Fréttablaðið - 20.03.2010, Blaðsíða 2
2 20. mars 2010 LAUGARDAGUR
Þórður, hefurðu mikið út á
tónlist föður þíns að setja?
„Ég er nú ekki útsettur fyrir svoleiðis
fordómum.“
Þórður Magnússon, sonur Megasar, hefur
tekið að sér að útsetja tónlist föður síns
fyrir strengjakvintett.
Bjóðum heildarlausnir þegar endurnýja á góleppi
í stigagöngum í ölbýlis- og sambýlishúsum.
Taktu upp símann eða sendu okkur línu og við
göngum í málið.
Ármú la 32 · 108 Reyk j a v í k · S ím i 533 5060 · Fax 533 5061 · t epp i@stepp · www. s t epp . i s
Ó
!
·
1
3
1
3
6
teppi@stepp.is
VIÐSKIPTI Leikskólinn Vesturbrú
7 í Garðabæ hefur verið settur
í formlegt söluferli, sem hefst á
mánudag. Það er fyrirtækjaráð-
gjöf Íslandsbanka sem sér um söl-
una fyrir Miðengi, eignaumsýslu-
félag bankans.
Leikskólinn er í eigu fasteigna-
félagsins Hafnarslóðar, sem var
eitt dótturfélaga fasteignafélags-
ins Nýsis. Hann var reistur árið
2004 og var bygging hans fyrsta
einkaframkvæmdin þar sem
íslenskt sveitarfélag bauð út í
einu lagi byggingu skólahúsnæðis,
rekstur þess og innra starf skól-
ans. Nýsir átti að reka leikskólann
í aldarfjórðung en fór í þrot
haustið 2008. - jab
Eignir í sölu hjá Íslandsbanka:
Leikskóli til sölu
DÓMSMÁL Karlmaður á þrítugs-
aldri hefur verið ákærður fyrir
að hafa barnaklám í vörslu
sinni. Ríkissaksóknari ákærir
manninn.
Í ákærunni er honum gefið að
sök að hafa verið með 46 ljós-
myndir og sjö hreyfimyndir á
hörðum diski í fartölvu sinni.
Myndirnar sýndu börn á kyn-
ferðislegan og klámfenginn hátt.
Maðurinn neitaði sök við þing-
festingu í Héraðsdómi Suður-
lands í gær.
- jss
Neitaði sök fyrir dómi:
Ákærður fyrir
barnaklám
MENNTAMÁL Bæði Fjölbrautaskólinn
í Ármúla og Verzlunarskóli Íslands
halda áfram að kenna grunnskóla-
nemum í fjarnámi þrátt fyrir
ákvörðun menntamálaráðuneytisins
um að afnema fjárveitingar til þessa
liðar frá síðustu áramótum.
Samhliða námi í grunnskóla hafa
nemar í efstu bekkjum þar getað
stundað nám á framhaldsskóla-
stigi og þannig meðal annars flýtt
fyrir framhaldsnáminu þegar þar
að kemur.
„Vorið 2008 voru 1.460 grunn-
skólanemendur í tíunda bekk líka í
áföngum í framhaldsskóla, ýmist í
fjarnámi eða með því að ganga í við-
komandi framhaldsskóla eða að læra
í sínum heimaskóla eftir kennslu-
áætlun frá einhverjum framhalds-
skóla. Sú kennsla sem fór fram á
kostnað framhaldsskólanna var felld
niður,“ útskýrir Sölvi Sveinsson, hjá
framhaldsskólasviði menntamála-
ráðuneytisins. Með þessu eigi að
spara 120 milljónir króna.
Að sögn Sölva er mikill meirihluti
grunnaskólanema í fjarnámi skráð-
ur í Fjölbrautaskólann í Ármúla,
Verzlunarskóla Íslands eða Verk-
menntaskólann á Akureyri.
„Við ákváðum að að skipta ekki
um plan á miðjum vetri heldur leyfa
þeim krökkum sem voru hjá okkur,
og jafnvel fleirum frá sömu skólum,
að koma inn eins og þau vildu,“ segir
Sigurlaug Kristmannsdóttir, fjar-
námsstjóri Verzlunarskóla Íslands.
Breytingin sé sú að nú greiði grunn-
skólanemendur sama gjald og aðrir
fyrir fjarnám. Það sé um 13 þúsund
krónur á nemanda fyrir þriggja
eininga nám með innritunargjaldi.
Þessi upphæð dugi þó alls ekki fyrir
kostnaði.
Sigurlaug segir að á þessari önn
hafi niðurskurðurinn í fjarnámi
Verzlunarskólans í heild aðeins verið
fimm prósent en ekki fimmtíu pró-
sent eins og menntamálaráðuneyt-
ið mælti fyrir um. Á næstu haust-
önn verðum við því nánast með ekki
neitt fjarnám því þá erum við búin
með okkar kvóta,“ segir hún.
Steinunn Hafstað hjá fjarnáms-
deild Fjölbrautaskólans í Ármúla
segir að þar hafi menn talið sig verið
búna að gera samninga við grunn-
skólana út skólaárið. „Þannig að við
tókum við nemendum fram á vorið.
Síðan á eftir að koma í ljós hvort við
fáum greitt fyrir það,“ segir Stein-
unn sem kveður líklegt að skólinn
innheimti hámarksgjald af grunn-
skólanemum frá næsta hausti. Það
verði allt að þrjátíu þúsund krónur
með innritunargjaldi fyrir þriggja
eininga nám.
Ingimar Árnason, kennslustjóri
fjarkennslu Verkmenntaskólans á
Akureyri, segir að þar hafi öll fjar-
kennsla verið skorinn niður um
helming um áramót. „Og við fórum
einfaldlega að skipun ráðuneytisins
og innrituðum enga grunnskólanem-
endur fyrir þessa önn,“ segir Ingi-
mar. Hann kveður þessa nmendur
þó hafa fengið inni í fjarnámsdeild-
um skólanna sem enn halda því úti.
gar@frettabladid.is
Fá enn fjarnám þótt
ráðuneyti vilji skera
Verzlunarskólinn og Fjölbraut í Ármúla hleypa grunnskólanemum í fjarnám
þótt menntamálaráðuneytið sé hætt að veita fé í verkefnið. Verzlunarskólinn
segir peninga ársins klárast í haust og boðar niðurfellingu nær alls fjarnáms.
GRUNNSKÓLANEMENDUR Menntamálaráðuneytið þarf að skera niður framlög og
skipar framhaldsskólum að hætta að veita áhugasömum grunnskólanemum aðgang
að kennslu á framhaldsskólastigi. Myndin er af nemendum í samræmdum prófum í
Hlíðaskóla. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SUNNA HAFSTAÐ SÖLVI SVEINSSON
VERÐLAUN Óskar Bergsson, formaður
borgarráðs, veitti hönnuðunum
verðlaunin og prófaði að sjálfsögðu
handklæðið. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
MENNING Vöruhönnuðirnir Frið-
gerður Guðmundsdóttir og Krist-
ín Birna Bjarnadóttir hlutu í
gær 600 þúsund króna verðlaun í
hönnunarsamkeppni um minja-
grip fyrir Reykjavíkurborg. Þær
hönnuðu sápu og handklæði.
Verðlaunahönnunin er köll-
uð „Pure Reykjavík towel/soap“,
og vísar í sundlaugarmenningu
Reykvíkinga. Sápan er eins og
heitur pottur í laginu og hand-
klæðið mjög óhefðbundið í formi
svo hægt er að sveipa því um sig
eins og sjali.
Hönnuðirnir eiga von á því að
minjagripirnir verði komnir í
sölu í sumar. - bj
Veitt hönnunarverðlaun:
Hönnuðu sápu
og handklæði
LÖGREGLUMÁL Brotist var inn í sjö
bifreiðar við Leynisbrún, Suður-
vör og Staðarhraun í Grindavík í
fyrrinótt.
Í öllum tilfellum var brotin hlið-
arrúða í bifreiðunum og GPS-stað-
setningartækjum af Garmin-gerð
stolið. Úr einni bifreiðinni var
stolið Canon Ixus myndavél auk
lauslegra muna.
Lögreglan á Suðurnesjum biður
alla, sem geta veitt upplýsingar
um þessi mál, að hafa samband
við lögregluna í síma 420 1800. - jss
Fingralangir í Grindavík:
Þjófar brutust
inn í sjö bíla
Rannsaka festur í Faxaflóa
Fornbátafélag Íslands hefur óskað
eftir styrk frá sveitarfélögum vegna
verkefnis sem hefur það markmið að
kanna festur veiðarfæra í Faxaflóa.
Verkefnið ber heitið „Flök og festur“.
SJÁVARÚTVEGUR
EFNAHAGSMÁL Þær aðgerðir sem
ríkisstjórnin kynnti í vikunni
vegna skuldavanda heimilanna
eru á engan hátt fullnægjandi til
að lina þjáningar, bæta það tjón og
forsendubrest sem heimili lands-
ins hafa orðið fyrir, að mati Hags-
munasamtaka heimilanna.
Ekkert í aðgerðum þriggja rík-
isstjórna hefur falið í sér aðgerð-
ir til að leiðrétta óréttláta hækkun
höfuðstóls lána heimilanna, segir
í ályktun samtakanna. Aðgerðir
stjórnarinnar leiði fráleitt til sátta
í samfélaginu eða enduruppbygg-
ingar hagkerfisins.
Hagsmunasamtök heimilanna
fagna stofnun embættis umboðs-
manns skuldara og þeim úrbótum
á greiðsluaðlögunarferlinu sem því
muni fylgja. Hugmyndir stjórn-
valda um lækkun dráttarvaxta,
þak á innheimtukostnað, niður-
fellingu skattkrafna og fleira séu
of óljósar til að hægt sé að fjalla
um þær í bili.
Samtökin telja það vægast sagt
aumt úrræði að gera fólki kleift
að búa áfram í húsi sem það hafi
misst á nauðungarsölu. Raunveru-
lega úrræðið hefði verið að koma í
veg fyrir nauðungarsölur. - bj
Hagsmunasamtök heimilanna gagnrýna aðgerðir stjórnvalda vegna skuldavanda:
Á engan hátt fullnægjandi
AÐGERÐIR Stjórnvöld kynntu aðgerðir
vegna skuldavanda heimilanna í
vikunni. Aðgerðirnar eru á engan hátt
fullnægjandi, að mati Hagsmunasam-
taka heimilanna. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á Suðurnesjum og toll-
gæslan á Keflavíkurflugvelli hafa tekið þrjátíu
og átta manns með fíkniefni nú frá áramótum og
fram að miðjum mars. Samtals hefur verið tekið á
fimmta kíló af fíkniefnum á sama tíma.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suð-
urnesjum hefur langmest verið tekið af amfetam-
íni, eða rúm 2,5 kíló. Þá eru ótaldir 870 millilítrar
af fljótandi amfetamíni, sem tollgæsla stöðvaði
á Keflavíkurflugvelli í lok janúar eins og Frétta-
blaðið greindi frá í gær. Samkvæmt matsgerð
frá Rannsóknarstofu í lyfja- og eiturefnafræði
Háskóla Íslands hefði verið hægt að framleiða tæp
sex kíló af amfetamíni úr vökvanum. Næstmest
hefur verið tekið af kókaíni. Frá áramótum hafa
smyglarar verið teknir með samtals 1,5 kíló af því
efni. Miklu minna fer fyrir innflutningi á kanna-
bisefnum, eins og sjá má á töflunni hér til hliðar.
Af þessum þrjátíu og átta manna hópi fíkniefna-
smyglara eru tuttugu og fimm með íslenskt ríkis-
fang en þrettán með ríkisfang erlendis.
- jss
Annir hjá tollgæslu og lögreglunni á Suðurnesjum frá áramótum:
Tóku 38 fíkniefnasmyglara
HALDLÖGÐ FÍKNIEFNI Á SUÐURNESJUM
01.01.2010 - 12.03.2010
Efni Magn í gr
Hass 203,09
Marijúana 75,60
Tóbaksblandað 13,32
Amfetamín 2522,00
Kókaín 1520,80
Sveppir 3,42
Kannabislauf 330,16
Heildarmagn á árinu 4.338,23 grömm
Efni í stykkjatali Stk.
Steraambúlur stk. 1
Kannabisplöntur 235
LSD 1
Heildarmagn á árinu 237 stykki
Efni í vökvarformi Millilítrar
Amfetamín 870 ml (5,98 kg)
Ríkisfang:
Íslendingar 25
Útlendingar 13
STJÓRNSÝSLA Sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðuneytið ætlar að
grípa til ráðstafana svo hrefnu-
kjöt verði ekki aftur flutt til
Evrópuríkis. Íslenskt fyrirtæki
seldi 250 kíló af hrefnukjöti til
Lettlands í janúar, í trássi við
alþjóðasamninga.
Alþjóðleg dýraverndarsamtök
vöktu athygli á málinu og studdust
við upplýsingar á vef Hagstof-
unnar. Jafnframt bentu samtökin
á að hvalmjöl hefði verið selt til
Danmerkur, en það er líka bann-
að. Þannig var hins vegar ekki í
pottinn búið. Fiskimjöl sem þang-
að var selt var fyrir mistök skráð
hvalmjöl í tollskýrslu. Í tilkynn-
ingu frá ráðuneytinu segir að Hag-
stofan ætli að leiðrétta upplýsing-
arnar á vef sínum 31. mars. - bþs
Hvalmjölið reyndist fiskimjöl:
Tekið fyrir frek-
ari hrefnusölu
SPURNING DAGSINS