Bjarmi - 01.06.2005, Qupperneq 15
Frá kirkjudaginum 2001.
Kirkjudagar
- uppskeruhátíð kirkjunnar
Kirkjudagar 2005 verða haldnir á
Skólavoröuholtinu 24. og 25. júní
næstkomandi. Þeir eru nú haldnir
öðru sinni, en síðast voru þeir
haldnir árið 2001. Kirkjudagar eru
samstarfsverkefni kirkjunnar allr-
ar. Því hefur verið lagt kapp á að
leita til prófastsdæma, félaga,
stofnana, sókna og einstaklinga
sem tengjast kirkjunni til að taka
virkan þátt í dagskrá Kirkjudaga.
Kirkjudagar eru uppskeruhátíð
kirkjunnar, þar sem um leið er horft
fram á veginn. Einnig eru þeir
markaðstorg. Á Kirkjudögum er
hægt að kynnast margbreytilegu
starfi kirkjunnar - brúðkaup, kóra-
söngur, söngleikir, kynning á starfi
KSS og kvikmyndasýningar eru
dæmi um fjölbreytnina á Kirkjudög-
um. Jafnframt eru Kirkudagar
vettvangur fyrir alla þá sem starfa
innan kirkjunnar og i félögum teng-
dum henni til að hittast, skiptast á
skoðunum og hugmyndum.
Dagskrá Kirkjudaga er mjög fjöl-
breytt. í henni má m.a. finna örþing
um tónlist innan kirkjunnar, þar
sem fjallað verður um spurninguna
hvað gerir tónlist kirkjulega og
trúarlega. íslandsfrumsýning verður
á kvikmyndinni „Lúther". Boðið
verður upp á kynnisferð í fjórar
kirkjur með leiðsögn og pilagríma-
göngu. Yfir 40 málstofur verða á
Kirkjudögum um fjölbreytt málefni
og fjölmargir aðilar munu verða
með kynningu á starfi sínu, þar á
meðal KFUM og KFUK, SÍK og
Biblíufélagið. Tónlist mun gegna
stóru hlutverki en margir kórar
verða með tónleikadagskrá á hátíð-
arsvæðinu. Fjölbreytt helgihald
verður og stendur þar hæst
útimessa sem verður kl. 18 á
laugardeginum. Samkór útimess-
unnar er opinn öllu söngfólki.
Fjölbreytt dagskrá verður fyrir börn
og unglinga, svo sem hoppukastal-
ar, ævintýraland, risa-fótboltaspil,
risa-lúdó og margt fleira. Kirkjudög-
um lýkur á laugardagskvöldi með
kvöldvöku.
Kirkjudagar hefjast föstudaginn
24. júní, kl. 20:00 með opnunar-
hátíð sem mun einkennast af
almennum söng I léttri sveiflu, en
þema kvöldsins verður trúarjátn-
ingin. Allir eru velkomnir á Kirkju-
daga og ættu að finna sér eitthvað
við hæfi á Kirkjudögum. Öll dagskrá
er ókeypis og allir velkomnir.
Nánari upplýsingar um kirkjudaga
er að finna á vefsiðunni
www.kirkjan.is/kirkjudagar.
Höfundur er verkefnastjóri
á biskupsstofu.
15