Bjarmi - 01.06.2005, Page 31
*
sérstaklega vegna þess að það er
stjórnlaust tæki.
Andaglas getur ennfremur orðið
ávanabindandi rétt eins og tölvu-
leikur. Þetta á sérstaklega við ef
notandinn er einn en þá getur
viðkomandi sokkið djúpt inn í
atburðarásina. Oft geta komið í Ijós
ýmis líkamleg og sálarleg einkenni
eftir mikla notkun á andaglasi, t.d
hefur fólk upplifað vanlíðan, ótta,
streituköst og jafnvel svefntruflanir
og átraskanir. í grein sem Jóna Rún
Kvaran skrifaði um þessi mál segir
svo „Mýmörg dæmi er um að fólk
hafi þurft á geðlæknishjálp að
halda eftir að hafa verið að leika
sér í andaglasi, vegna þess að
geðheilsa viðkomandi bauð ekki
upp á þannig fikt. Við verðum að
gera okkur fulla grein fyrir því að
hörmulegar og næstum óleysan-
legar afleiðingar geta orðið innra
með þeim sem fer að stunda það
kukl sem andaglas alltaf er.
Dulspekingar hafa löngum sagt að
allra lágþróuðustu verur hinum
megin frá, kæmu umvörpum í
andaglasið, þegar það er sviðsett
með tilheyrandi tilþrifum." Miðað
við þetta og annað sem þegar hefur
komið fram í þessari grein er ekki
hægt annað en að vara alvarlega
við því kukli sem andaglas er. Ég vil
því hvetja fólk að halda sig frá slíku
og aðvara aðra.
Hvað ef...?
Sumt fólk spyr: „Hvað á ég að
gera ef eitthvað hefur hent mig
þegar ég var að nota andaglas?"
í fyrsta lagi: Biddu Guð um að
fyrirgefa þér og hreinsa þig af öllu
illu.
í öðru lagi: Biddu Guð um að
koma inn í hjarta þitt með kærleika
sinn og náð.
í þriðja lagi: Játaðu Jesú Krist,
segðu sjálfum þér að hann sé hjá
og í þér með kærleika sinn. Mundu
að elska Guðs er sterkari en öll ill
öfl sem fyrirfinnast.
Síðan getur þú alltaf haft sam-
band við einhvern kristinn einstak-
ling sem þú treystir og getur leið-
beint þér enn frekar.
„Hann (Guð) afmáði skulda-
bréfið sem þjakaði oss með
ákvæðum sínum. Hann tók það
burt með því að negla það á
krossinn. Hann fletti vopnum
tignirnar og völdin, leiddi þau opin-
berlega fram til háðungar og
hrósaði sigri yfir þeim í Kristi."
(Kól. 2:14-15).
Heimildir:
Harper's Encyclopedia of Mystical &
Paranormal Experience
The Encyclopedia of Psychic Science
www.jonaruna.com
Höfundur er æskulýðsfulltrúi
KFUM og KFUK
rsk@kfum.is
31