Fréttablaðið - 20.03.2010, Síða 42
Hjálparstarf kirkjunnar6
Þróunarverkefni Hjálparstarfs
kirkjunnar eru í Afríkulöndunum
Eþíópíu, Úganda og Malaví og
á Indlandi.
Vatn gerir kraftaverk
Vatnsskortur er höfuðvandamálið
á starfssvæðum Hjálparstarfsins
í Afríku. Fara þarf æ lengri veg oft
í staðna polla fulla af ormum,
skordýrum og bakteríum. Aðgangur
að hreinu vatni gjörbreytir lífi og
aðstæðum. Hreint vatn gerir
kraftaverk. Borað er eftir vatni,
grafnir brunnar og vatnsþrær.
Alnæmi
Barátta gegn HIV/alnæmi og
afleiðingum þess er þáttur í öllum
verkefnum. Lögð er áhersla
á fræðslu um smitleiðir og að
breyta áhættuhegðun. Fólk er hvatt
í alnæmispróf og hjálpað til að fá
lyf. Munaðarlaus börn sem misst
hafa foreldra úr alnæmi, einstæðar
mæður með alnæmi og ömmur
sem tekið hafa að sér munaðarlaus
barnabörn fá stuðning til að sjá sér
og sínum farborða. Börnum er komið
í skóla og þeim reist örugg hús,
með vatnstanki fyrir rigningarvatn.
Mannréttindi
Börn eiga rétt á að vera börn.
Samstarfsaðilar Hjálparstarfsins
á Indlandi leysa þrælabörn úr
skuldaánauð og búa þau undir
almenna skólagöngu. Foreldrar eru
fræddir um gildi skólagöngu
barnanna, um réttindi sín og
hjálpað til að stofna stéttarfélög.
Menntun er grundvöllur með-
vitundar um jafna stöðu í hverju
samfélagi. Heimavist fyrir börn
sem annars fá engin tækifæri til
mennta er liður í að efla undir-
okaðar stéttir til þátttöku og
áhrifa í lýðræðisþjóðfélagi. Fólkið
í verkef num Hjálparstarfsins er
frætt um kerfið; rétt, þjónustu, lög
og venjur sem viðhalda fátækt.
Konur eru styrktar með atvinnu-
skapandi aðgerðum sem færa þeim
fjárráð og áhrif. Unnið er gegn
kynbundnu ofbeldi með leiðtogum,
stofnunum og lögreglu.
Tré gróðursett hjá lindum
ber ávöxt
Umhverfisvitund er innbyggð
í verkefnin. Fólki er kennt að rækta
upp græðlinga og gróðursetja
meðfram ám og lónum til að halda
í jarðveg og raka. Nýjar ræktar-
tegundir eru kynntar og skipt
á tegundum sem dregur úr
næringartapi í ökrum. Náttúruleg
hringrás verndar auðlindir.
Indland
- Þrýstingur á stjórnvöld að fara
að lögum um barnavernd,
barnaþrælkun og skólaskyldu
- Fræðsla til almennings og
hvatning um að segja frá
barnaþrælkun
- Heimavistarskólar með heilsu-
farseftirliti, næringarríkum
máltíðum, fatnaði og skóladóti
- Barnaþing kenna börnum
lýðræðislegar leiðir til að öðlast
mannréttindi
- Réttindafræðsla, lögfræðiaðstoð
og réttindabarátta
- Fjárstuðningur vegna skóla-
göngu barna, giftinga, veikinda,
slysa o.fl.
- Smálán til foreldra, námskeið til
atvinnusköpunar
Eþíópía
- Vatnsþrær gerðar
- Tæknirannsóknir fyrir vatnsöflun
- Bændur þjálfaðir til að greina og
lækna helstu búfjársjúkdóma
- Konur fá skepnur til að fita og
selja til eigin tekjuöflunar
- Kvennanámskeið um meðferð og
geymslu matar
- Karlanámskeið um meðferð og
geymslu uppskeru
- Þjálfun fyrir opinbera starfsmenn
til að styðja við íbúa
- Námskeið fyrir opinbera starfs -
menn um félagslegar og heilsu-
farslegar afleiðingar HIV/ alnæmis
- Fræðsla til smitaðra mæðra um
aðrar leiðir en brjóstagjöf
- Námskeið fyrir opinbera
starfsmenn um jafnréttismál og
þúsaldarmarkmið Sameinuðu
þjóðanna
- Þjálfun fyrir opinbera
starfsmenn í að virkja fólk til
þátttöku í þróun sem forsendu
árangurs
- Hópefli og þjálfun fyrir leiðtoga
þorpa og opinbera starfsmenn til
samvinnu
- Námskeið um ástand náttúru-
auðlinda, vernd, sjálfbærni og
ofnýtingu
- Fræðsla um vinnslu og geymslu
uppskeru svo hún nýtist betur
og dragi úr ofnýtingu á litlu
ræktarlandi
- Sparhlóðir sem þurfa helmingi
minna eldsneyti
- Nýting taðs frá skepnum til að
styrkja næringarhringrás jarðvegs
- Stofnaðir íbúahópar til að vinna
að ýmsum málefnum, t.d. land-
vernd, ræktun beitarlands og
vatnsmálum á grunni nýrrar
þekkingar
- Kennsla og tól til stallagerðar til
að hefta framrás vatns og binda
í jarðvegi til ræktunar
Úganda
- Hús byggð fyrir munaðarlaus
börn auka öryggi – eldhús og
kamrar auka hreinlæti
- Börn fá grunnhúsbúnað og áhöld
- Þvottaaðstaða sett upp við
heimili munaðarlausra barna
- Eldhús reist við íbúðarhús til að
halda matargerð aðskilinni
- Barátta gegn fordómum. Frætt er
um smitleiðir og áhættuhegðun
- Sjálfboðaliðar þjálfaðir til að
veita sjúkum og eftirlifendum
reglulegan stuðning
- Greidd skólagjöld, föt, námsgögn
fyrir yngri börn
- Eldri börnum hjálpað að læra
handverk til tekna
- Börnum kennd jarðrækt og
hjálpað með tegundir sem þau
ráða við
- Vatnstankar settir upp til að
spara erfiða vinnu, efla heilsu
og hreinlæti
Malaví
- Brunnar boraðir
- Lítil uppistöðulón gerð
- Vatnstankar settir upp
- Pumpur settar upp fyrir áveitur
- Kennsla, fræ, tól til jarðræktar
- Geitur og hænur afhentar,
bændur gefa öðrum fyrsta
afkvæmi
- Námskeið og fundir um
heimilisofbeldi
- Þorpsleiðtogar þjálfaðir til að
taka á ofbeldismálum og veita
þolendum stuðning
- Veitt efnisleg aðstoð fyrir
þolendur heimilisofbeldis
- Alnæmisjúkir, einstæðir og
munaðarlaus börn studd til að
taka þátt í umræðum og
ákvörðunum þorpa
- Bæði kynin taka jafnan þátt
í verkefnum, öðlast sömu
eignartilfinningu og njóta
afraksturs
- Námskeið um lög og reglur um
vatn, verndun þess og ábyrgð
einstaklingsins
- Fundir með opinberum starfs-
mönnum og þorpsleiðtogum um
rétt og skyldur vatnsnotenda og
þeirra sem veita þjónustuna
- Vettvangsferðir til að kynnast
vatnssöfnunaraðferðurm og
áveitutækni
- Gróðurrækt til að binda jarðveg
og vatn
- Nýjum tegundum dreift til
ræktunar til að hlífa jarðvegi
- Fræbanki
- Fræðsla um varnir gegn flóðum
og þurrkum
- Kennsla í gerð lífræns áburðar
- Nýjar tegundir útvegaðar til að
rækta eldivið og hlífa
umhverfinu
Fólkið er stolt af sínu framlagi – enginn situr hjá
Hér eru gefin dæmi um það sem er gert í hverju landi
Vatnsþró í Eþíópíu
Brunnur í Malaví
Munaðarlausir bræður með ráðgjafa
Þrælabarn á Indlandi