Fréttablaðið - 20.03.2010, Qupperneq 4
4 20. mars 2010 LAUGARDAGUR
KÖNNUN Meirihluti þeirra sem
afstöðu tóku í skoðanakönnun
Fréttablaðsins vill að þjóðin fái
að greiða atkvæði um framtíðar-
skipulag íslenska fiskveiðistjórn-
unarkerfisins.
Alls sögðust 60,3 prósent þeirra
sem afstöðu tóku vilja þjóðarat-
kvæðagreiðslu um þetta umdeilda
mál, en 39,7 prósent vildu ekki
atkvæðagreiðslu.
Mikill munur var á afstöðu þátt-
takenda eftir stuðningi við stjórn-
málaflokka. Um 72 prósent þeirra
sem sögðust styðja Samfylkinguna
eða Vinstri græna voru fylgjandi
þjóðaratkvæðagreiðslu um fram-
tíð kvótakerfisins en 28 prósent
voru því andvíg. Lítill munur var á
afstöðu stuðningsmanna flokkanna
tveggja.
Þá sögðust 46 prósent stuðn-
ingsmanna Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks fylgjandi þjóð-
aratkvæðagreiðslu um þetta mál,
en 54 prósent vildu ekki að málið
færi fyrir þjóðaratkvæði. Óveru-
legur munur var á afstöðu stuðn-
ingsmanna flokkanna tveggja.
Um 40 prósent þeirra sem þátt
tóku í könnuninni vildu ekki gefa
upp stuðning við ákveðinn stjórn-
málaflokk, eða voru óviss hvaða
flokk þau myndu styðja. Af þess-
um hópi sögðust ríflega 62 prósent
fylgjandi þjóðaratkvæðagreiðslu,
en 38 prósent voru andvíg.
„Þetta sýnir að vilji þjóðarinn-
ar er að þetta mál fari í þjóðarat-
kvæðagreiðslu. Þjóðin vill fá að
ráða hver verða örlög þessa kerf-
is,“ segir Þórður Már Jónsson, for-
maður Þjóðareignar, samtaka um
auðlindir í almannaþágu. Samtökin
hafa barist fyrir því að málið fari í
þjóðaratkvæðagreiðslu.
„Ef menn ætla í slíka þjóðar-
atkvæðagreiðslu er nauðsynlegt
að skilgreina nákvæmlega hvað
á að kjósa um,“ segir Friðrik J.
Arngrímsson, framkvæmdastjóri
Landssambands íslenskra útvegs-
manna. Málið sé afar flókið og erf-
itt að setja upp skýra kosti til að
kjósa á milli.
„Almennt tel ég að það væri
mjög gott ef við gætum innleitt
þjóðaratkvæðagreiðslur í meira
mæli, og þá er í sjálfu sér ekkert
undanskilið. Svo hefur það bara
sínar afleiðingar sem ákveðið er,
hvort sem er af þingi eða þjóð,“
segir Friðrik.
Óverulegur munur var á svör-
um þátttakenda í könnuninni eftir
kynjum. Tæplega 59 prósent karla
en 62 prósent kvenna vildu þjóðar-
atkvæðagreiðslu um málið.
Hringt var í 800 manns fimmtu-
daginn 18. mars. Þátttakendur
voru valdir með slembiúrtaki úr
þjóðskrá. Svarendur skiptust jafnt
eftir kyni, og hlutfallslega eftir
búsetu og aldri. Spurt var: Vilt þú
að fram fari þjóðaratkvæðagreiðsla
um framtíðarskipulag fiskveiði-
stjórnunarkerfisins? Alls tóku 86,9
prósent afstöðu til spurningarinnar.
brjann@frettabladid.is
Þetta sýnir að vilji þjóðar-
innar er að þetta mál fari
í þjóðaratkvæðagreiðslu. Þjóðin
vill fá að ráða hver verða örlög
þessa kerfis.
ÞÓRÐUR MÁR JÓNSSON
FORMAÐUR ÞJÓÐAREIGNAR
Já
Nei
Vilt þú að fram fari þjóðarat-
kvæðagreiðsla um framtíðarskipu-
lag fiskveiðistjórnunarkerfisins?
Allir
39,7%
60,3%
Stjórnarflokkarnir Stjórnarandstaðan
Eftir stuðningi við stjórnmálaflokka.
72% 28% 46
%
54%
Samkvæmt skoðanakönnun
Fréttablaðsins 18. mars 2010
Framtíð kvótakerfisins
Meirihluti vill kjósa um
framtíð kvótakerfisins
Sex af hverjum tíu vilja að fram fari þjóðaratkvæðagreiðsla um kvótakerfið. Stuðningurinn er mestur
meðal stuðningsmanna stjórnarflokkanna. Um 46 prósent sjálfstæðismanna vilja þjóðaratkvæðagreiðslu.
HJÁLPARSTARF ABC-barnahjálp
heldur fyrsta ABC-daginn
hátíðlegan í Smáralind í dag.
Markmiðið er að kynna starf
ABC-barnahjálpar, afla nýrra
stuðningsforeldra og safna fé til
styrktar götubarnastarfi á Ind-
landi og fleiri starfslöndum ABC.
Dagurinn hefst í World Class,
Laugum, þar sem hægt verður að
hlaupa fyrir ABC á milli klukkan
níu og tólf. Kílómetrinn verður
seldur á 500 krónur sem renna
óskiptar til ABC.
Síðan verður dagskrá í Vetrar-
garðinum í Smáralind þar sem
fjöldi listamanna treður upp. - sh
ABC-dagurinn í Smáralind:
Götubörn á
Indlandi styrkt
MENNTAMÁL Háskólinn í Reykja-
vík opnar nýbyggingu sína í
Nauthólsvík fyrir almenningi í
dag á hinum árlega HR-degi.
Á HR-deginum verður meðal
annars hægt að nálgast skatta-
ráðgjöf frá endurskoðunarfyrir-
tækinu Deloitte, fara í skoðunar-
ferð um húsið, læra samningastíl
og fimleika. Eðlisfræðinemar
munu halda gagnvirka sýningu
þar sem þeir bregða á leik með
rafmagn.
Dagskráin hefst klukkan níu
árdegis og stendur til fjögur. - sh
HR-deginum fagnað:
Rafmagn og
fimleikar í HR
BANDARÍKIN, AP Bandarísk kona,
Colleen LaRose, lýsti sig saklausa
af ákærum fyrir dómstól í Phila-
delphia á
fimmtudag. Hún
er sökuð um að
hafa átt hlut að
áformum um að
aðstoða hryðju-
verkamenn og
fremja morð
í öðru landi,
fyrir að ljúga að
alríkislögregl-
unni FBI og stela vegabréfi fyrr-
verandi kærasta síns.
LaRose, sem hefur kallað sig
Jihad Jane, var handtekin í Banda-
ríkjunum síðasta haust, eftir að
hafa verið iðin á netinu við að afla
hryðjuverkamönnum stuðnings.
Handtakan komst þó ekki í fréttir
fyrr en sex manns, sem hún hefur
haft tengsl við, voru handteknir á
Írlandi í síðustu viku fyrir áform
um að ætla að myrða sænskan
skopmyndateiknara. - gb
„Jihad Jane“ neitar sök:
Sögð hafa hvatt
til hryðjuverka
COLLEEN LAROSE
KÚBA Undanfarna daga hefur hópur
kvenna á Kúbu krafist þess að synir
þeirra, eiginmenn og aðrir ástvinir
verði látnir lausir úr fangelsi. Þeir
voru handteknir fyrir sjö árum fyrir
andóf gegn stjórnvöldum.
Konurnar hafa efnt til mótmæla-
aðgerða í höfuðborginni Havana
daglega síðan á mánudag, en á
fimmtudag voru sjö ár liðin frá því
mennirnir voru handteknir.
Þann dag mættu jafnframt hundr-
uð stuðningsmanna stjórnarinnar til
leiks, umkringdu konurnar og gerðu
hróp að þeim en leyfðu þeim þó að
halda áfram göngu sinni. Lögreglu-
menn stóðu einnig vörð um konurn-
ar til að tryggja að þær kæmust
ferða sinna.
Andófsmennirnir handteknu
eru 75 og sitja allir enn í fangelsi.
Þeir voru handteknir þegar stjórn
Fidels Castro barði niður mótmæla-
öldu, sem stjórnin sagði vera runna
undan rifjum Bandaríkjanna.
Einn andófsmannanna, Orlando
Zapata Tamayo, lést í síðasta mán-
uði eftir langt hungurverkfall. Lát
hans vakti hörð viðbrögð á Vestur-
löndum. Evrópuþingið hefur for-
dæmt stjórnina vegna láts hans og
nú hefur hópur mennta- og lista-
manna á Vesturlöndum, þar á meðal
spænski leikstjórinn Pedro Almad-
ovar, efnt til undirskriftasöfnunar
gegn Kúbustjórn. - gb
Mótmæli hvítklæddu kvennanna á Kúbu halda áfram:
Vilja syni og eiginmenn lausa
UMKRINGDAR Stuðningsmenn Kúbu-
stjórnar gerðu hróp að hvítklæddu
konununum á fimmtudag. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
AUÐLIND Erfitt er að skilgreina nákvæmlega hvað á að kjósa um í þjóðaratkvæða-
greiðslu, að mati Friðriks J. Arngrímssonar, framkvæmdastjóra LÍÚ.
FRÉTTABLAÐIÐ/JÓN SIGURÐUR
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
20°
18°
14°
7°
13°
13°
8°
8°
22°
13°
20°
21°
26°
6°
17°
18°
3°
Á MORGUN
8-15 m/s, hvassara syðst.
MÁNUDAGUR
8-13 m/s.
4
3
6
4
5
2
0
0
0
0
0
13
5
6
8
5
4
5
7
3
7
6
3
4
-2
0
-1
3
4
0 -2
-1
HVESSIR SYÐRA
Það verður fínt
veður á landinu
framan af degi
en undir kvöld
hvessir heldur við
suður ströndina og
á morgun verður
víða fremur stífur
vindur en hvasst
eða allhvasst
sunnan og vestan
til. Mánudagurinn
verður svipaður en
þá léttir til suðvest-
anlands.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is
GENGIÐ 19.03.2010
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
227,0279
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
126,20 126,80
191,15 192,07
171,23 172,19
23,010 23,144
21,486 21,612
17,693 17,797
1,3939 1,4021
192,81 193,95
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
KÆLISKÁPA
TILBOÐ