Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.06.2005, Blaðsíða 42

Bjarmi - 01.06.2005, Blaðsíða 42
Ólafur Jóhannsson Guð er skaparinn! Trúarjátningar kirkjunnar frá fyrstu öldum kristni í heiminum vitna um trú á heilaga þrenningu - Guö sem er faðir, sonur og Heilagur andi. Þessar trúarjátningar eru settar fram til að afmarka hvað kristin trú felur í sér og jafnframt hvað hún felur ekki i sér. Jesús Kristur starfaði í gyðing- legu samfélagi. Þar ríkti eingyðistrú og kristnin byggir ofan á þá trú. Að skilningi hinna kristnu hafa fyrirheit og spádómar gyðingdómsins (Gamla testamentisins) ræst í Jesú. Hann kom ekki til þess að afnema GT, heldur uppfylla það (Matt. 5:17). Af þessu leiðir að greinar trúar- játningarinnar um Jesúm Krist og Heilagan anda eru séreign krist- innar kirkju en greinin um ska- parann er í samræmi við sköpun- artrú gyðingdómsins. Á þessum tíma, löngu fyrir daga prentlistar, var þess gætt að viðhafa ekki óþarfar málalengingar. Hvert orð er dýrt og mikilvægt. Við höldum okkur við þekktustu játninguna, Postullegu trúarjátning- una. Frá fornu fari er hún skírnar- játning kirkjunnar og núorðið iðu- lega notuð sem messujátning í stað Níkeujátningarinnar. í Postullegu trúarjátningunni er ein grein um hverja persónu Guðs. Fyrsta greinin er stutt: „Ég trúi á Guð föður almáttugan skapara himins og jarðar." Þessi grein er styttri en hinar greinar trúarjátningarinnar af því að hér þarf minnst að útskýra. Um er að ræða eingyðistrú, á skapara. Þar með er hafnað allri Dimmugljúfur viö Kárahnjúka. fjölgyðistrú og algyðistrú. Guð er einn og hann er persónulegur en ekki allt i öllu, ekki samofinn sköpunarverkinu. Ég Oftast er farið með trúarjátning- una af hópi fólks og í samfélagi. Hún er lofgjörð kirkjunnar til Drott- ins. Samt vitnar hún um persónu- lega trú einstaklinga. Við trúum ekki sem hópur heldur einstaklingar, iðkum trúna i samfélagi en hún býr i hjörtum okkar. Þegar við segjum „ég“ í upphafi trúarjátningarinnar merkir það að trú einstaklingsins er trú kirkjunnar. Kirkjan er samfélag einstaklinga og trú hennar er ekki önnur en trú ein- staklinganna sem mynda kirkjuna. Trúi á Kristin trú felst ekki i því að samsinna trúaratriðum. Hægt er að komast að þeirri niðurstöðu að til sé Guð án þess að það leiði til trúar á hann. Orðalagið „trúi á“ merkir ekki það eitt að aðhyllast tilvist Guðs. Að trúa á felur í sér að reiða sig á, treysta og fela sig á vald þeim sem trúin beinist að. Guð Kristin trú er traust til Guðs sem er faðir, sonur og Heilagur andi. í þeim þremur persónum Guðs er einn vilji, einn hugur. Að hann er Guð felur í sér að hann er okkur æðri og óskiljanlegur. Við getum ekki skilið Guð, skilgreint hann eða sett honum mörk. Hann er utan þess sviðs sem er á færi okkar. Hann er ekki þundinn af tak- mörkunum tima og rúms eins og sköpun hans, heimurinn, við. Á Guð er ekki óljós æðri máttur heldur persónulegur. Hann er ekki hluti af heiminum en þó alls staðar nálægur i veröldinni. Trú á Guð felur í sér að játa fremur en skilja, þiggja frekar en útskýra, gangast undir en ekki setja sig yfir. 42

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.