Fréttablaðið - 03.03.2010, Blaðsíða 2
2 3. mars 2010 MIÐVIKUDAGUR
FÆREYJAR Heilu fjölskyldurnar í
Færeyjum þjást af arfgenga sjúk-
dómnum CTD. Dæmi eru um að
systkini deyja með stuttu milli-
bili.
Halldóra Storá, færeysk kona
búsett á Íslandi um árabil, þekkir
dæmi þessa, en ein frænka henn-
ar og æskuvinkona hefur misst
tvö börn úr CTD. Þriðja barnið er
veikt og tvö bera veikina án ein-
kenna. Það gera öll barnabörnin,
níu talsins, líka.
Nú þegar hefur um þriðjungur
Færeyinga farið í blóðprufu vegna
sjúkdómsins, aðallega ungt fólk, en
um einn af hverjum sjö hundruð
Færeyingum er með sjúkdóminn.
Þetta er hundraðfalt hærra hlutfall
en víðast í heimi. Á Íslandi hefur
eitt barn greinst með sjúkdóminn,
af átta til níu þúsund prófuðum.
Halldóra segist fegin umfjöll-
uninni á Íslandi, sérstaklega að
heyra að hægt sé að fara í skimun
á Landspítala, því hún hafi spurst
fyrir hjá tveimur læknum hér, sem
ekki þekktu til sjúkdómsins.
„Það er þungu fargi af mér létt
að þetta er komið á þetta stig. Nú
fer ég í blóðprufu á morgun [í
dag],“ segir hún.
Eins og kom fram í blaðinu í gær
er CTD efnaskiptagalli sem getur
lýst sér á marga vegu. Sérlega ógn-
vænlegt þykir að ungt fólk, áður
án einkenna, getur látist fyrir-
varalaust úr veikinni.
Sjúkdómurinn komst í hámæli
í Færeyjum í sumar þegar 25 ára
kona var greind með hann á föstu-
degi og boðuð í lyfjagjöf á mánu-
degi. Hún lést á sunnudagsmorgni.
Árið áður hafði frændi Halldóru,
21 árs gamall, orðið sama sjúk-
dómi að bráð.
Nú líta margir Færeyingar til
baka og spyrja sig hvort einhver
bráðkvaddur ættinginn hafi ef til
vill látist úr CTD. Frænka Hall-
dóru er í þessum hópi, því fyrir
utan fyrrgreind börn missti hún
hvítvoðung. Sú stúlka hefði verið
um fertugt í dag.
„Þetta er hræðilegt,“ segir Hall-
dóra. „Það var aldrei staðfest að
hún hefði verið með þennan sjúk-
dóm. Þetta hefur ekkert verið
kannað fyrr en núna.“
Halldóra þekkir dæmi um fólk
sem hefur verið greint með CTD en
hafði ekki vitað að nokkuð amaði
að því. „Þetta er rosalega mikið
áfall. En nú er þetta fólk komið á
lyf og líður þá miklu betur,“ segir
Halldóra. klemens@frettabladid.is
Óttast erfðasjúkdóm
og fer í skimun í dag
Færeyingur frá Sandey ætlar í blóðprufu vegna CTD á Landspítalanum í dag.
Frænka hennar missti tvö börn úr veikinni, þriðja barnið er veikt og tvö til við-
bótar bera veikina. Er fegin umfjölluninni því læknar hér þekktu ekki CTD.
HALLDÓRA STORÁ Halldóra er frá Skopun á Sandey, en á Sandey bera hlutfallslega
flestir sjúkdóminn í sér. Fólk getur verið einkennalaust alla ævi. Halldóra ætlar í
skoðun í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓLI KR.
Benedikt, verðið þið fyrir mikl-
um gróðurhúsaáhrifum?
„Nei, en við vitum að græna hliðin á
að snúa upp.“
Geymslur lögreglunnar eru yfirfullar af
búnaði til kannabisræktunar, hitalömp-
um og heilu frystiklefunum. Benedikt H.
Benediktsson hjá lögreglunni í Reykjavík
hefur umsjón með birgðunum.
DÓMSMÁL Ríkissaksóknari hefur
ákært Catalinu Mikue Ncogo fyrir
hagnýtingu vændis, mansal, frels-
issviptingu og ólögmæta nauðung.
Catalina er einnig ákærð fyrir
hótanir, fyrir að hafa hrækt á lög-
reglumann og tvær líkamsárásir.
Hún neitaði sök í öllum ákærulið-
unum fyrir Héraðsdómi Reykja-
ness, samkvæmt upplýsingum
Fréttablaðsins.
Catalina er enn í gæsluvarð-
haldi, þar sem talin er hætta á að
hún taki upp fyrri iðju. Hún hefur
áður verið dæmd í Héraðsdómi
Reykjaness í tveggja og hálfs árs
óskilorðsbundið fangelsi fyrir að
hafa haft viðurværi af umfangs-
miklu vændi fjölmargra kvenna
sem hún hélt úti í miðborg Reykja-
víkur. Þá var hún einnig dæmd
fyrir að hafa skipulagt og staðið
að innflutningi á 400 grömmum af
kókaíni til landsins frá Hollandi.
Hún var þá sýknuð af ákæru um
mansal. Tveimur dögum eftir að
hún var dæmd í byrjun desember
var hún handtekin aftur og hefur
setið inni síðan.
Dómari í héraðsdómi úrskurð-
aði í gær að þinghaldið nú yrði
lokað. Aðalmeðferð málsins var
ákveðin 12. og 15. mars næstkom-
andi. - jss
CATALINA MIKUE NCOGO Ákæran á hendur Catalinu er í átta liðum.
Catalina Mikue Ncogo aftur fyrir Héraðsdóm Reykjaness:
Ákærð fyrir mansal og vændi
ALÞINGI Efnahags- og skattanefnd
Alþingis hyggst kalla skilanefnd-
ir bankanna til fundar við sig
á föstudag og ræða samskipti
þeirra við skattrannsóknarstjóra.
Fram er komið í fjölmiðlum
að engin mál hafi verið send til
skattrannsóknar að frumkvæði
skilanefndanna. Þetta mál var
rætt við skattrannsóknarstjóra á
fundi efnahags- og skattanefndar
í gærmorgun. Helgi Hjörvar, for-
maður nefndarinnar, staðfesti við
Fréttablaðið að til stæði að nefnd-
in fundaði með skilanefndarfull-
trúum á föstudag. - pg
Efnahags- og skattanefnd:
Kallar skila-
nefndir fyrir
DÓMSMÁL Ríkissaksóknari hefur
ákært rúmlega tvítugan mann
fyrir að vera drukkinn á hesti
og hrækja síðan á lögregluvarð-
stjóra.
Maðurinn var á ferð á hestin-
um í Hallárdal við Hallá í Aust-
ur-Húnavatnssýslu í septemb-
er 2008. Hann er ákærður fyrir
að hafa verið svo ölvaður að
hann hafi ekki verið fær um að
stjórna hestinum örugglega.
Þegar lögregla hafði stöðv-
að ferð hans og var með hann
í lögreglubíl á leið á Blönduós
hrækti hann á lögregluvarðstjó-
ra. - jss
Ákærður af ríkissaksóknara:
Ölvaður á hesti
hrækti á löggu
ALÞINGI Venjuleg fjölskylda þarf
100.000 króna heildartekjur til að
standa undir hækkunum á bens-
ínverði undanfarið ár. Þetta stað-
hæfði Ásbjörn Óttarsson, Sjálf-
stæðisflokki, á Alþingi í gær.
Skattahækkanir um síðustu
áramót hefðu hækkað verð á
hverjum bensínlítra um 26 krón-
ur. 37 króna hækkun mætti að
auki rekja til þróunar á heims-
markaðsverði. Kostnaðarauk-
inn af þessum hækkunum fyrir
venjulega fjölskyldu væri 52.000
krónur á ári og til að eiga fyrir
því þurfi að vinna sér inn 100.000
krónur í heildarlaun. - pg
Hækkað bensínverð:
52.000 króna
útgjöld á ári
NÁTTÚRUHAMFARIR Alþjóðabjörg-
unarsveit Slysavarnafélagsins
Landsbjargar verður ekki send á
skjálftasvæðið í Chile. Ástæðan er
sú að of langt er liðið frá skjálft-
anum og fjarlægðir miklar, sam-
kvæmt tilkynningu á heimasíðu
Landsbjargar.
Evrópusambandinu barst form-
leg beiðni frá stjórnvöldum í Chile
um aðstoð eftir jarðskjálftann á
mánudag, um tveimur sólarhring-
um eftir að hann reið yfir. Beðið
var um færanleg sjúkrahús, vatns-
hreinsibúnað, samskiptabúnað
og sérfræðinga í að meta ástand
bygginga. Rústabjörgunarsveitir
frá nærliggjandi löndum eru á leið
á skaðasvæðið til aðstoðar. - shá
Alþjóðasveitin ekki send:
Of langt liðið
frá skjálftanum
SANTIAGO Í CHILE Eyðileggingin af
völdum jarðskjálftans, sem mældist 8,8
á Richter-kvarða, er gríðarleg.
NORDICPHOTOS/AFP
STJÓRNSÝSLA Aðeins var brugðist við einni af
fjórum ábendingum sem Ríkisendurskoðun
gerði vegna starfsemi efnahagsbrotadeildar
Ríkislögreglustjóra (RLS) í stjórnsýsluúttekt
árið 2006, samkvæmt eftirfylgni stofnunarinn-
ar sem upplýst var um í gær.
Alls voru gerðar fimmtán athugasemdir við
starfsemi Ríkislögreglustjóra í úttektinni, en
brugðist hefur verið við ellefu. Ríkisendurskoð-
un telur að áætlanagerð hafi verið bætt innan
deildarinnar, en öðrum ábendingum hafi ekki
verið sinnt.
Til dæmis var mælt með fjölgun starfsmanna
deildarinnar, sér í lagi fjölgun sérfræðinga á
sviði viðskiptafræði og fjármála. Einnig var
mælt með aukinni samvinnu við skattayfirvöld.
Ríkislögreglustjóri hefur ekki heldur brugð-
ist við ábendingu um að endurskoða hámarks-
aldur ökutækja lögreglunnar, og að gera lang-
tímaáætlanir um endurnýjun bílaflotans.
Ríkisendurskoðun gerði einnig úttekt á
Umhverfisstofnun árið 2006. Í kjölfarið var
því beint til umhverfisráðuneytisins að endur-
skoða löggjöf um stofnunina. Við því hefur ekki
verið brugðist. Brugðist hefur verið við öðrum
athugasemdum vegna stofnunarinnar. - bj
Ekki brugðist við athugasemdum um efnahagsbrotadeild RLS í stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar:
Starfsmönnum deildarinnar ekki fjölgað
ÚRBÆTUR Brugðist var við ellefu af fimmtán athuga-
semdum sem gerðar voru vegna embættis Haraldar
Johannessen ríkislögreglustjóra.
FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
Sjóræningjar ræna bílalest
Árás sómalískra ræningja, sem hingað
til hafa einbeitt sér að sjóránum,
á bílalest með hjálpargögn veldur
hjálparstofnunum áhyggjum. Þrír
flutningabílar og bílstjórar þeirra eru
í haldi ræningjanna. Sjóræningjar
hafa rænt birgðaflutningaskip en hafa
hingað til ekki rænt flutningabíla.
SÓMALÍA
SPURNING DAGSINS