bandarískur heimspekingur, T. M. Scanlon, hefur m.a. ritað um þetta efni í bók sinni The Difficulty of Tolerance. Hann segir m.a. í upphafi 10. kafla bókar sinnar, að hann sé í hópi þeirra sem trúar- brögð skipta engu máli og þar af leiðandi sé umburðarlyndi á því sviði ekki vandamál fyrir honum. En síðar í sama kafla segir hann, eftir að hafa rætt ítarlega um trúar- brögð og umburðarlyndi: 6

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.