Fréttablaðið - 20.03.2010, Page 16

Fréttablaðið - 20.03.2010, Page 16
16 20. mars 2010 LAUGARDAGUR FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is MENNING: Páll Baldvin Baldvinsson fulltrúi ritstjóra pbb@frettabladid.is HELGAREFNI: Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is og Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is greinar@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 SPOTTIÐ AF KÖGUNARHÓLI ÞORSTEINS PÁLSSONAR Nýir tímar kalla á nýjar aðferðir. Nokkur grund-vallaratriði hafa þó ekki haggast. Eitt er að full- trúalýðræði er óhjákvæmilegt eigi stjórn ríkisins að vera skipuleg og skilvirk. Annað er að völd og ábyrgð verða að fara saman. Þó að þingmenn skuldi kjósend- um að hafa forystu um úrlausn mála þurfa þeir að vera í jarðsam- bandi og hlusta og nema hugsanir almennings. Nútíma tækni gerir það auðveldara en áður. Þjóðar- atkvæðagreiðslur samrýmast að sjálfsögðu fulltrúalýðræði ef mál eru lögð fyrir þjóðina þannig að hún ráði þeim til endanlegra og fullra lykta og þjóðkjörnir fulltrú- ar eru tilbúnir að bera ábyrgð á tillögum sínum. Hvað þýðir þetta? Við útskýr- ingu á því er ágætt að taka dæmi af hugsanlegum samningi um aðild að Evrópusambandinu. Eftir klassískum lýðræðishug- myndum tekur Alþingi slíkan samning til umræðu og afgreiðslu. Ef hann er samþykktur er gerður sá fyrirvari að gildistakan sé háð samþykki þjóðarinnar. Meirihlut- inn axlar ábyrgð á niðurstöðunni með því að leggja dómgreind sína og álit að veði þegar kjósendur fá úrslitavaldið. Þetta þýðir beint lýð- ræði án þess að völd og ábyrgð séu greind í sundur. Samkvæmt þeirri lýðræðistísku sem þingmenn aðhyllast núna kemur samningurinn hins vegar ekki til kasta Alþingis í fyrstu atrennu. Þjóðin á að taka afstöðu til hans áður og leggja fyrir Alþingi hvernig hann skuli afgreiddur þar. Forystan er færð frá þinginu, ábyrgðin skilin frá völdunum og þingmenn láta ekki dómgreind sína í ljós. Svo undrast menn létt vægi Alþingis! Dómgreind, völd og ábyrgð Þeir sem mest tala um að framkvæmdavaldið beri löggjafarvaldið ofurliði eru í mörgum tilvikum um leið helstu talsmenn þess að þingmenn taki ekki afstöðu til mála heldur vísi þeim annað í nafni lýðræðis- ins. Þegar öllu er á botninn hvolft má vera að helsti veikleiki Alþing- is sé í því fólginn hvernig margir þingmenn líta á hlutverk sitt. Þegar stjórnskipunin var að mótast og lengst af síðan var litið á þingmenn sem þjóðkjörna full- trúa. Þeir fóru með umboð fólks- ins til að ræða og ráða málum til lykta. Þeir höfðu forystu, lögðu á ráðin og báru stefnu sína og verk undir dóm kjósenda. Nú sýnist hitt vera algengara að þingmenn líti á sig sem þjóð- kjörna sendiboða. Þeir fara fyrst og fremst með umboð til að flytja skilaboð frá kjósendum inn í mál- stofu Alþingis. Eftir þeirri hug- myndafræði á frumkvæði og for- ysta um lausn mála að vera hjá fólkinu sjálfu. Breski heimspekingurinn og þingmaðurinn Edmund Burke sá þetta í öðru ljósi. Hann sagði kjós- endum sínum 1774: „Gagnvart fulltrúa ykkar eigið þið heimtingu, ekki einasta á atorkusemi hans heldur dómgreind hans einnig; og hann svíkur ykkur í stað þess að þjóna, ef hann fórnar dómgreind sinni fyrir álit ykkar.“ Hér er ekki verið að gera lítið úr dómgreind kjósenda. Þeir eiga hins vegar rétt á að heyra ráð þing- mannsins og leggja síðan sjálfstætt mat á stefnu hans og gerðir. Aðeins þannig getur þingmaðurinn borið ábyrgð gagnvart kjósendum. Þeir þingmenn sem telja sig fyllri af lýðræðisást en gengur og gerist vilja nú snúa þessari ábyrgð við. Fulltrúi eða sendiboði? Beint lýðræði er tískuhug-tak. Hugtakið er jákvætt og því eru allir fylgjandi þjóðaratkvæðagreiðslum. Ráðríki framkvæmdavaldsins yfir löggjafarvaldinu er annað tísku- tungutak. Það er neikvætt og því reka menn hornin í pólitíska forystu framkvæmdavaldsins á Alþingi. Minna fer fyrir hinu að menn brjóti til mergjar kosti og galla þeirr- ar áleitnu spurningar hvort aðgreina á framkvæmdavald og löggjafarvald. Lítið heyrist í þeim sem velta fyrir sér hvort veikleika Alþingis megi í einhverjum mæli rekja til starfs- hátta þingmanna en ekki einvörð- ungu stjórnskipunarreglna. Engir vega og meta hvernig tryggja á að völd og ábyrgð fari saman. Hver apar hins vegar eftir öðrum lítt skilgreind tísku- hugtök. A lþi ng i er stjórnarskrár- gjafinn. Eigi að síður hafa forystumenn Alþingis lýst því yfir í nafni lýðræðisins að þeir ætli að varpa þeim skyldum frá sér til sérstaks stjórnlagaþings. For- ystumenn Alþingis vilja ekki taka afstöðu til hugsanlegs aðildarsamn- ings að Evrópusambandinu fyrr en þjóðin hefur veitt þeim leiðsögn. Forsetinn taldi það lýðræðisvæð- ingu að taka völdin af Alþingi og hafa þjóðaratkvæði um millileik í Icesave-samningunum sem skildi málið eftir óleyst. Forsætisráðherr- ann vill þjóðaratkvæði um sjávar- útvegsstefnuna án þess að hafa til- lögu um hver hún á að vera. Þjóðin á að segja honum það. Allt er þetta göfugt og hugsjóna- ríkt. Hin hliðin á þessum peningi er spurningin: Hvert á þá hlut- verk þingmanna að vera? Taka þeir kosningu fólksins í þeim til- gangi einum að vísa vandasömustu viðfangsefnunum til þess aftur án þess að leggja eigin stefnu að veði? Þurfa þeir að vera sextíu og þrír til þess? Hlutverk þingmanns ÞORSTEINN PÁLSSON m ag g i@ 12 o g 3. is Í vikunni birtust niðurstöður könnunar MMR um afstöðu fólks til listamannalauna. Samkvæmt könnuninni eru lið- lega 60 prósent þjóðarinnar mjög eða frekar andvíg því að ríkið greiði listamönnum starfslaun. Þessi niðurstaða kemur í sjálfu sér ekki á óvart enda er neikvæð umræða um listamannalaun árviss viðburður. Umræðan um listamannalaun er staglkennd og ýmsar stað- reyndir sem ekki þjóna sjónarmiðum andsnúnum laununum eru iðulega undanskilin í henni. Í fyrsta lagi er rétt að halda til haga að ekki er um neina stór- fjárhæð að ræða, í það minnsta ekki þegar hún er sett í samhengi við þær peningasummur sem nú eru í daglegum fréttum. Sömu- leiðis hitt að með því að setja þá summu sem í listamannalaun- in fer inn í hagkerfið verður til hreyfing sem bæði skapar hag- vöxt og störf, til dæmis við framleiðslu og sölu bóka og annarra hugverka, tónleikahald og ýmsa hliðarstarfsemi sem þrífst vel í tengslum við menningarstarf, svo sem veitingarekstur. Fyrir því hafa meira að segja verið færð rök að sú innspýting í hagkerfið sem opinber framlög til lista eru skili sér vel rúmlega til baka í ríkiskassann. Starfslaun listamanna nema um 350 milljónum króna, eða 0,35 milljörðum svo notuð séu tölugildi sem eru tamari í umræðunni þessa dagana. Til samanburðar við tölur úr fréttum vikunnar má nefna að skattaskuldir fyrirtækja í landinu nema 112 milljörðum. Þannig nema listamannalaunin um þremur prósentum af því sem fyrirtækin í landinu skulda í skatta. Reykjavíkurborg ætlar að verja 230 milljónum í stækkun golfvallarins á Korpúlfsstöðum um níu holur, úr 18 í 27, á næstu fjórum árum svo tekið sé annað dæmi úr fréttum vikunnar. Opinber stuðningur við listastarfsemi tíðkast í öllum þróuðum löndum, bæði í formi styrkja og reksturs á menningarstofnunum og í beinar launagreiðslur til listamanna. Ekki þarf einu sinni svo lítið málsvæði eins og það íslenska til þess að óraunhæft geti talist að sala á skáldverki standi undir launakostnaði höfundar meðan á samningu þess stendur. Velta má fyrir sér hvort þessi 60 prósent þjóðarinnar sem segjast vera andvíg listamannalaunum myndu vilja búa í landi þar sem útkoma frumsamins skáldverks væri viðburður sem ætti sér stað á nokkurra ára fresti. Sömuleiðis má spyrja hvort meira en helmingur þjóðarinnar væri sáttur við að búa í samfélagi þar sem ekki þrifist tónlistarlíf sem ekki stendur undir sér með aðgangseyri og sölu á útgefinni tónlist, utan Sinfóníuhljómsveitarinnar sem raunar verður reglu- lega fyrir barðinu á umræðunni um að ríkið eigi ekki að reka slíka sveit. Á sama hátt má velta fyrir sér hvernig myndlistarlífið væri í landinu án launanna. Líklegt er að einungis fáeinir mynd- listarmenn gætu helgað sig þeim starfa. Fjölbreytt menning er ein af þeim stoðum sem þarf til að mynda þróað og siðað samfélag. Árlega sönginn um listamanna- launin verður að setja í það samhengi. Vill meira en helmingur þjóðarinnar þurrka upp menninguna í landinu? Árlegi söngurinn STEINUNN STEFÁNSDÓTTIR SKRIFAR
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.