Fréttablaðið - 20.03.2010, Page 69
FERÐALÖG 7
Vefsíðan www.thecoolhunter.co.uk er algjör snilld fyrir forvitna ferðalanga sem hafa unun af fallegri
hönnun, góðum veitingastöðum, áhugaverðum sýningum og nýjum verslunum um heim allan. Það er
hægt að verða áskrifandi að fréttabréfinu með tölvupósti og ætti það að vera skyldulesning fyrir alla
sem eru að leita að fegurð í heiminum. Ritstjóri vefsins, Bill Tikos, er svo að gefa út bók sem heitir The
World‘s Coolest Hotel Rooms og er væntanleg með vorinu.
Haymarket-hótel í Lundúnum.
miðalda- og barokkkastala sem
minna ferðalanga á prinsess-
ur og riddara fortíðar. Kastal-
arnir voru ekki aðeins byggðir
sem virki konungsfjölskyldunn-
ar heldur átti höllin að sýna auð
og stöðu konunga í áþreifanlegu
verki. Af nokkrum þeirra stór-
brotnustu má nefna Neuschwan-
stein-kastala í Suður-Þýskalandi,
Versali Frakklands, Blarney-kast-
ala Írlands og síðast en ekki síst
Sintra-höllina í Portúgal. Höllin
er afar glæsileg og litfögur og var
áður sumarhöll konungs Portú-
gals. Hún þykir sameina marga
ólíka byggingarstíla og er fullbú-
in húsgögnum enda höllin byggð
1840. Ferðalangar geta svo í leið-
inni gist á gömlum hótelum en þau
eru nokkur í bænum, þar á meðal
annað elsta hótel Evrópu.
Llandudno, Wales
Ef ferðafólki þykir miðaldakast-
ali „of nýr“ getur forneskjufólk-
ið haldið til Llandudno í Wales
sem er magnþrunginn staður.
Þar er að finna fornar koparnám-
ur, The Great Orme Mines, 4.000
ára gamlar, sem uppgötvuðust
fyrir aðeins um 30 árum. Meðal
annars er þar hægt að ganga inn
í einn stærsta og elsta mann-
gerðan helli á jörðu. Bærinn er
strandbær í viktorískum stíl og er
bæjarstæðið einstaklega fallegt.
Höllin í Sintra í Portú-
gal er ótrúleg, enda
talin blanda einna
fimm byggingarstíla.
Á VEIÐUM