Bjarmi

Volume

Bjarmi - 01.06.2005, Page 17

Bjarmi - 01.06.2005, Page 17
Jóhanna Sesselja Erludóttir H.C. Andersen og kristindómurinn Annan apríl síðastliðinn voru mikil hátíðahöld í Danmörku og víðar um heim í tilefni af því að tvö hundruð ár voru liðin frá fæðingu danska sagnameistarans Hans Christian Andersen. Hann er í dag þekktur sem eitt mesta sagna- skáld allra tíma og ævintýri hans hafa verið þýdd á ótal tungumál og auðgað líf barna út um allan heim og veitt þeim gleði. Kristindómurinn er ekki i for- grunni í verkum H.C. Andersen. Þó koma oft fyrir kristilegar hugmyndir og boðskapur í því sem hann skrifaði. Yfirleitt er bara um vísanir að ræða en einnig eru heilu ævintýrin og Ijóðin skrifuð í kringum kristileg stef. Hinn alþýðlegi kristindómur Danski bókmenntafræðingurinn Ove Klausen bendir á að kristin- dómur H.C. Andersen hafi verið í samræmi við kristindóm alþýð- unnar á 19. öld og að það hafi verið þrennt sem H.C. Andersen hafi lagt áherslu á í sambandi sínu við Guð. Hann hafi trúað á forsjána og verið sannfærður um að Guð ríkti yfir manneskjunni og vildi það besta henni til handa. Hann hafi trúað á ódauðleika sálarinnar og eilíft líf en á sama tíma hafnað trúnni á fordæminguna. „Saga lífs míns vill segja heiminum það sem hann hefur þegar sagt mér: Það er til kærleiksríkur Guð sem leiðir allt á hinn besta veg...“ Hann vísar ekki til Biblíunnar eða notar guðfræðileg rök heldur rökstyður sannfæringu sína með þvi hvernig hann hefur upplifað heiminn og lífið. Það sama á við þegar hann talar um ódauðleikann. Hans helstu rök eru þau að lífs- hlaup mannanna séu svo ólík hér á jörð, sumir lifi góðu og hamingju- ríku lífi á meðan aðrir upplifi hið gagnstæða. Ef Guð er réttlátur og til þess að hann geti tryggt réttlæti öllum til handa, hljóti að vera til líf eftir þetta, svo Guð geti bætt úr ójafnvæginu hér í þessu lífi. Hann vlsar ekki heldurtil Biblíunnar þegar hann hafnar fordæmingunni. Hann styður mál sitt með þvi að úr því að syndug manneskja óskar þess ekki að pina sinn versta óvin út í hið óendan- lega, fær það ekki staðist að góður Guð óski nokkrum eilifrar pínu. Trúin og hugurinn H.C. Andersen var góður vinur náttúruvísindamannsins H.C. 0rsted, sem sá engan mun á trú og vísindum. Þvert á móti taldi hann að þekking vísindanna væri einnig leið til að þekkja Guð. H.C. Ander- sen var undir áhrifum frá nafna sínum 0rsted og taldi að bæði þekking sin og sannfæring gætu leitt sig til til trúar á Guð. Hann skrifaði svo í bréfi til 0rsted: „Drottinn hlýtur að umbera það að við horfum á hann í gegnum þá þekkingu sem hann hefur sjálfur gefið okkur. Ég vil ekki ganga veg- inn til Guðs með bundið fyrir augun, ég vil hafa þau opin, sjá og vita. Þótt ég komist þá ekki til trúar, hefur hugur minn þó orðið ríkari." Náttúran eða kirkjan H.C. Andersen sótti ekki kirkju en á einum herragarðinum, þar sem hann bjó, var herbergið hans á kirkjuloftinu. Hann sat aldrei guðs- þjónustur en lét gjarnan hurðina standa hálfopna að baki sér svo hann heyrði hvað fram færi í kirkjunni. í stað þess að sækja kirkju og hitta Guð þar, hélt hann frekar út í náttúruna og mætti Guði í henni. Þetta kallaði hann „að ganga ómeðvitað til kirkju." Andersen virðist hafa sett sam- an sína eigin útgáfu af kristindómn- um. Hann studdist ekki við Bibliuna eða guðfræðilegar kenningar heldur lífið og umheiminn. Skilningur hans á Guði og kristindómnum fór eftir því hvernig hann skilur og upplifir heiminn og umhverfið í kringum sig. Nálgun hans er einlæg en barnaleg enda trúði hann því að barndómurinn væri kjarni kristin- dómsins, samanber orðin í Lúkasarguðspjalli: „Sannlega segi ég yður: Hver sem tekur ekki við Guðs ríki eins og barn, mun aldrei inn i það koma.“ Heimild: Ove Klausen) H.C. Andersen og kristen- domen. Indre Missions Tidende, nr. 14,152. árgangur, 3. apríl 2005. Mynd við söguna um Eldfærin. Líkan gert af nemum KHÍ. Höfundur stundar meistaranám í fjölmiðlun. 17

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.