Fréttablaðið - 20.03.2010, Qupperneq 47
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
„Í dag ætla ég að hefja daginn eld-
snemma,“ segir Jóhannes Kjart-
ansson ljósmyndari hress í bragði,
en hann hyggst líta inn á útgáfu-
hóf í Hafnarhúsinu klukkan 13.
Hófið er haldið í tilefni af útgáfu
Mænu, sem er splunkunýtt ársrit
útskriftarnema í grafískri hönn-
un við Listaháskóla Íslands. „Því
hvíslaði að mér lítill blár fugl að
um afar veglegt rit sé að ræða,“
segir Jóhannes.
Að því loknu ætlar Jóhannes á
sýninguna Álagafjötra sem góð-
vinkonur hans Hildur Yeoman
og Saga Sig opnuðu síðastliðinn
fimmtudag. „Allt sem þær snerta
verður að gulli. Ég læt mér því
nægja að gefa þeim fingurkoss
ef ég rekst á þær,“ segir Jóhann-
es. „Um kvöldið ætla ég á Reykja-
vík Fashion Festival í Kaaber-
húsinu. Þar sem ég tók myndir af
öllum fatahönnuðunum fyrir tíma-
rit hátíðarinnar mun stór hluti
kvöldsins líklega fara í að forðast
fljúgandi kampavínsglös og fagur-
lega mynduð fúkyrði. Hátíðin slít-
ur barnsskónum afar hratt og ég
mun eiga fullt í fangi með að fylgj-
ast með nýjustu tískustraumun-
um og ástföngnu tískutöppunum,“
segir Jóhannes.
Síðar um kvöldið heldur Jóhann-
es svo á NASA þar sem hann seg-
ist þess fullviss að Ladytron og
Peaches muni sjá um að hrista úr
honum líftóruna. „Ef tími gefst til
mun ég svo reyna að hengja mig
til þerris á nýuppsettan snaga í
glugganum á Kaffibarnum. Um
fimmleytið verður mér svo hent
út fyrir að taka ljósmyndir af við-
stöddum, sem er yfirleitt góður
mælikvarði á það hvenær skyn-
samlegt er að fara heim í háttinn,“
segir ljósmyndarinn og skellir upp
úr.
„Á sunnudaginn mun ég að öllum
líkindum vakna eldseint og fara á
KFC í Skeifunni með kærustunni
minni. Ef við verðum ævintýra-
gjörn þá skellum við okkur á exót-
ískan twister með bros á vör eftir
vel heppnaða tísku- og hönnunar-
helgi,“ segir Jóhannes Kjartans-
son. kjartan@frettabladid.is
Fljúgandi kampavínsglös
Jóhannes Kjartansson ljósmyndari hefur í nægu að snúast um helgina, sem snýst að mestu leyti um
tísku og hönnun af ýmsu tagi. Hann ætlar þó líka að gefa sér tíma til að fá sér exótískan Twister á KFC.
Jóhannes ætlar meðal annars að heimsækja skemmtistaðina Nasa og Kaffibarinn um helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
TÍSKUSÝNING 2. ÁRS NEMA fatahönnunarbraut-
ar hönnunar- og arkitektúrdeildar Listaháskóla Íslands fer
fram á Nasa í kvöld klukkan 21. Þar sýna fimmtán tilvon-
andi fatahönnuðir hönnun sína á tískupöllunum.
Patti húsgögn
Landsins mesta úrval af sófasettum
Láttu þér líða vel í sófa frá Patta
Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is
Opið : Mánud. - Föstud. frá 9 til 18 og Laugard. frá 11 til 16
man-8201 leður hæginda sófasett
3ja sæta
- 269.900 k
r
2ja sæta
- 220.900 k
r
stóll - 139.90
0 kr
Opið mán - fös 10-18, laugardaga 10-16
Mörkinni 6 - Sími 588 5518
Lín Design, gamla sjónvarpshúsið Laugavegi 176 Sími 533 2220 www.lindesign.is
FERMINGARTILBOÐ
Jóna María Hafsteinsdóttir
jmh@365.is - sími 512 5473
Henný Árnadóttir
henny@365.is - sími 512 5427
Þórdís Hermannsdóttir
thordish@365.is - sími 512 5447