Fréttablaðið - 20.03.2010, Page 10

Fréttablaðið - 20.03.2010, Page 10
10 20. mars 2010 LAUGARDAGUR PIPA R\TBW A • SÍA • 100756 af bón- og bílahreinsivörum Og að sjálfsögðu færðu ráðgjöf hjá bóngóðum starfsmönnum á plani. 20% AFSLÁTTUR Við höldum með þér! ÞJÓRSÁ Nýtt framboð sem fyrrum formaður umhverfisráðs Flóahrepps vinnur að er ekki sammála sitjandi sveitarstjórn um virkjun Þjórsár við Urriðafoss. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON FLÓAHREPPUR Formanni umhverfis- nefndar Flóahrepps var fyrir- varalaust vikið frá störfum á fundi sveitarstjórnar hreppsins á miðvikudag. Hann segir ákvörð- un sveitarstjórnarinnar sýna þá heift og óbilgirni sem virkjanamál í hreppnum hafi kallað fram. Almar Sigurðsson, sem var for- maður umhverfisnefndar hrepps- ins, er einn þeirra sem unnið hafa að nýju framboði í komandi sveit- arstjórnarkosningum. Líklegt er að framboðið verði andsnúið fyrirhugaðri virkjun Landsvirkj- unar við Urriðafoss, sem sitjandi sveitarstjórn styður. Í fundargerð sveitarstjórnarinn- ar kemur fram að þar sem Almar hafi „lýst yfir framboði gegn sitj- andi sveitarstjórn í komandi sveit- arstjórnarkosningum“, sé rétt að víkja honum úr sæti. „Mér finnst þetta eiginlega bæði fyndið og aulalegt, sérstak- lega í svona litlu samfélagi,“ segir Almar. Honum var ekki gefinn kostur á að gera athugasemdir við uppsögnina og hefur enn ekki verið tilkynnt um þessa breytingu af sveitarstjórninni. Almar segir fráleitt að hann hafi lýst yfir framboði eins og haldið sé fram í fundargerð sveitarstjórnar- innar. Hann hafi vissulega unnið að stofnun framboðs, en ætli sér einmitt ekki að bjóða sig fram sjálfur. Forsendur fyrir uppsögn- inni séu enn einkennilegri í því ljósi. „Ég ætla ekki að bregðast sér- staklega við þessu, svona fólki er eiginlega vorkunn,“ segir Almar. Hann segir uppsögnina sér- lega einkenni- lega í ljósi þess að ólíklegt sé að umhverfisnefnd fundi fram að kosningum í maí, nema ef til vill til að undir- búa umhverfisverðlaun hreppsins í sumar. Nefndarformaðurinn fær um 12 þúsund krónur að launum fyrir hvern fund sem hann situr. Aðalsteinn Sveinsson, oddviti Flóahrepps, segir að ef til vill hefði verið eðlilegra að Almar segði af sér sjálfur þegar hann hafi byrjað að undirbúa framboð gegn sitjandi sveitarstjórn. „Það hefur komið fram í fréttum að hann er í forsvari fyrir framboð sem beint er gegn sitjandi sveitar- stjórn,“ segir Aðalsteinn. Þegar borin er undir hann full- yrðing Almars að hann hyggist ekki bjóða sig fram segir Aðal- steinn að kannski hafi verið um misskilning að ræða. Þar sé þó aðeins um stigsmun að ræða, enda vinni Almar að stofnun framboðs og hafi komið fram sem talsmaður þess. Aðalsteinn segir sveitarstjórnina ekki hafa séð ástæðu til að ræða fyrirhugaða uppsögn Almars við hann fyrirfram, eða gefa honum ráðrúm til að bregðast við henni. brjann@frettabladid.is Formanni vikið vegna framboðs Sveitarstjórn Flóahrepps hefur vikið formanni um- hverfisnefndar hreppsins frá störfum þar sem hann undirbýr framboð. Sýnir heift og óbilgirni sem virkj- anamál kalla fram, segir formaðurinn fyrrverandi. STANGVEIÐI Stjórn Orkuveitu Reykja- víkur samþykkti í gær fyrir sitt leyti tillögu Þorleifs Gunnlaugsson- ar borgarfulltrúa um að veiðitími hefjist framvegis 1. apríl í Elliða- vatni í staðinn fyrir 1. maí. Orku- veitan á um tvo þriðju veiðiréttar á Elliðavatni. Þar eiga einnig veiði- rétt Reykjavíkurborg, Kópavogur og Mosfellsbær auk einstaklinga sem eiga tæpan fimmtung. Þorleifur hefur einnig lagt til að veiðin í vatninu verði ókeyp- is fyrir alla. „Það er ekkert hægt að ofveiða svona vatn með stang- veiði,“ fullyrðir Þorleifur sem kveðst bjartsýnn á að bæði breytt- ur opnunartími og gjaldfrelsið verði að veruleika. - gar Veiðitímabil í Elliðavatni: OR vill aprílopnun ELLIÐAVATN Breyttur opnunartími er í augsýn. ALMAR SIGURÐSSON
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.