Fréttablaðið - 20.03.2010, Side 72
Hjálparstarf kirkjunnar8
Hvort sem neyðin er á Haíti,
í Eþíópíu, Pakistan eða Austur-
Evrópu er kirkjan þar að störfum.
Fyrst þarf að bjarga lífi og vernda
líf – síðan tekur við uppbygging
og þróun.
Nú hefur ACT Alliance verið hleypt
af stokkunum til að samræma
þetta tvennt. Gríðarleg þekking og
reynsla býr með ACT-aðilum.
ACT hefur þann styrk að byggja á
staðarfólki – með viðbótarþekkingu
og mannafla frá öðrum ACT-
aðilum. Það sést best á Haítí nú.
Hjálparstarf er flókið og sérhæft
og það endurspegla gæðastaðlar,
siðareglur og vinnuferlar sem ACT
fylgir. Byggt er á rétti fólks til
mannsæmandi lífs, jafnræðis og
verndar gegn obeldi og kúgun; af
hendi hvers sem er. Starfsfólk er
faglegt í vinnu sinni og meðvitað
um mögulega bresti og hefur því
klár viðbrögð við þeim.
Hjálpar fólki betur
„Með sameiningunni í ACT
Alliance, getum við samþætt
neyðar- og þróunarhjálp og tekið
okkur enn sterkari stöðu með hinum
fátæku” sagði Sambíu maðurinn
John Nduna framkvæm da stjóri
þess arms sem var ACT – neyðar-
hjálp kirkna og Hjálparstarf
kirkjunnar var aðili að. Nær öll
neyðarhjálp Hjálparstarfsins fór
í gegnum hana. Samhliða henni
starfaði ACT – þróunarhjálp kirkna.
En „nú blása vindar breytinga”
sagði Lisa Henry frá Hjálparstarfi
dönsku kirkjunnar sem er öflugur
ACT-aðili. „Sameinuð erum við enn
sterkari og betur í stakk búin til að
mæta þörfum fólks um allan heim.”
150 aðilar með rætur í hverri byggð
Með ACT Alliance urðu til ein stærstu
mannúðar- og þróunarsamtök
heims með nær 150 aðila; kirkjur
og kirkjutengdar stofnanir og
samtök. Heildarfjárhagsáætlun
ACT Alliance fyrir árið 2010 verða
183 milljarðar íslenskra króna. ACT
Alliance er mikilvægur farvegur
fyrir Hjálparstarf kirkjunnar.
Í jólasöfnun Hjálparstarfs kirkjunnar
sem stóð út janúar söfnuðust
68,4 milljónir króna sem renna til
aðstoðar innanlands og til vatns -
verkefna í Eþíópíu, Malaví og
Úganda. Sambærileg tala fyrir
jólasöfnun 2008 var 58 milljónir
króna, sem þýðir að stuðningur
hefur aukist um 18% frá fyrra ári.
Í viðbót við frábæran stuðning
einstaklinga hafa stofnanir, félög,
fyrirtæki og sóknir landsins lagt
fram stórar gjafir til innanlands-
aðstoðar. „Allur kostnaður vegna
aðstoðar innanlands og vegna
vatnsverkefna í Afríku, hefur
aukist mjög vegna kreppunnar,
það er því ómetanlegt að fá svona
frábæran stuðning sem gerir okkur
kleift að standa við allar okkar
skuldbindingar, þrátt fyrir erfiða
tíma“, segir Jónas Þ. Þórisson,
framkvæmdastjóri Hjálparstarfsins.
Hjálparstarf kirkjunnar færir öllum
bestu þakkir fyrir stuðninginn.
Aðstoð Hjálparstarfs kirkjunnar er
í sífelldri endurskoðun til að hjálpin
nýtist sem best. Til að greina þá sem
mest þurfa aðstoð var í febrúar
tekin upp sú stefna að allir
umsækjendur um aðstoð kæmu
með gögn um mánaðarlegar tekjur
og gjöld. Tilgangurinn er að fara
vel í gegnum stöðu hvers og eins
og aðstoða betur þá sem verst eru
staddir.
Í mars var tekinn upp nýr opnunar-
tími fyrir matarúthlutun sem er á
miðvikudögum kl. 12–17. Lengdur
opnunartími á miðvikudögum gefur
fólki færi á að nýta matartíma til
að koma til okkar eða koma eftir
vinnu. Á fimmtudögum sinna
félagsráðgjafar sérafgreiðslu til
fólks sem vegna fötlunar eða af
öðrum sérstökum ástæðum getur
ekki komið á miðvikudögum þegar
mestur fjöldinn er.
ACT Alliance – ein stærstu alheimssamtök
í mannúðaraðstoð
Jólasöfnun gekk vel
Innanlandsaðstoð
í sífelldri endurskoðun