Fréttablaðið - 20.03.2010, Side 22
22 20. mars 2010 LAUGARDAGUR
SEND IÐ OKK UR LÍNU
Fréttablaðið og Vísir hvetja lesendur til að senda línu og leggja orð í belg um
málefni líðandi stundar. Greinar og bréf skulu vera stutt og gagnorð. Tekið er á
móti efni á netfanginu greinar@frettabladid.is eða á vefsíðu Vísis, þar sem finna
má nánari leiðbeiningar. Ritstjórn ákveður hvort efni birtist í Fréttablaðinu eða
Vísi eða í báðum miðlunum að hluta eða í heild. Áskilinn er réttur til leiðréttinga
og til að stytta efni.
UMRÆÐAN
Bjarni Harðarson skrifar:
Ólafi Þ. Stephensen, nýjum rit-stjóra Fréttablaðsins, tekst
um margt vel upp á nýjum vinnu-
stað og honum eru hér með flutt-
ar árnaðaróskir. En það sem háir
þessum skelegga blaðamanni
er hjákátlegur trúarhiti í ESB-
málum sem birtist okkur les-
endum blaðsins með reglulegu
millibili.
Nýjust er sú söguskýring í leið-
ara 13. mars að vandi Grikkja
hafi ekkert með evruna að gera.
Vandamálið sé einungis að Grikk-
ir séu alltof skuldugir og hafi
aldrei kunnað fótum sínum for-
ráð. Nú er það enginn vafi að
efnahagskerfi þjóða eru misjafn-
lega stöðug og misjafnlega öguð.
En sé sú staða
Grikkja að þeir
geti ekki notað
evruna vegna of
mikilla skulda,
hvenær mun
evran þá duga
Íslandi?
Því fer reynd-
ar fjarri að
stöðugleiki sé
eina sem skipt-
ir máli við efnahagsstjórnun og
hafi slíkum tökum ekki verið náð
er afar fjarstæðukennt að setja á
hagkerfið bönd eins og þau sem
evran er hinum fátækari ESB-
ríkjum nú. Það segir sína sögu að
Ísland, sem hefur gengið í gegn-
um meiri hremmingar bankakerf-
isins en nokkurt annað Evrópu-
land, býr engu að síður við minna
atvinnuleysi, minni niðursveiflu
hagkerfisins og minni vandræði
vegna kreppunnar en mörg ESB-
landanna. Raunar er samdráttur
hér minni en í Danmörku, að ekki
sé talað um Eystrasaltsríkin og
Írland.
Fréttablaðið talar aftur á móti
úr þeim fílabeinsturni að hvorki á
Íslandi né Grikklandi eigi að vera
sveiflur í hagkerfinu og að löndin
eigi að vera allt öðruvísi en þau
eru. Í umræddum leiðara er bent
á að ef Grikkland væri ekki skuld-
sett væri ekkert vandamál fyrir
landið að hafa evru. Eftir stendur
að það Grikkland sem til er í raun-
heimi gæti betur tekist á við sín
vandamál með gömlu drökmuna
sína heldur en með evru.
Þegar kemur að íslensku hag-
kerfi eru sveiflurnar óhjákvæmi-
leg afleiðing þess að hér býr fátt
fólk á fjarlægri eyju. Mannfæð-
in ein skapar það að sveiflujöfn-
unin er ekki sú sama og væri í
tveggja milljóna manna hagkerfi
eða þaðan af stærra. Þar við bæt-
ast sveiflur vegna náttúrulegra
breytinga en þær eru þó veiga-
minni.
Allar hugmyndir um að Ísland
geti verið sem fullkominn hluti af
stærra hagkerfi og laust undan
sveiflum smæðarinnar eru óraun-
hæfar, þó ekki sé fyrir annað en
torleiði hingað og fjarlægðir.
Reynsla ESB-landanna bendir
raunar til að landamæri málsvæða
og gamalla þjóðlanda hafi einnig
gríðarlega mikil áhrif á það að
lönd halda áfram að vera sérstakt
hagkerfi með sína sértæku sveiflu
þrátt fyrir einn gjaldmiðil og sam-
ræmt ofvaxið regluverk. Þar talar
reynsla Grikkja sínu máli.
Langt innan við 10% fyrirtækja
í ESB stunda viðskipti út fyrir sitt
gamla þjóðríki.
Rökin fyrir því að Ísland yrði
að taka upp alþjóðlega mynt voru
sterkust meðan til stóð að byggja
hluta af hagkerfinu upp á alþjóð-
legri bankastarfsemi. Bankaeig-
endurnir gömlu höfðu þá hags-
muni en tæpast ætlum við í dag
að hlaupa eftir hagsmunum þeirra
manna. Með falli bankanna og
reynslu evrulanda af kreppunni
féllu um sjálft sig flest þau rök
sem menn höfðu fyrir mögulegri
ESB-aðild enda hefur fylgi við þá
stefnu dalað stórkostlega.
Það fer Fréttablaðinu illa að
stunda einmanalegt ESB-trúboð
þegar rökin fyrir þeirri stefnu
eru öll horfin ofan í skuldasvelg
gömlu útrásarvíkinganna.
Höfundur er bóksali á Selfossi.
Evrópukrísa ritstjórans
UMRÆÐAN
Vigdís Hauksdóttir skrifar um
vandaða lagasetningu
Auðveldlega má færa fyrir því rök að slök lagasetning und-
anfarin ár eigi einhvern þátt í því
hvernig komið er fyrir okkur sem
þjóð. Á Norðurlöndum er það liður
í starfsemi ráðuneyta að starf-
rækja sérstakar lagaskrifstof-
ur sem hafa það hlutverk að fara
yfir stjórnarfrumvörp og kanna
hvort á þeim séu lagatæknilegir
ágallar eða hvort þau samræmist
stjórnarskrá.
Yfirgnæfandi meiri hluti laga-
frumvarpa sem samþykkt eru á
Alþingi koma frá framkvæmda-
valdinu en hér á landi er hvorki
starfandi lagaskrifstofa hjá
Stjórnarráði Íslands né starfandi
lagaráð hjá Alþingi sjálfu. Því
kemur ekki á óvart að miklu fleiri
hnökrar eru á íslenskri löggjöf
en annars staðar á Norðurlönd-
um. Ég hef af þessum ástæðum
lagt fyrir Alþingi lagafrumvarp
um að stofnuð verði lagaskrif-
stofa Alþingis til að bæta laga-
setningu. Markmiðið frumvarps-
ins er að ekki komi frumvörp
né þingsályktunartillögur fyrir
Alþingi sem innihalda lagatækni-
lega ágalla eða samrýmast ekki
stjórnarskránni, að létta álagi
af dómstól -
um landsins og
umboðsmanni
Alþingis.
Í frumvarp-
inu er gert ráð
fyrir að starfs-
men n laga -
skrifstofu skulu
vera alþing-
ismönnum og
starfsmönnum
Alþingis og Stjórnarráðsins til
ráðgjafar um undirbúning lög-
gjafar. Lagaskrifstofa skal einnig
ganga úr skugga um að frumvörp
standist þjóðréttarlegar skuld-
bindingar og séu í samræmi við
gildandi lög, að þau séu nákvæm,
skýr og auðskiljanleg og gjald-
tökuheimildir séu skýrar. Sú
stjórnskipan sem er í gildi hér á
landi byggist á þrígreiningu rík-
isvaldsins í löggjafarvald, dóms-
vald og framkvæmdarvald hefur
réttilega verið gagnrýnd fyrir
það hversu sterkt framkvæmd-
arvaldið hefur verið á kostnað
hinna þáttanna tveggja. Úr þess-
um hnökrum þarf að bæta til að
efla og bæta lýðræðið. Hér er löng
hefð fyrir meirihlutastjórnum,
með örfáum undantekningum, og
því er nauðsynlegt að starfandi
minnihluti fái notið jafnræðis í
framlagningu mála til að tempra
framkvæmdavaldið.
Sem dæmi um slaka lagasetn-
ingu undanfarna áratugi má geta
þess að í ársskýrslum umboðs-
manns Alþingis, sem starfað
hefur í rúm 20 ár, er vel á annað
hundrað mála sem embættið
hefur vakið athygli á sem varða
„meinbugi á lögum“. Slíkur mála-
fjöldi er óásættanlegur. Meinbug-
ir á lögum geti verið formlegs
eðlis, svo sem misræmi milli laga-
ákvæða, prentvillur, óskýr texti
o.fl. Einnig geti meinbugir verið
beinlínis fólgnir í efnisatriðum,
svo sem mismunun milli manna
án þess að til þess liggi viðhlít-
andi rök eða að reglugerðará-
kvæði skorti lagastoð. Þá hefur
umboðsmaður litið svo á að undir
ákvæðið falli þau tilvik þegar
lög eru ekki í samræmi við þær
skuldbindingar sem Ísland hefur
undirgengist samkvæmt alþjóða-
sáttmálum til verndar mannrétt-
indum.
Jafnframt yrði gríðarlegu álagi
létt af dómstólum landsins sem
er ef til vill mesti kosturinn. Hér
er á ferðinni þjóðþrifamál sem
til framtíðar felur í sér mikinn
sparnað fyrir þjóðina alla. Það
er von mín að málið fái jákvæð-
ar undirtektir hjá alþingismönn-
um og að frumvarpið verði brátt
að lögum.
Höfundur er alþingismaður.
Lagaskrifstofa Alþingis
UMRÆÐAN
Jóhanna Gunnlaugs-
dóttir skrifar um gegn-
sæi í viðskiptum
Gegnsæi og rekjan-leiki í viðskiptum og
stjórnsýslu er krafa sam-
tímans. Áhersla er lögð á
að aðgengi að upplýsing-
um eigi að vera einfalt og
verklag í takt við lög og reglur og
vönduð og samræmd vinnubrögð.
Í þessu tilliti kemur sér vel fyrir
einkafyrirtæki jafnt sem opin-
ber fyrirtæki að vinna í takt við
alþjóðlega stjórnunarstaðla, eink-
um staðla um stjórnun upplýsinga
og skjala, stjórnun upplýsinga-
öryggis og gæða- og umhverfis-
stjórnun.
Í þessu sambandi má til dæmis
nefna ISO 15489 um upplýsingar,
skjalfestingu og skjalastjórn, ISO
9001 um gæðastjórnun, ISO 14001
um umhverfisstjórnunarkerfi
svo og ISO 17799 og ISO 27001
um upplýsinga- og öryggistækni
og stjórnun upplýsingaöryggis.
Þessir staðlar hafa verið þýddir á
íslensku og útgefnir af Staðlaráði
Íslands (stadlar.is). Auk þess að
vera alþjóðlegir teljast þeir einnig
fullgildir íslenskir staðlar (ÍST).
Hlutverk upplýsinga- og skjala-
stjórnar er ótvírætt þegar verið
er að innleiða og uppfylla kröfur
stjórnunarstaðlanna. Hún gengur
eins og rauður þráður í gegnum
alla staðlavinnuna. Í þeim öllum
er viðmiðið: Skjalfestu það sem þú
ætlar að framkvæma og gerðu það
sem þú skjalfestir. Skjalfesting á
að gera kleift að miðla fyrirmæl-
um, stuðla að samræmi í aðgerðum
og tryggja rekjanleika upplýsinga.
Reynsla og rannsóknir hér á landi
sem erlendis hafa leitt í ljós að
fyrirtæki, sem hyggjast innleiða
gæða- og upplýsingaöryggiskerfi
og fá þau vottuð, hafi iðulega þurft
að innleiða kerfisbundna skjala-
stýringu samhliða sem hluta af
kerfunum. Slík kerfi er ekki hægt
að starfrækja hnökralaust án góðr-
ar skjalastjórnar. Kannanir sýna
að algeng ástæða fyrir því að fyr-
irtæki fái ekki vottun í fyrstu til-
raun sé ágallar á sviði skjala-
stjórnar og skjalahalds.
Ekki síst á krepputímum
er mikilvægt að fyrirtæki og
stofnanir velti við hverj-
um steini, viðhafi vönd-
uð vinnubrögð og yfir-
fari starfs- og verkferla á
gagnrýninn og skilvirkan
hátt til þess að stuðla að
frekari árangri í rekstri.
Á sumum vinnustöðum
skapast nú meira svigrúm
til þess að vinna ýmis
„tiltektarstörf“ sem ekki
gafst stund til á þenslu-
tímum undanfarinna ára.
Samkeppni á markaði eykst
sífellt og ríkari krafa er gerð til
fyrirtækja um að þau uppfylli
ákveðin skilyrði vegna upplýsinga-
aðgengis og -öryggis og umhverf-
is- og gæðamála. Við útboð hafa
þau fyrirtæki forskot sem hafa
vottaða starfsemi. Á hinu stóra
markaðstorgi jarðarinnar, þar sem
enginn þekkir mann, nema þá e.t.v.
aðeins af endemum, eins og tilfinn-
ing okkar Íslendinga er nú, kemur
sér vel að hafa gott kynningarbréf.
Alþjóðleg staðlavinna og vottun
samkvæmt alþjóðlegum stjórnun-
arstöðlum er slík hjálp.
Margir hafa áhyggjur af því nú,
á tímum efnahagsþrenginga, að
útlendingar vilji síður eiga við-
skipti við íslensk fyrirtæki. Þetta
á ef til vill við um nágrannalöndin
en fjarlægari markaðir eru líklega
ekki svo meðvitaðir um hrakfar-
irnar. Samt sem áður eru veiga-
mikil rök fyrir því að íslensk fyr-
irtæki nýti sér vottun. Þau eru oft
lítt þekkt erlendis en geti þau sýnt
fram á vottuð kerfi aukast líkurnar
á því að þau séu tekin með í heimi
alþjóðlegra viðskipta. Þá losna þau
oft við að útskýra að samgöngur,
tryggingarstarfssemi, bankastarf-
semi og annað, sem þarf til þess að
stunda viðskipti, sé í lagi hérlend-
is. Þannig getur skapast sú staða
að vottun sé annað hvort forsenda
viðskipta á erlendum markaði eða
auðveldi framgang þeirra.
Íslenska bankakerfið hrundi og
fjöldi íslenskra fyrirtækja stendur
frammi fyrir rekstrarerfiðleikum.
En það mun birta til og þá er gott
að vera undirbúinn. Vottuð kerfi í
samræmi við alþjóðlega stjórnun-
arstaðla geta reynst íslenskum fyr-
irtækjum gott kynningarbréf eða
aðgögnumiði í alþjóðaviðskipum.
Höfundur er prófessor við HÍ með
upplýsinga- og skjalastjórn og
rafræn samskipti sem sérsvið.
Vottun á tímum
vantrausts
VIGDÍS HAUKS-
DÓTTIR
JÓHANNA GUNN-
LAUGSDÓTTIR
BJARNI
HARÐARSON
The Enlargement Policy of the European
Union and the Accession Process of Iceland
Stækkunarstefna
Evrópusambandsins
og aðildarferli
Íslands
Hádegisfundur í stofu 201 í Árnagarði, þriðjudaginn 23. mars frá kl. 12.00 til 13.00.
Dr. Timo Summa, sendiherra Evrópusambandsins
á Íslandi, heldur fyrirlestur á vegum
Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands.
Dr. Summa hefur starfað innan Evrópusambandsins síðan 1995 og hefur verið framkvæmdastjóri
á sviði stækkunarmála síðan 2005. Hann var settur í embætti sendiherra ESB á Íslandi í janúar
síðastliðnum.
Fundarstjóri:
Pia Hansson, forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar
Fundurinn fer fram á ensku. Allir velkomnir