Fréttablaðið - 20.03.2010, Síða 6
6 20. mars 2010 LAUGARDAGUR
LÖGREGLUMÁL Nýir möguleikar
munu skapast fyrir afbrotamenn
í því erfiða efnahagsástandi og
mikla atvinnuleysi sem orðið
hefur hér í kjölfar hruns íslenska
fjármálakerfisins.
Þetta er niðurstaða greiningar-
deildar Ríkislögreglustjóra sem
sent hefur frá sér útdrátt úr nýju
hættumati. Þar segir enn frem-
ur að þetta ástand muni á næstu
árum setja mark sitt á þá skipu-
lögðu glæpastarfsemi sem haldið
er uppi hér á landi.
Greiningardeild segir liggja
fyrir að skipulagt vændi með
aðkomu þriðja aðila sem hefur
ábata af starfseminni sé að fær-
ast í vöxt hér á landi. Gera beri
ráð fyrir að mansalsmál og skipu-
lagt vændi verði fyrirferðarmeira
á verkefnaskrá lögreglunnar.
Fyrirliggjandi upplýsingar bendi
til þess að mansal sé að festast
hér í sessi, sem og önnur skipu-
lögð brotastarfsemi.
„Vísbendingar eru um að menn
búsettir hér, Íslendingar eða
erlendir ríkisborgarar, komi að
þessum skipulagða vændisinn-
flutningi, ýmist sem „einyrkjar“
eða í samvinnu við erlenda glæpa-
hópa,“ segir í hættumatinu.
„Grunur um mansal á Íslandi
hefur löngum verið tengdur nekt-
ardansstöðum og vændi,“ segir
enn fremur. „Efnahagsörðugleik-
ar eru líklegir til að ýta undir
slíka starfsemi. Verslun með fólk,
einkum konur, og smygl á fólki er
ábatasöm starfsemi. Mat glæpa-
hópa er almennt það, að slík starf-
semi feli ekki í sér mikla áhættu
og má ætla að þessi tegund
glæpastarfsemi verði umfangs-
meiri. Þessi starfsemi tengist
oftar en ekki fíkniefnaverslun og
skjalafalsi.“
Varðandi fíkniefnaafbrot hefur
greiningardeild upplýsingar um
að fíkniefnasmyglarar telji sig
ekki eiga í teljandi erfiðleikum
með að komast yfir erlendan
gjaldeyri. Með verðfalli á fast-
eignum, fyrirtækjum og ýmsum
lausamunum sé hætta á því að
gróða af fíkniefnaviðskiptum
verði í auknum mæli varið til
fjárfestinga hér. Á þann máta
geti glæpamenn eða hópar falið
starfsemi sína á bak við löglegan
atvinnurekstur sem auki þá enn
frekar möguleika þeirra á fíkni-
efnainnflutningi og peninga-
þvætti.
Loks hefur greiningardeild upp-
lýsingar um að útlendingar hér,
einkum aðflutt verkafólk, sæti í
einhverjum tilvikum fjárkúgun,
oft af hendi samlanda.
Sé þá viðkomandi gert að greiða
gjald fyrir að hafa fengið vinnu.
Einnig sé handrukkun beitt við
innheimtu hefðbundinna skulda,
þar sem viðtekin úrræði hafi ekki
skilað árangri. jss@frettabladid.is
Hrunið skapar tæki-
færi fyrir brotamenn
Erfitt efnahagsástand og atvinnuleysi mun setja mark sitt á þá skipulögðu
glæpastarfsemi sem haldið er uppi hér á landi. Því fylgir að nýir möguleikar
munu skapast fyrir afbrotamenn, segir greiningardeild Ríkislögreglustjóra.
LÖGREGLAN Verkefnum lögreglu vegna ýmissa þátta skipulagðrar glæpastarfsemi
mun fjölga á næstu árum, samkvæmt hættumati greiningardeildar Ríkislögreglu-
stjóra.
LÖGREGLUMÁL „Ég á von á að tillög-
ur um umgjörð forvirkra rannsókn-
arheimilda lögreglu verði skoðað-
ar í tengslum við þá vinnu sem er
að hefjast við aðgerðaáætlun gegn
skipulagðri glæpastarfsemi.“
Þetta segir Ragna Árnadóttir
dómsmálaráðherra spurð um stöðu
slíkra heimilda. Forvirkar rann-
sóknarheimildir heimila lögreglu
að hefja rannsókn áður en brot eru
framin með það að markmiðið að
koma í veg fyrir afbrot.
Hún undirstrikar að ljóst sé að
löggjafinn þurfi einnig að ljá mál-
inu brautargengi. Sjálf kveðst hún
hlynnt auknum rannsóknarheimild-
um lögreglu en fara þurfi vandlega
yfir forsendur þeirra.
„Það þarf til að mynda að skoða í
hvaða tilvikum heimila ætti slíkar
rannsóknir og hvernig eftirliti með
notkun heimildanna yrði háttað svo
eitthvað sé nefnt,“ segir ráðherra.
Spurð álits um nýtt hættumat
greiningadeildar ríkislögreglu-
stjóra segir ráðherra þær upplýs-
ingar sláandi, þótt ekki séu nýjar
af nálinni, að félagar í MC Ice-
land stefni að fullri aðild að Hells
Angels.
„Það finnast mér afar slæm tíð-
indi. Þá finnast mér alvarlegar þær
fregnir að skipulegt vændi fari
hér vaxandi, svo og að mansals-
mál verði fyrirferðameiri á verk-
efnaskrá lögreglu. Af hættumatinu
almennt má ráða að verkefni lög-
reglu eru ærin og fara síst minnk-
andi. Þetta er einfaldlega æ flókn-
ara afbrotaumhverfi sem lögreglan
þarf að fást við.“ -jss
Dómsmálaráðherra segir lögreglu þurfa að fást við æ flóknara afbrotaumhverfi:
Vill auka rannsóknarheimildir
RAGNA ÁRNADÓTTIR Dómsmálaráð-
herra segir upplýsingar í hættumatinu
sláandi.
DÓMSMÁL Tveir bræður um fertugt
hafa verið ákærðir fyrir hrotta-
lega líkamsárás í Breiðholtinu í
nóvember 2008. Er þeim gefið að
sök að hafa beitt við árásina níu
kílóa sleggju og slökkvitæki.
Eldri bróðurnum, sem stend-
ur á fertugu, er gefið að sök að
hafa ráðist að fórnarlambinu með
sleggjunni og slegið það í höfuðið
með henni.
Segir í ákærunni að sá yngri,
sem er rétt tæplega 38 ára, hafi
síðan tekið við og slegið fórnar-
lambið minnst fjórum sinnum í
andlitið með slökkvitæki.
Við þetta hálsbrotnaði þoland-
inn, hlaut sjö sentimetra skurð
á hnakka, skurð á enni og mar á
kinnbeinum.
Sá sem fyrir árásinni varð þótti
sleppa merkilega vel miðað við
áverkana og fékk að fara heim
af spítala eftir nokkurra klukku-
stunda skoðun og aðhlynningu.
Hann krefst eftir sem áður fimm
milljóna króna í skaðabætur frá
bræðrunum, auk vaxta.
Þrír voru upphaflega handteknir
vegna málsins, en einungis tveir
eru ákærðir.
Lögregla taldi á sínum tíma að
árásin væri hluti af uppgjöri eldri
mála. Allir mennirnir höfðu áður
komið við sögu lögreglu. - sh
Tveir bræður krafðir um fimm milljónir í skaðabætur fyrir hrottalega líkamsárás:
Beittu slökkvitæki og níu kílóa sleggju
BREIÐHOLT Árásin átti sér stað í
Seljahverfi í Breiðholti seinni partinn í
nóvember 2008. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
DÓMSMÁL Þrír karlmenn á þrí-
tugsaldri hafa verið ákærðir
fyrir sölu fíkniefna eða aðild að
henni.
Tveir mannanna voru í gær
ákærðir fyrir Héraðsdómi Suður-
lands fyrir að hafa verið með í bíl
á Selfossi ellefu grömm af hassi,
tíu grömm af amfetamíni og tíu
grömm af maríjúana, sem þeir
ætluðu að selja. Efnin fann lög-
regla undir bifreiðinni.
Þriðji maðurinn er ákærður
fyrir að hafa ekið hinum tveimur
í sölutúr. - jss
Þrír karlmenn ákærðir:
Fíkniefnin falin
undir bílnum
Eru þær aðgerðir sem stjórn-
völd hafa kynnt vegna vanda
heimilanna nægilega góðar?
Já 18,5%
Nei 81,5%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Á að að boða til kosninga sem
fyrst?
Segðu þína skoðun á vísir.is
KJÖRKASSINN