Bjarmi - 01.06.2005, Qupperneq 14
Heima með strákunum
Þama er engin kærleikstrú fyrir
hendi og það aö gefa fólki trú og
vissu um kærleika Guðs, er e.t.v.
meira virði en brauð og líkamleg
afkoma, þó allt þurfi þetta að hald-
ast i hendur. Við þekkjum það sjálf,
að það að vera laus við kvíða og
hafa von og trú er það mikilvæg-
asta þegar erfiðleikar steðja að.
Haföir þú veriö virk i kirkjulegu
starfi áöur en þú komst aö stofnun
kristniboöshópsins?
í vor komst ég á þing í tvær vikur og var
það mjög forvitnilegt og skemmtilegt.
Nei, ekki nema að þvi leyti að
ég hafði verið í kirkjukór og er enn í
kirkjukór Valla- og Þingmúlasóknar.
Tími minn hafði mikið farið í stjórn-
málastarf hér fyrir austan og lét ég
mér það duga.
Hvernig erþvlháttaö?
Ég var í sveitastjórn í 8 ár og
var m.a. forseti bæjarstjórnar á
Austur-Héraði um tíma. Einnig var
ég í nokkur ár stjórnarformaður
Heilbrigðisstofnunar Austurlands.
Svo er ég varaþingmaður Norð-
austurkjördæmis fyrir Framsóknar-
flokkinn. í vor komst ég á þing i
tvær vikur og var það mjög forvitni-
legt og skemmtilegt. Ég er viss um
að þetta er skemmtilegur og góður
vinnustaður. Það er hvers þing-
manns að móta sitt starf og það er
gefandi.
Finnst þér þátttaka í stjórnmálum
og þátttaka á kristilegum vettvangi
eiga eitthvaö sameiginlegt?
Bæði þessi viðfangsefni snúast
um velferð fólks. Kristin trú vinnur
innan frá i hverjum og einum og
það þarf að virkja til að gera starfið
gott utan frá og fá fleiri með.
Velferð í stjórnmálum er öðruvísi.
Það hafa orðið miklar framfarir í
velferðarmálum á íslandi og allir
skilja mikilvægi þess, en það eru
ekki nærri allir sem skilja mikilvægi
trúarinnar í velferð einstaklingsins.
Ég hef komið aðeins að starfi i 12
spora hóp en þar er unnið í litlum
hópum og er mjög áhugavert að
finna hvernig kristinn kærleikur
snertir fólk. Sumum fannst trúin
ekki vera eitthvað sem hentaði
þeim áður en þeir komu í starfið en
nú finnur hver og einn hvernig trúin
á sinn hátt hjálpar í margvislegum
viðfangsefnum og vandamálum.
Hvaö er framundan
á næstunni hjá þér?
Sumarið er framundan og þá er
hugurinn í Gróðrarstöðinni, enda
mikil vinna þar á vorin. Áður fyrr
var vorið kvíðvænlegur tími hjá mér
en nú líður tíminn hraðar eftir því
sem maður eldist og vorin fljót að
líða. Einnig hefur trúin hjálpað mér
að takast á við hversdagslega hluti
og ég kvíði engu með Drottin mér
við hlið, þó að eitthvað fari úrskeið-
is þarf ég ekki að hafa áhyggjur af
því, ég set hvern dag í hans hendur.
Viðmælandi Katrínar er skirfstofustjóri
félagsvísinda- og lagadeildar HA
þar sem hún stundar einnig nám á
mastersstigi.
hannag@unak.is
14