Fréttablaðið - 20.03.2010, Qupperneq 34
34 20. mars 2010 LAUGARDAGUR
É
g er búinn að hlusta marg
oft á plötuna hans Jónsa.
Hún er mjög góð. Ég
myndi eiginlega segja að
þetta sé það besta sem
hefur komið úr þessari
átt síðan Ágætis byrjun kom út. Þetta
er ekkert Sigur Rósar væl!, segi ég
við Jónsa í hálfkæringi. Hann hlær nú
bara og segir: „Nei, nei! Nú er komið
stuð í þetta!“
Gaman að vera einræðisherra
Er þetta ekki stórt skref fyrir þig, að
gera sólóplötu með öllu sem því fylgir?
„Jú. Ég var búinn að ganga með þetta
í maganum í mörg ár. Við í Sigur Rós
vinnum mjög lýðræðislega. Gerum allt
og semjum í sameiningu. Það er mjög
sjaldgæft að einhver komi með lag og
við spilum það bara. Gegnum árin er
ég búinn að safna alveg hellingi af
lögum sem ég er búinn að semja sjálf-
ur. Ég er með margar möppur undir
lögin mín í tölvunni. Þegar ég byrjaði
ætlaði ég að gera svona „acoustic“-
plötu, voða rólega og því tók ég bara
lög úr acoustic-möppunni. Lög samin á
gítar, harmoníum og píanó. Ég er með
alls konar möppur í tölvunni. Raf-
tónlistar- og ambient-möppur og alls
konar dót. Meira að segja eina svona
Páls Óskars-techno-möppu! Eftir á að
hyggja hefði ég átt að taka eitthvað úr
þessum möppum líka.“
Þannig að þú átt efni í tíu sólóplöt-
ur í viðbót?
„Já, já! Þegar ég byrjaði á þessari
plötu var ég með þrjátíu lög og svo var
bara spurning hvað passaði og hvað
ekki.“
Það eru mörg lög á plötunni sem eru
létt og lífsglöð og áköf, en ekki trega-
full og dramatísk eins og mest af Sigur
Rósar efninu. Hvað veldur?
„Aðallega það að ég er að vinna með
öðru fólki. Það var mjög lærdóms-
ríkt fyrir mig. Alex (Somers, kærasti
Jónsa) hjálpaði mér að velja lögin og
útsetja þau. Nico Muhly útsetti fyrir
brass og strengi og ég var meðvitað-
ur um að fara frá dreymandi og flæð-
andi Sigur Rósar sándinu. Finnski
trommarinn Samuli Kosminen, sem
hefur trommaði með múm, kom rosa
mikið með þetta taktfasta og þá varð
þetta létt og leikandi fyrir vikið. Það
var mjög spontant hvernig það gerð-
ist. Hann kom bara í stúdíóið og gerði
þetta. Nico kemur úr þessum klass-
íska geira þar sem allt er alvarlegt
og heví en hann er alveg andstæðan.
Allt er ekkert mál og hann er til í allt.
Þeir tveir spila stórt hlutverk á plöt-
unni. Svo var bara gaman fyrir mig
að fara út úr þessu lýðræðislega sam-
félagi sem ég hef verið í í 16 ár. Gaman
að vera einræðisherra. Að taka allar
ákvarðanirnar sjálfur.“
Ég elska þessa stráka
Jónsi sagði í einhverju erlendu blaði
nýlega að hann væri alveg til í að vera
poppstjarna. Ég spyr hann út í þetta.
„Æ, ég veit nú ekki alveg hvað ég er
búinn að koma mér út í. Þetta er dálít-
ið kreisí.“
Hvað þýðir að vera poppstjarna?
Verðurðu þá alltaf hangandi með Slash
eða eitthvað?
„Ha, ha, eða Michael Jackson. Nei
það er víst ekki hægt. Nei, ég veit það
ekki.“
Er þetta eitthvað eftirsóknarvert?
Að vera einhver Jónsi Gaga?
„He, he, nei alls ekki. En maður er
náttúrlega búinn að vera í Sigur Rós í
16 ár, heima hjá sér með dregið fyrir
gluggann að horfa á vídeó. Nei, ég segi
svona. Það var alltaf voða mikið prins-
ipp hjá okkur að gera sem minnst af
viðtölum og ljósmyndasessjónum. Við
vorum alltaf á móti svoleiðis, sem er
gott upp að vissu marki.“
Þú varst aldrei hoppandi um í ind-
jánabúningi í Sigur Rós?
„Nei, en samt næstum því þarna
undir lokin. Þá vorum við komnir í
smá búninga.“
Þannig að þetta er bara rökrétt
þróun?
„Já, já. Og svo er bara númer 1, 2 og
3 að hafa gaman af þessu. Kannski er
gay-gæinn í mér að koma upp búninga-
lega séð. Drottningin.“
En ef Jónsi sóló gengur æðislega vel,
er þá einhver ástæða til að fara aftur
í Sigur Rós? Er þetta ekki bara eins og
þegar Björk hætti í Sykurmolunum?
„Nei, var ekki eitthvað ósætti á milli
þeirra? Við í Sigur Rós erum bara eins
og í góðu hjónabandi. Ég elska þessa
stráka alltaf jafnmikið. Á milli túra
hjá mér ætlum við að hittast og semja
og taka upp. Við erum búnir að selja
Sundlaugina (hljóðverið) og erum bara
komnir í bílskúrinn hjá Orra aftur. Það
er dálítið stemmingin, bara „back to
basics“. Bílskúrsbandið Sigur Rós að
rokka smá.“
En er ekki bandið búið að tæma
sig?
„Nei, nei, það er nóg eftir maður!“
Súper næs að koma úr skápnum
Það var svo skemmtilegt við Sigur
Rós að bandið afsannaði þá afsökun-
arklisju að bönd þyrftu að syngja á
ensku til að slá í gegn. Á Go syngur
Jónsi hins vegar um 70 prósent á ensku
og restina á íslensku. Hvað veldur?
„Við Alex tölum bara ensku heima
svo núna tala ég eiginlega meira á
ensku en íslensku. Mér fannst því bara
Engin Sigur Rós ef ég væri streit
Jónsi í Sigur Rós er ekki lengur „í Sigur Rós“. Nú er hann „bara“ Jónsi og gefur út fyrstu sólóplötuna sína, Go, strax eftir páska.
Dr. Gunni hitti frægasta poppara landsins sem er ekki Björk.
JÓN ÞÓR BIRGISSON, JÓNSI, VERÐUR 35 ÁRA 23. APRÍL NÆSTKOMANDI Maður er náttúrlega búinn að vera í Sigur Rós í
16 ár, heima hjá sér með dregið fyrir gluggann að horfa á vídeó. Nei, ég segi svona.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Kannski er
gay-gæinn
í mér að
koma upp
búningalega
séð. Drottn-
ingin.
tími kominn til að semja á ensku. Það
var mjög fróðlegt ferli. Það var mikil
áskorun og erfitt, miklu erfiðara en
að semja á íslensku. Ég hef takmark-
aðri orðaforða í ensku. Þegar ég var
búinn að semja nokkra texta á ensku
og svissaði í íslensku þá flugu þeir
hreinlega út.“
Hvað með ímyndina? Hugsar þú
mikið um hana?
„Ég veit það nú ekki. Systur mínar,
Inga og Lilja, gerðu umslagið og ljós-
myndirnar. Ég leyfði þeim nú bara að
ráða. Ég flaut bara með.“
Og svo ertu að verða stjarna í gay
heiminum...
„Ég og Elton John og Páll Óskar, ha
ha ha …“
Var mikið mál fyrir þig að koma út
úr skápnum?
„Nei, alls ekki. Ég ólst upp í sveit-
inni í Mosfellsbæ og kom ekki út úr
skápnum fyrr en ég var 21 árs. Þá
þekkti ég engan sem var hommi eða
lesbía. Ég þakka þessu hvar ég er
staddur núna. Ég sökkti mér í tón-
listina á þessum tíma – það var bara
semja, semja, semja, semja – ég þurfti
að skapa ofsalega mikið til að láta mér
líða vel. Ef ég hefði verið streit þá
hefði ekki orðið nein Sigur Rós.“
Þannig að samkynhneigðin hefur
aldrei verið neitt vesen?
„Nei, alls ekki. Alltaf bara súper
næs. Mér finnst gaman að þessum
gay-heimi, en ég er ekki mikið viðrið-
inn hann. Mér finnst til dæmis alveg
gaman að fara að sjá dragsjó en ég er
ekkert sjálfur að sýna!“
Fimm í ógnvekjandi sviðsmynd
Jónsi hefur gert þetta oft áður. Gefið
út plötu og spilað í kjölfarið um allan
heim. Go-túrinn hefst 6. apríl í Van-
couver, Kanada, og svo verður spilað
og ferðast, spilað og ferðast um allan
heim. Það verður víst rosaleg sviðs-
mynd á tónleikunum.
„Ég er ekki búinn að sjá hana enn
þá,“ segir Jónsi. „Það er búið að hæpa
þessa sviðsmynd svo mikið upp að ég
er orðinn skíthræddur við það hvern-
ig þetta verður. Ég er bara eitthvað að
væflast í Reykjavík – að ná í skó til
Þráins skóara og að ná í púða sem var
verið að gera fyrir mig hjá Bólstrun
Ásgríms – og svo fer ég á netið og sé
einhverja svaka sviðsmynd sem er
verið að gera fyrir mig. Það er frekar
ógnvekjandi, sko. Það er dálítið ógn-
vekjandi að vera miðpunkur athygl-
innar. En ég held að þetta verði mjög
flott. Mig hefur lengi langað til að
breyta frá þessu týpíska rokksjói með
reykvél og ljósum og gera eitthvað
annað. Þessir gæjar sem gera þetta
koma úr leikhús- og óperuheiminum
svo þetta er mjög spennandi.“
Á svo ekki að spila á Íslandi?
„Jú, ég er að vona það, í lok ársins.
Spila í Höllinni. Verst að ég held að
sviðsmyndin komist ekki inn í Höllina,
hahaha. Kannski þarf ég að bíða þang-
að til Harpan opnar.“
Hverjir eru að spila með þér?
„Við erum fimm á sviðinu. Alex sér
um sampl-heiminn. Það er um að gera
að hafa karlinn með sér í þessu. Úlfur
Hansson (úr Klive og Swords of Chaos)
spilar á bassa og er góður í svona raf-
dóti. Þorvaldur Þór Þorsteinsson er
á trommunum. Síðan er Óbó (Ólaf-
ur Björn Ólafsson) á píanó. Hann er
reyndar trommari en fannst miklu
meiri ögrun að spila á píanó.“
Hvað með framtíðina?
„Það er bara að túra út árið og sjá
hvernig það gengur. Við Í Sigur Rós
vinnum saman á milli túra og semj-
um ný lög og svona. Það væri æðis-
legt ef við gætum gert nýja plötu 2011.
Við erum byrjaðir að spá í nokkrum
lögum.“
Þannig að þú lítur ekki endilega á
sólóið sem framtíðarmálið?
„Nei, nei. Maður er alltaf með putt-
ana í öllu og að vasast í ýmsu. Það er
allt leyfilegt.“
Síðasta platan sem þér fannst æðis-
leg?
„Það er 4 diska Bing Crosby sett, sem ég
keypti hjá Ása í Smekkleysu. Ég er ekki
búinn að spila annað síðan ég keypti
það.“
Síðasta bókin sem þú last?
„Ég var að lesa Kirkju hafsins. Þetta er
spænskt fjölskyldu-drama. Skemmtilegt
samt.“
Síðasta sundlaugin sem þú fórst í?
„Sundhöllin.“
Síðasti maturinn sem þú eldaðir?
„Ég eldaði karrí gúllas úr kasjúhnetum
og einhverju dóti í gær.“
Síðasta dvd-ið sem þú sást?
„Ég er bara búinn að vera að horfa á
Arrested development sjónvarpsseríuna.
Það er allt í lagi, svolítið þreytandi samt.“
Síðasta kreditkortafærslan þín?
„Ég var að ná í skó til Þráins skóara. Lét
sóla skóna mína.“
SÍÐAST (EN EKKI SÍST)