Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.06.2005, Blaðsíða 19

Bjarmi - 01.06.2005, Blaðsíða 19
Frá Þýskalandi stríðsáranna. Nasistar smala Gyðingum í bfla sem fluttu þá i tangabúðir. áherslur. Hann var búinn að fá heimboð til Gandhi og einnig boð um að slást í för með honum um Indland. Það varð reyndar aldrei úr þeirri ferð. Hugmyndir Bonhoeffers um að veita viðnám gegn nasismanum þróuðust nokkuð með timanum. Þegar hann er að hugleiða ferðina til Gandhi er hann enn friðarsinni og telur það vænlegt til árangurs að beita mótstöðu til ofbeldis. Hug- myndir hans áttu eftir að breytast þegar nasistar beittu meiri hörku og aðgerðir þeirra gegn Gyðingum urðu meira afgerandi. Þá hóf hann að hugleiða hvort mótstaða án ofbeldis væri í raun árangursrík. Bonhoeffer valdi frekar að snúa aftur til heimalands síns þar sem nasistar höfðu með aðgerðum sínum þrengt enn frekar að játning- artrúum með því að loka skóla fyrir presta þeirra. Því ákváð Játningar- kirkjan að koma á fót nýjum prestaskóla á eigin forsendum og buðu Bonhoeffer að móta starf hans og veita honum forstöðu. Hann þáði það boð en þó ekki án þess að heyja innri baráttu. Hann ritaði vini sínum, Erwin Sutz, bréf þess efnis að hann hefði ekki trú á háskólum og hefði ekki haft um nokkurt skeið. Það hefur oft verið haft á orði að guðfræðingurinn og presturinn hafi tekist á í Bonhoeffer og hugsanlega var viðhorf hans til háskólakennslu mótað af þeim væringum. Honum fannst mikilvægt að þjálfun nýrra presta færi fram I skóla sem væri meira í ætt við klaustur, þar sem tilbeiðsla, hin sanna kenning og fjallræðan væru í brennidepli. En að lokum þáði hann stöðuna en fékk frest fram til vors 1935 þvi hann vildi kynna sér starf annarra prestaskóla á Englandi. mikið upp úr helgihaldi í prestaskólanum og lét nemendur sína hugleiða Guðs orð á hverjum morgni. Wolf-Dieter Zimmermann, einn af nemendum hans, segir í bókinni „/ knew Dietrich Bonhoeffer“ frá dvölinni í Finkenwalde. Bonhoeffer krafðist mikils sjálfsaga af nemendum Hugmyndir hans áttu eftir að breytast þegar nasistar beittu meiri hörku og aðgerðir þeirra gegn Gyðingum urðu meira afgerandi. Prestaskólinn í Finkenwalde var starfræktur þar til honum var lokað af Gestapo I september 1937. Niemöller var handtekinn um svip- að leyti og aðgerðir hertar gegn Játningarkirkjunni og þýskum full- trúum var meinað að sækja samkirkjulega ráðstefnu í Oxford sama ár. Það má segja að Bonhoeffer hafi á vissan hátt bland- að saman straumum úr kaþólskri hefð við hefðir mótmælenda í þrestaskólanum. Bonhoeffer lagði sínum og þeim brá mikið við að þurfa að lesa ritningargrein í algjörri einbeitningu og kyrrð á hverjum morgni. Þeim þótti þetta vera í anda hreintrúarstefnu og það var mjög vafasamt í augum þessara ungu guðfræðinema. Bonhoeffer lagði mikið upp úr því að þeir mættu ekki nota skýringarrit eða orðalykla við þennan lestur og þeir áttu ekki að nota timann til að 19

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.