Fréttablaðið - 20.03.2010, Side 49

Fréttablaðið - 20.03.2010, Side 49
LAUGARDAGUR 20. mars 2010 3 Jökulsárlón og Breiðamerkurfjall mynda bak- grunn sýningarinnar. MYND/RAGNAR TH. Undraheimur íssins er óþrjótandi myndefni hjá Ragnari Th. Hér í íshelli í Breiðamerkurjökli. Klakaborgirnar taka á sig ótrúlegar myndir eins og sýningin við Jökulsárlón ber með sér. MYND/RAGNAR TH. Ferðafélag barnanna sem sett var á laggirnar af Ferðafélagi Íslands síðastliðið sumar var stofnað með formlegum hætti á aðalfundi félags- ins í byrjun mars. Ferðafélag barnanna er ætlað yngri börnum, frá 0-12 ára, og með starfsemi félagsins hyggst Ferðafélag Íslands stuðla að því að börn kynnist útivist og náttúru Íslands með jákvæðum hætti frá unga aldri. Félagið mun starfa af krafti í sumar og verður nánar kynnt síðar hvernig starfseminni verður háttað. Sjá nánar á heima- síðu Ferðafélagsins, fi.is. Ferðafélag barnanna Tímaritið Útivera kemur út á ný nú á vormánuðum. Það er fyrirtæk- ið Athygli sem gefur blaðið út og ritstjóri þess verður Valþór Hlöð- versson en í þriggja manna ritnefnd sitja Gunnar Hólm Hjálmarsson, Ragnheiður Davíðsdóttir og Páll Ásgeir Ásgeirsson. Útivera mun, eins og áður, fjalla um útiveru, ferðalög, fjallgöngur og íslenska náttúru í sem víðustum skilningi. Útivera kemur út á ný Á veðurspádeild Veðurstofu Íslands varð Óli Þór Árnason veð- urfræðingur fyrir svörum. Hann benti á nokkra hluti sem hafa áhrif á veður og þróun þess næstu vikur. Veturinn sem er að líða hefur verið óvenjulega mildur og snjóléttur. Sumpart stafar það af hærri hita en í meðalári og sumpart af því að ríkjandi vindáttir hafa ekki skilað til landsins eins mikilli úrkomu og vænta má í meðalári. Þetta hefur leitt til þess að afar lítill snjór er á fjöllum uppi og lítil sem engin fyrirstaða í honum gagnvart hláku. Lítið sem ekkert frost er í jörðu og með hækkandi sól fer að gæta bráðnunar á fjöll- um uppi yfir daginn jafnvel þótt hitastig sé undir frostmarki. Óli Þór sagði að talsverðar líkur væru taldar á að veður yrði milt og átakalítið næstu þrjár vikur eða fram yfir páskana sem nálg- ast óðfluga. Þótt langtímaspár séu að jafnaði ekki eins áreiðan- legar og skemmri spár eru þó um 50% líkur á að þær standist. Sam- kvæmt þeim verða austlægar og suðlægar áttir ríkjandi á land- inu með fremur háu hitastigi. Sú úrkoma sem fylgir verður því að líkindum í formi regns á láglendi en líklega snjókomu til fjalla og ef til vill norðanlands. Í eyrum þeirra sem hyggja á ferðalög til fjalla á næstunni hljómar þetta ekki sérlega vel. Lít- ill snjór og sólbráð þýðir að kra- pablár taka að myndast og þegar þeim sleppir tekur aurbleyta við. Gönguskíðamenn í hálendisferð- um hafa snúið frá hálendinu síð- ustu viku vegna snjóleysis og lík- legt að svo verði áfram. Þó er ekki útilokað að skíðamenn geti haldið til fjalla norðanlands og efnt til langferða um Mývatnsöræfi og nágrenni og eins er talið að sæmi- leg snjóalög séu á fjöllum víða á Vestfjörðum og á Hornströndum. Af hefðbundnum skíðasvæðum er það að frétta að ekki er þess að vænta að viðri til skíðaferða sunn- anlands og því líklegt að straumur- inn liggi til Norðurlands þar sem von er á einhverjum snjó og sér- staklega horft til skíðasvæða þar sem snjór er framleiddur. Einar Sveinbjörnsson veður- fræðingur skrifar bloggsíðu um veður og tengd málefni á slóð- inni www.esv.blog.is. Hann segir í nýlegri færslu að haldist veður svona milt næstu vikur megi búast við að gróður á láglendi fari að koma til, einkum þar sem mæl- ingar sýni að frost í jörðu sé nán- ast ekki neitt. Á þessum vangaveltum er vandasamt að byggja ferðaáætl- un en gangi spár um milt veður eftir viðrar vel til fjallgangna og alhliða útivistar næstu vikur. Nú fer birtutíminn í hönd og bráðlega verður hægt að vera úti langt fram á kvöld. Gert ráð fyrir mildu veðri fram yfir páska „Hvernig verður veðrið um páskana?“ Þannig má vel spyrja en líklega er óraunhæft að fá áreiðanlegt svar við spurningunni. Þótt rigni og blási á fjöllum er það alltaf jafnskemmtilegt. Þessi hópur tekur þátt í átaki Ferðafélagsins um eitt fjall á viku og það skýrir númerið sem ein stúlkan heldur á. Ferðafélag Íslands efnir til sum- armálaferðar undir yfirskrift- inni: Vor í Árneshreppi. Dvalið verður í þrjá daga á Valgeirsstöð- um í Norðurfirði við fjallgöngur á sjaldfarna og tignarlega tinda í nágrenninu, sundferðir og rann- sóknir á litríkri sögu staðarins í fortíð og nútíð. Þátttakendur fara á eigin bílum úr Reykjavík norður í Árnes- hrepp á sumardaginn fyrsta, 22. apríl. Haft verður samflot að fornum sið og áð á völdum stöð- um á leiðinni. Síldarminjasafnið á Djúpuvík heimsótt undir leið- sögn staðarhaldara og þaðan ekið út að Gjögri og gengið á Reykja- neshyrnu síðdegis til að átta sig. Undir kvöld koma menn sér fyrir á Valgeirsstöðum og demba sér í sund í Krossnesi um kvöld- ið. Daginn eftir, á föstudag, er gengið á Kálfatinda sem gnæfa tignarlegir yfir Norðurfirði og að lokinni sundferð er kvöldmatur og kvöldvaka. Á laugardegi er gengið á Töflu eða Finnbogastaðafjall og síð- degis verður stefnumót við fróða heimamenn sem segja sögu sveit- arinnar og frá undarlegum hlut- um sem hún geymir. Um kvöldið er kvöldvaka á Valgeirsstöðum og vonandi kemur leynigestur á vökuna. Á sunnudegi taka menn saman og aka heimleiðis með viðkomu á merkum sögustöðum í Árnes- hreppi þar sem hryllilegir atburðir gerðust og rifjuð verða upp helstu atvik Flóabardaga sem lauk á þessum slóðum á söguöld. Þótt nóttin sé að verða björt um sumarmál er allra veðra von. En þátttakendur vilja fagna komu vors og sumars og leggjast í fang náttúrunnar hvernig sem viðrar og skulu því vera búnir til óveð- ursgöngu ekki síður en sólbaða. Fararstjórar eru Páll Ásgeir Ásgeirsson og Rósa Sigrún Jóns- dóttir. Innifalið í verði er gist- ing á Valgeirsstöðum og farar- stjórn. Sjá nánar á heimasíðu Ferða- félags Íslands, fi.is Skráning á skrifstofu Ferðafélags Íslands í síma 568-2533. Takmarkaður fjöldi og fyrstir koma fyrstir fá. Vor í Árneshreppi Hinir tignarlegu Kálfatindar gnæfa yfir Norðurfirði. Ferðafélag Íslands efnir til ferða- lags um sumarmál undir heitinu: Vor í Árneshreppi og þá verður gengið á tindana. MYND/PÁÁ Félagar í Ferðafélagi Íslands eru nú tæplega átta þúsund. Stjórn félagsins hefur sett sér það markmið að fjölga þeim í 10 þúsund. Margvíslegur ávinningur er af því að vera félagi í Ferðafélagi Íslands. Innifalið í árgjaldi sem heimt er inn árlega er glæsileg árbók sem félagið gefur út og leggur mikinn metn- að í. Auk þess fá félagar verulegan afslátt af gist- ingu í skálum félagsins, afslátt af útivistar- fatnaði og búnaði í fleiri en einni verslun. Síðast en ekki síst eru virkir félagar í FÍ þátttakendur í heilbrigðum lífsstíl sem kall- ar fram sanna lífsgleði, aukið heilbrigði og vellíðan sem verður aldrei metin til fjár. Skráðu þig inn- drífðu þig út. Í þessu kjörorði felst áskorun sem erfitt er að standast. Skráðu þig – drífðu þig út Hinn 4. mars hófust gönguferð- ir fyrir eldri og heldri borgara á vegum Ferðafélags Íslands. Gönguferðirnar eru á þriðjudög- um og fimmtudögum og hefjast ávallt kl. 14.00. Á þriðjudögum hittast þátttakendur við Árbæj- arlaug en þaðan er auðvelt að komast inn á kerfi gangstíga sem teygir sig um allan Elliðaárdal og upp að Elliðavatni. Á fimmtudögum hittast menn og konur svo við Nauthól í Naut- hóls vík kl. 14.00 og þaðan liggja stígar meðfram sjónum í báðar áttir og hlykkjast enn fremur um alla Öskjuhlíðina. Ferðafélagið leggur til farar- stjóra í þessar gönguferðir og hefur Alfreð Hilmarsson tekið þetta verkefni að sér fyrir félagið en Alfreð er vaskur göngugarp- ur sem er enn léttur á fæti þótt árunum fjölgi. Þetta verkefni er unnið í samvinnu við Valitor sem hefur átt náið og gott samstarf við Ferðafélag Íslands. Allar rannsóknir sýna að fátt er betri heilsubót til sálar og líkama en að taka sér hressandi göngu- ferð með skemmtilegu fólki. Í þessum ferðum er vegalengd og gönguhraði stilltur í samræmi við virðuleika þátttakenda. FÍ fyrir fullorðna Bráðnandi ísjakar í fjöruborðinu við ós Jökulsár er ein myndanna við lónið. MYND/RAGNAR TH.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.