Fréttablaðið - 03.03.2010, Page 36
3. MARS 2010 MIÐVIKUDAGUR8 ● fréttablaðið ● starfsmenntun
● NÁMSKEIÐ Í BYGG-
INGARIÐNAÐI Hjá Iðunni
fræðslusetri eru ýmis nám-
skeið í boði. Hlutverk Iðunnar
er aðallega að bæta hæfni fyr-
irtækja og starfsmanna í bíl-
bygginga- og málmiðngrein-
um, prentiðnaði og matvæla-
og veitingagreinum. Innan
Iðunnar er boðið upp á nám-
skeið fyrir sértæka hópa, eins
og þá sem starfa við bygg-
inga- og mannvirkjagerð.
Dæmi um þau námskeið sem
eru í boði fyrir þann hóp eru
Ábyrgð byggingastjóra, Lagnir
í sumarhús og Tilboðsgerð.
Nýttu kraftinn er námskeið sem
miðar að því að hvetja atvinnulausa
einstaklinga til að nýta tíma sinn og
kraft á jákvæðan og uppbyggilegan
hátt. Rauði þráðurinn er að ganga
til hvers dags sem vinnudagur væri
og gera sig þannig samkeppnis-
hæfari í atvinnuleitinni. Farið er
yfir markvissa skráningu tímans
sem nemur að minnsta kosti fjór-
um tímum á hverjum virkum degi,
hvatt til fjölbreytilegra verkefna
og útvegaðar vottanir viðurkennd-
ar af atvinnulífinu. VR býður fé-
lagsmönnum sínum að sækja nám-
skeiðið sér að kostnaðarlausu, sem
þær Sigríður Snævarr og María
Björk Óskarsdóttir viðskiptafræð-
ingur hafa þróað. Sjá wwww.nyttu-
kraftinn.is. Sigríður Snævarr og María Björk Óskarsdóttir þróuðu námskeiðið. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Samkeppnishæfari
í atvinnuleitinni
● NÁMSSAMNINGUR
Nýlega var undirritaður samn-
ingur milli Starfsafls og End-
urmenntunar Háskóla Íslands
sem á að að greiða leið al-
mennra starfsmanna í atvinnu-
lífinu á höfuðborgarsvæðinu
að námskeiðum Endurmennt-
unar. Starfsafl er starfsmennt
Samtaka atvinnulífsins og
Flóabandalagsins sem varð
til í tengslum við kjarasamn-
inga vorið 2000. Eitt af mark-
miðum þess er að hafa frum-
kvæði að þróunarverkefnum í
starfsmenntun enda símennt-
un starfsmanna lykill fyrirtækja
að aukinni framleiðni.
Heimild/www.starfsafl.is
● FYRIR VINNUSTAÐI
OG HÓPA StjórnMennt
Opna háskólans leggur metn-
að í árangursríkar þekkingar-
lausnir fyrir vinnustaði. Unnið
er með fjölda fyrirtækja, stofn-
ana og félagasamtaka til að
gera góða hluti enn betur.
Meðal þess sem er í boði er
Þekkingarsetur og námskeiða-
lotur, námskeið á vinnustöð-
um, opin stjórnendanám-
skeið og fleira. Viðfangsefni
námskeiða og lausna Stjórn-
menntar eru sótt til sérfræð-
inga Háskólans í Reykjavík og
fleiri aðila. Sjá www.opnihas-
kolinn.is.