Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 01.06.2005, Side 22

Bjarmi - 01.06.2005, Side 22
60 ár frá lokum seinni heimstyrjaldarinnar Trúin var haldreipi þeirra Norski fangelsispresturinn Dagfinn Hauge starfaöi í Osló á striðsárunum, en Noregur var hernuminn af Þjóðverjum. Það kom í hans hlut að fylgja mörgum ungum norskum mönnum síðasta spöl stuttrar ævi. Yfirleitt voru þeir sakaðir um föðurlandssvik. í bókinni Hetjur á dauðastund segir hann frá kynnum sínum af mörgum þeirra. Eftirfarandi frásaga er lítillega stytt, en hún birtist í bókinni sem út kom á íslensku árið 1947 í þýðingu Ástráðs Sigursteindórssonar. Útgefandi var Bókagerðin Lilja. Það voru margir röskir piltar [ Akershus-fangelsinu haustið 1942. En alltaf jukust erfiðleikarnir á því að fá nokkuð fyrir þá gert. En við fengum að halda áfram að útbýta Nýja testa- mentum og sálmabókum, einnig á meðal fanga öryggislögreglunnar. Guðs orð varð því ekki fjötrað og það vann sitt verk, ekki síst á meðal þeirra sem einangraðir voru. Það virtist svo sem flestir kæmu auga á gildi kristindómsins og fyrir marga hafði fangelsistíminn úrslita- þýðingu hvað snerti samfélag þeirra við Guð. Það bar ekkert á því hjá neinum að óttinn fengi yfir- höndina. [ kyrrðinni í klefunum fengu þeir góðan tíma til að hugsa. Nú braust aftur fram það sem falið hafði verið frá bernskuárunum og fermingarundirbúningum. Menn höfðu góðan tima til að sökkva sér niður í Guðs orð. Það var heldur ekki hægt að segja að þeir væru alveg án leið- beininga. Margir höfðu síðar þá sögu að segja að þeim hefði tekist, þrátt fyrir einangrunina, að mynda sína guðsþjónustuflokka og hafa sambönd sín á milli í gegnum veggina, bæði munnlega og skrif- lega. í lok nóvember voru kveðnir upp tveir nýir dauðadómar. Nú voru fórnarlömbin tveir kornungir piltar frá Suður-Noregi: Ragnar Fredrik- sen og Erling Karlsen. Við tókum þessa dóma ekki alvarlega, enda hafði verið mælt með náðun. Ótrúlega langurtími leið þangað til málið var útkljáð vegna þess að þýskir hermenn voru við málið riðnir. Auðvitað var það sérstaklega erfitt fyrir svona unga pilta að sitja í fangelsi. En þeim voru veittar ýmsar ívilnanir. Þetta voru skemmtilegir piltar, hvor á sinn hátt. Báðir höfðu fengið talsvert kristilegt veganesti með sér frá bernskuárunum og þegar ég kom til þeirra í fyrsta skipti sögðust þeir blátt áfram vilja vera persónulega kristnir og tóku Nýja testamentinu og sálmabókinni fegins hendi. Þeir komu líka alltaf saman til altaris. Eitt sinn um vorið kvaðst Ragnar hafa þá frétt að færa að hann væri búinn að fá náðun. En ég var samt með sjálfum mér í dálitl- um vafa. Boðin voru ekki borin á réttan hátt. í Ijós kom að þetta var allt á misskilningi byggt. Ekki löngu síðar komu allt aðrar fréttir: Þeir myndu ekki verða náðaðir. Þannig liðu mánuðir. Tauga- stríðið var með köflum hart. En alltaf hafði bjartsýnin yfirhönd- ina, bæði hjá piltunum og að- standendum þeirra. Þegar sex mánuðir voru liðnir héldu jafnvel þeir tortryggnustu úr okkar hópi enn að allt væri í lagi. Það var 28. júní 1943 - einn af þessum björtu, broshýru dögum sem í öllum sínu sólríka sumarskrúði eru kröftug mótmæli gegn stríði og djöflagangi. Ókunn þýsk rödd kemur í símann. Það var þýski yfirpresturinn. Hann átti að skila kveðju frá vinum mínum tveim í Akershus. „í nótt fylgdi ég þeim áleiðis síðustu ferðina." Það leið nokkur timi þangað til ég gat fengið mig til að trúa að þetta væri satt. Átti það þá lika að fara svona i þetta skipti! Ég sá fyrir mér báða drengina. Þeir voru sann- ir drengir í öllu, i hreyfingum, í hugsun, í tali, í brosi. Áttu þeir þá ekki heldur að fá að lifa! Ég sá fyrir mér björt augun sem svo oft höfðu mætt mér í klefadyrnunum eða kirkjunni. Og nú höfðu þau lokast fyrir fullt og allt... Ég átti ekki annars úrkosta en að skýra foreldrum drengjanna frá því hvernig komið var. í meira en hálft ár höfðu þeir strítt í angist og eftir- væntingu og borist milli vonar og ótta. Og nú átti þetta að enda svona. Síðdegis sama dag átti ég tal við yfirprestinn. Þetta var í fyrsta 22

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.