Fréttablaðið - 03.03.2010, Blaðsíða 29

Fréttablaðið - 03.03.2010, Blaðsíða 29
MIÐVIKUDAGUR 3. mars 2010 5 Kynning Sjóvá veitir verkstæðum stjörnur Stjörnugjöf Sjóvár á að auðvelda viðskiptavinum að velja verkstæði og fullvissa þá um hámarksgæði í viðgerðum og þjónustu. Stjörnu- gjöfin er einnig hvati fyrir verkstæði að ráða fagmenntaða starfsmenn og taka upp vottað gæðakerfi BGS. Þegar bíleigandi verður fyrir tjóni vaknar sú spurning hvaða verkstæði séu best til þess fallin að sjá um viðgerðina. Ný stjörnuflokk- un Sjóvár auðveldar viðskiptavinum að finna gott verkstæði sem er traustsins vert. „Það að flokka verkstæði eftir gæðum í þjónustu og viðgerðum hefur verið í umræð- unni í fjölmörg ár,“ segir Guðmundur I. Þor- steinsson, forstöðumaður ökutækjatjóna Sjó- vár. Í þeirri deild starfa átta manns en þar fer í gegn allt ökutækjatjón viðskiptavina Sjóvár sem verður á Íslandi. „Markviss vinna við stjörnugjöfina hófst síðastliðið vor en þá var farið í að finna út hvaða kröfur ætti að setja á verkstæðin,“ segir Guðmundur og bætir við að aðalmarkmið stjörnugjafarinnar sé að auðvelda viðskipta- vinum val á verkstæði og auk þess hvetja verkstæðin til aukinnar fagmennsku. Stjörnugjöfin var kynnt verkstæðum og öðrum hagsmunaaðilum í haust, en góður skriður er kominn á málið nú. „Ég býst við að í lok vikunnar verði búið að stjörnuflokka tæplega tuttugu verkstæði,“ upplýsir Guð- mundur. Stjörnuflokkunin er mælanlegur saman- burður á verkstæðum og á að tryggja við- skiptavinum hámarksgæði á viðgerðum og þjónustu. Hún er auk þess gæðatrygging fyrir viðskiptavini Sjóvár og stuðlar að færri kvörtunum, bættum vinnubrögðum og betri viðgerðum. Einnig virkar hún sem hvati fyrir verkstæði til að ráða fagmenntaða starfs- menn. Verkstæði sem uppfylla kröfur Sjóvár fá úttekt og falla annaðhvort í þriggja eða fimm stjörnu flokk. „Þriggja stjörnu verkstæð- in eru fín verkstæði sem Sjóvá hefur haft góða reynslu af en eru ekki tilbúin, eða eru á leiðinni, til að fylla fimm stjörnu flokkinn,“ útskýrir Guðmundur. En hvað þarf verk- stæði að hafa til að bera, til að komast í fimm stjörnu flokk? „Þau verkstæði hafa vottað gæðakerfi Bíl- greinasambandsins umfram önnur verkstæði. Í því felst meðal annars að fagmenntaður meistari bílgreinarinnar sé ábyrgur fyrir við- gerðum, að tækjabúnaður uppfylli kröfur, að móttaka sé aðgreind frá verkstæði og leyfis- bréf séu sýnileg,“ segir Guðmundur og því til staðfestingar er gerð úttekt á starfseminni og þjónustu tvisvar á ári. Fyrsta fimm stjörnu verkstæði Sjóvár fékk viðurkenningu fyrir tveimur vikum og var það GB tjónaviðgerðir sem fékk þá viðurkenningu. Er það ótvíræður gæðastimpill fyrir GB tjóna- viðgerðir, að verða fyrst til. Öll stjörnuverk- stæði fá áberandi merkingu með fimm hvítum stjörnum á bláum grunni sem verður sýnileg- ur öllum viðskiptavinum ásamt viðurkenningu stjörnuflokkuninni til staðfestingar. Upplýsingar um stjörnuverkstæði Sjóvár má finna á www.sjova.is. Guðmundur afhendir forsvarsmönnum GB tjónaviðgerða fyrstu fimm stjörnurnar. Íslenskir fjallaleiðsögumenn hlutu starfsmenntaviðurkenningu Sam- taka ferðaþjónustunnar nýlega á Degi menntunar í ferðaþjónustu. Viðurkenninguna hlutu Fjalla- leiðsögumenn fyrir menntun jökla- og fjallaleiðsögumanna og að hafa með skýrri sýn lagt áherslu á mikil- vægi starfsmenntunar í allri starfsemi þeirra með það að markmiði að auka öryggi, starfsánægju, draga úr starfs- mannaveltu og síðast en ekki síst til að ná samkeppnisforskoti og auka arðsemi í rekstri fyrirtækisins með aukinni starfsmenntun. Fyrirtækið Íslenskir fjallaleiðsögu- menn var stofnað árið 1994. Markmið þess var að fara ótroðnar slóðir með innlenda sem erlenda ferðamenn, opna augu fólks fyrir fjallaferðum, stuðla að verndun viðkvæmrar nátt- úru og auka gæði og fagmennsku í leiðsögn. Nánari upplýsingar um félagið má nálgast á www.fjallaleidsogumenn.is. Fjallaleiðsögumenn hljóta viðurkenningu STARFSMENNTAVIÐURKENNING SAF VAR AFHENT Á DEGI MENNTUNAR. Á ferð um Hvannadalshnúk. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Um hundrað nýjar gerðir verða kynntar á alþjóðlegu bílasýning- unni í Genf sem hefst formlega á morgun og stendur til 14. mars. Þar má að venju sjá rándýrar glæsibifreiðar, ofursportbíla og furðulega hugmyndabíla en einn- ig verður áhersla lögð á breyttan efnahag bifreiðaeigenda. Bíla- framleiðendur leggja áherslu á nýja orkugjafa sem eiga að koma í staðinn fyrir hinn dýra bens- índropa. Í boði verða minni og sparneytnari bílar. Sýningin var fyrst hald- in árið 1905 en er nú haldin í áttugasta sinn. Í gegnum tíð- ina hefur þar litið dagsins ljós meirihluti farartækja heimsins. Litið er á sýninguna sem sam- ræðugrundvöll bílaframleiðenda heims enda þykir það kostur að Svisslendingar hafa engan bíla- iðnað sjálfir. Risið úr öskustónni Bílaiðnaður um allan heim hefur verið í sögulegri lægð síðastliðið ár. Á morg- un hefst áttugasta alþjóðlega bílasýningin í Genf sem margir vonast til að geti glætt iðnaðinn nýju lífi. Hugmynda- bíllinn Bert- one Pandion. Hann er byggður á 8C Compet- izione frá Alfa Romeo. Hugmyndabíllinn Honda 3R-C er rafmagnsbíll á þremur hjólum fyrir einn. Framtíðarhugmynd hönnuðanna er að hann muni nýtast í borgarumferðinni. Ökuþórinn Michael Schumacher kynnir nýjan Mercedes SLS AMG öryggisbíl fyrir Formúlu 1-kappaksturinn. NORDICPHOTOS/AFP Langflestar frumsýningar fóru fram í gær en þá fengu fjölmiðlar einir að vera á sýningunni. Sýningin sjálf verður ekki opnuð fyrr en á morgun. Hér er hulunni svipt af nýrri Honda CR-Z is. Mikill undirbúningur liggur að baki jafn stórri sýningu. Hér ryksugar kona sýningarsvæði ítalska Sbarro-bílsins.f
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.