Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.06.2005, Síða 26

Bjarmi - 01.06.2005, Síða 26
er líkt og andvarp sem þarfnast ekki svars heldur nálægðar ástvina eða vina. Það er nauðsynlegt að sýna þolinmæði þó að sama sagan sé endurtekin hvað eftir annað. Það er líkt og fargi sé létt af hjarta hinna sorgmæddu þegar tilfinningar eru tjáðar með orðum. Þetta er mjög mikilvægt. Hvort sem ætting- jar og vinir hlusta eða ekki er Guð alltaf nálægur. Mikilvægt er að tjá erfiðar tilfinningar eins og reiði og ósætti því að við gerum okkur ekki fullkomlega grein fyrir líðan okkar fyrr en við náum að tjá hana með orðum. Við getum ekki brugðist við líðan okkar og tilfinningum nema við vitum nákvæmlega hverjar þær eru. Gott er að muna að Guð gaf okkur allar tilfinningarnar sem við finnum fyrir. Ekkert er of smátt eða of stórt frammi fyrir Guði. Talað við Guð Víkjum aftur að Job og átökum hans. Hann spyr Guð spurningar sem við getum tekið undir: „Hvers vegna lifa hinir óguðlegu, verða gamlir, já magnast af krafti?" (21:7) Við þurfum að viðurkenna líkt og Job að lífið virðist ekki alltaf réttlátt. Við megum spyrja Guð 3. Við þekkjum Guð fyrst þegar við afhendum honum allt ogleyfum honum að vinna í hjörtum okkar og lífi. erfiðra spurninga. Við getum gert eins og Job og talað við Guð um allt sem við skiljum ekki, sagt honum frá því sem við segjum engum öðrum. Það er léttir að tala við Guð um sárar tilfinningar, líka þær sem við þorum ekki að viðurkenna fyrir öðrum að bærist með okkur. Skömm er slík tilfinning og okkur er nauðsynlegt að losna við hana. Við getum gert það með því að tala við Guð um hana og segja honum frá henni og öðrum erfiðum tilfinningum. Þetta verður á milli þín og Guðs. Það getur hjálp- að okkur að skilja liðan okkar og bregðast við henni á viðeigandi hátt. Job ræðir við Guð í síðustu köflum Jobsbókar og við verðum vitni að því er hann sér hroka sinn og stolt. í glímunni við sorg og þjáningu sér Job að einskis er hægt að krefjast, að við þiggjum allt úr hendi Guðs. Þess vegna iðrast Job frammi íyrir Guði og veit fyrir víst að Guð mun alltaf vera með honum og hjálpa honum með viðfangsefni lifsins: „Ég þekkti þig af afspurn, en nú hefur auga mitt litið þig!“ (42:5) Við þekkjum Guð fyrst þegar við afhendum honum allt og leyfum honum að vinna i hjörtum okkar og lífi. Þá fyrst fær hann tækifæri til að hjálpa, líkna og lækna sárin okkar hvort sem þau eru á líkama eða sál. Guð elskaði Job og gaf honum allttil baka og blessaði líf hans. Þannig elskar Guð okkur og þess vegna sendi hann son sinn eingetinn til að lifa sem maður hér á jörð, þjást og deyja krossdauða fyrir syndir okkar. Jesús reis upp frá dauðum, sigraði sjálfan dauðann og gefur okkur þess vegna fyrirheit um eilíft líf með sér. Höfundur er hjúkrunarfræðingur með djáknamenntun 1. Haltu mér, heilagi andi, hjálp þín mér lýsi skært. Vísaðu til vegar, visku mér getur fært. 2. Hreyf við mér, heilagi andi, hresstu og léttu brag Jesús Ijúft mér lýsir, leiðir mig sérhvern dag. Hvettu mig, heilagi andi, hólpnum mér frelsi veit. Ábyrgð þarf og þjónslund, þekkur svo efni heit. 4. Hjáipaðu, heilagi andi, heill svo ég kunni skil Ennþá gjörvallt gerir Guð það sem hann bjó til. 5. Nú hef ég verk að vinna væntir nú Kristur mín! þess vegna þögult streymir þakklæti upp til þín. Þorgils Hlynur Þorbergsson, sálmurinn er þýddur úr sænsku 11.02. 2005.

x

Bjarmi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.