Fréttablaðið - 06.03.2010, Qupperneq 46
6. 4
BÖRNIN vilja stundum gleymast í stór-
um veislum fullum af brauðtertum og
marengsbombum. Gott er að vera með
eina súkkulaðiköku sem ætluð er krökkunum.
Þegar mörg okkar erum að mæta
til vinnu og skóla á morgnana eru
nunnurnar í Karmelklaustrinu í
Hafnarfirði búnar að stunda bæna-
hald í tvo til þrjá tíma. Þær taka
daginn snemma. Eftir morgunverð
skiptast svo á vinna og bænir fram
á kvöld. „Aðalhlutverk okkar er
bænahald en í svona íhugun-
arklaustrum er dag-
legt líf líka
tengt handa-
vinnu,“ segir
systir Agnes.
Útsaum segir
hún algenga iðju
í nunnuklaustr-
um en hjá systr-
unum í Hafnar-
firði hafi skreytingar á kerti, kort
og bækur fest sig í sessi og fyrir
fermingar og aðrar athafnir gangi
fólk að því vísu. Með aga sé auð-
velt að nota handavinnutímana til
að biðja og hugleiða. „Bænir okkar
fylgja alltaf börnum sem fá hluti
frá okkur,“ segir hún.
Systir Agnes hefur dvalið á
Íslandi í nær 26 ár og kveðst
hafa kysst hina íslensku
jörð um leið og hún steig
úr flugvélinni. Hún er
pólsk að uppruna eins
og hinar ellefu syst-
urnar í klaustrinu en
tekur fram að flest-
ar séu þær íslensk-
ir ríkisborgarar.
„Við lifum fyrir
Ísland og óskum
öllum Íslendingum
blessunar Guðs.“
gun@frettabladid.is
Við lifum fyrir Ísland
Skrautrituð kort og blómum prýdd kerti bera handbragði Karmelsystranna í Hafnarfirði fagurt vitni. Ekki
spillir að kærleikur þeirra og bænir fylgja hverjum hlut sem frá þeim fer. Klausturbúðin geymir gersemar.
Systir Kristín og systir Agnes bak við gesta-
bækur og kort úr Klausturbúðinni.
Fermingarkertin frá nunnunum bera
ljósin inn í framtíðina.
Mirjam kann með málarapensilinn að fara. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Gaman er að varðveita
skeytin í svona fallega
skreyttri möppu.
H O M E F A S H I O N
Zeus heildverslun - Sia
Austurströnd 4 • 170 Seltjarnarnes
Laugavegi 87 • sími: 511-2004
FATAEFNI
NÝ SEND
ING!!
ULLAREF
NI, JERSE
Y, FLAUEL
, SAMKVÆ
MISEFNI
Reykjavík: Mörkin 4, s: 533 3500 Akureyri: Hofsbót 4, s: 462 3504
FATAEFN
I: JERSEY
, SATIN,
BLÚ DUR
, LAUEL
O.FL.
Opið virka daga 10–18 og laugardaga 11–16
R j vík: Mörkin 4, s: 533 3500 Akureyri: Hofsbót 4, s: 462 3504