Fréttablaðið - 20.03.2010, Page 12
12 20. mars 2010 LAUGARDAGUR
Helgi Bjarnason, viðskiptafræðingur, MBA,
löggiltur leigumiðlari og löggiltur fasteignasali
Ólafur Jóhannsson, rekstarfræðingur,
löggiltur leigumiðlari
Virðing
RéttlætiVR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS
Kosningar 2010 Allsherjaratkvæðagreiðsla VR til stjórnar og trúnaðarráðs er
hafin. Nýttu atkvæðisrétt þinn og hafðu áhrif. Öll atkvæði hafa
sama vægi. Kynntu þér frambjóðendur og nýttu kosningarétt
þinn á www.vr.is
Nú göngum við í VR til kosninga. Láttu þig
málið varða, þetta er félag okkar allra.
A
u
g
lý
si
n
g
a
sí
m
i
Allt sem þú þarft…
STJÓRNMÁL Fulltrúar stjórnmála-
flokkanna hafa rætt um að verð-
tryggja þær 300.000 krónur sem
flokkarnir mega nú fá í hámarks-
framlög. Upphæðin hækki því
í tímans rás í takt við almennt
verðlag.
Þetta hefur samkvæmt heimild-
um blaðsins verið rætt í nefnd sem
forsætisráðherra skipaði í fyrra
til að endurskoða lög um fjármál
stjórnmálasamtaka, sem sett voru
í desember 2006.
Samkvæmt lögunum mega
fyrirtæki og einstaklingar ekki
greiða meira til stjórnmálaflokka
en sem nemur 300.000 krónum.
Innan nefndarinnar þykir þessi
upphæð hafa rýrnað talsvert að
raunvirði síðan 2006. Því megi
skoða verðtryggingu.
Annað sem nefndarmenn hafa
rætt eru athugasemdir frá GRECO,
samtökum ríkja gegn spillingu,
en samtökin vilja meðal annars
að lögin nái yfir frambjóðendur í
forsetakjöri.
Þá telur GRECO að eðlilegt
gæti verið að lækka þá fjárhæð
sem einstaklingar geta lagt fram í
nafnleynd, en hún er nú hámarks-
fjárhæðin, 300.000. - kóþ
Lög um fjármál stjórnmálaflokka koma líklega til með að ná til forsetakosninga:
Rætt um að verðtryggja framlögin
ALÞINGI Rætt hefur verið um að verð-
tryggja þær 300 þúsund krónur sem
flokkarnir mega fá. FRÉTTABLAÐ/GVA
ÞÝSKALAND, AP Benedikt sextándi
páfi hefur nú dregist með bein-
um hætti inn í barnaníðingsmál í
Þýskalandi.
Páfi, sem þá hét Joseph Ratzin-
ger, var erkibiskup í München og
Freising á árunum í kringum 1980
þegar prestur, sem sakaður hafði
verið um slíka hegðun, var flutt-
ur til í embætti og fór í meðferð.
Árið 1986 var þessi sami prest-
ur dæmdur sekur fyrir að hafa
níðst kynferðislega á börnum, en
fékk að starfa áfram sem prestur
þangað til hann var rekinn fyrir
tæpri viku.
Ljóst þykir að Ratzinger hafi
vitað um ásakanirnar, en fulltrú-
ar erkibiskupsdæmisins í München
segja að hann hafi ekki vitað að
presturinn hafi haldið áfram störf-
um hjá kirkjunni, enda hafi Ratzin-
ger farið til annarra starfa í Páfa-
garði strax árið 1982.
Á síðustu vikum hafa á annað
hundrað kynferðisbrotamála
komið til kasta erkibiskupsdæm-
isins í München, hinu gamla
umdæmi Ratzingers, þar sem
kirkjan hefur nú sett á stofn sér-
stakan starfshóp til að koma í veg
fyrir slík brot.
„Þetta er eins og flóðbylgja,“
segir Elke Hümmeler, formaður
starfshópsins. „Ég held að við
höfum aldrei orðið fyrir öðru eins
áfalli.“
Bróðir páfa, George Ratzinger,
hefur einnig blandast í mál af
þessu tagi í Þýskalandi, því hann
var stjórnandi drengjakórs Pét-
urskirkjunnar í Regensburg frá
árinu 1964, en nýverið komu fram
ásakanir um misnotkun drengja í
kórnum á fyrstu árum hans þar.
Sjálfur segist hann ekki hafa vitað
af slíku.
Á síðustu misserum hafa æ fleiri
barnaníðingsmál komið fram í
dagsljósið innan kaþólsku kirkj-
unnar, meðal annars í flestum
löndum Vestur-Evrópu.
Páfagarður hóf eigin rannsókn-
ir á slíkum málum strax árið 2001.
Síðan þá hafa komið til kasta hans
um þrjú þúsund kynferðisbrotamál
gegn börnum, sem ná allt að 50 ár
aftur í tímann. Charles Scicluna,
embættismaður í Páfagarði,
segir að um 60 prósent þeirra
einstaklinga, sem segjast hafa
orðið fyrir kynferðislegri áreitni
innan kirkjunnar, hafi verið pilt-
ar á unglingsaldri þegar áreitnin
hófst, 30 prósent hafi verið ungl-
ingsstúlkur og tíu prósent börn
undir kynþroskaaldri.
Í frétt frá Páfagarði segir Scic-
luna að um 20 prósent þessara mála
hafi farið fyrir kirkjudómstól og 85
prósent sakborninga í þeim málum
hafi verið sakfelldir. Tíu prósentum
hinna seku var vikið úr kirkjunni
og tíu prósent létu af prestsstörfum
að eigin ósk. gudsteinn@frettabladid.is
Holskefla níðings-
mála í Þýskalandi
Nýjar ásakanir um barnamisnotkun hellast nú nær daglega yfir kaþólsku kirkj-
una í Þýskalandi. Málaferli í æ fleiri Evrópuríkjum valda kirkjunni vaxandi
erfiðleikum. Síðan 2001 hefur Páfagarður rannsakað um þrjú þúsund slík mál.
BENEDIKT PÁFI OG GEORG BRÓÐIR HANS Ratzinger-bræðurnir hafa nú báðir verið
tengdir við mál barnaníðinga í Þýskalandi, þar sem þeir voru báðir háttsettir innan
kirkjunnar. NORDICPHOTOS/AFP