Fréttablaðið - 20.03.2010, Page 84
56 20. mars 2010 LAUGARDAGUR
timamot@frettabladid.is
DR. VALGARÐUR EGILSSON ER
SJÖTUGUR Í DAG.
„Landið fær allt aðra
mynd í huga manns þegar
örnefnin eru kunn.“
Valgarður er læknir og rithöf-
undur sem hefur einnig feng-
ist við fararstjórn. Meðal þess
sem hann hefur skrifað eru
tvö leikrit, Dags hríðar spor
og Maðurinn er normal.
Söngur hefur verið stór þáttur í lífi Andra Björns Róberts-
sonar sem er nýorðinn tuttugu og eins árs. Segja má líka að
Langholtskirkja hafi verið hans annað heimili og þar kemur
hann fram á einsöngstónleikum annað kvöld sem hefjast
klukkan 20. Þeir eru á vegum listafélags kirkjunnar. „Ég
var fimm ára þegar ég byrjaði í kór og tíu ára fór ég að læra
söng hjá Ólöfu Kolbrúnu Harðardóttur óperusöngkonu sem
hefur verið kennarinn minn síðan,“ upplýsir Andri Björn
þegar forvitnast er um grunninn. Sextán ára kveðst hann
hafa innritast í Söngskólann í Reykjavík og ætla að útskrif-
ast þaðan í vor. Hefur hann verið samferða einhverjum
vinum sínum á þessum ferli? „Nei, þetta er nú dálítið sjálf-
hverft nám og maður er mikið einn í því,“ er svarið. Sam-
hliða hefur hann svo verið í hefðbundnara námi og útskrif-
aðist stúdent frá Kvennaskólanum í Reykjavík síðasta vor
en „er að dútla í íslensku í vetur í Háskóla Íslands, svona til
að viðhalda fjölbreytninni,“ eins og hann orðar það.
Andri Björn er sonur Önnu Björnsdóttur tækniteiknara
og Róberts Agnarssonar viðskiptafræðings. Hann ólst upp
í Breiðholtinu þannig að ekki gat hann hlaupið á æfingar í
kirkjunni, rétt sisvona. „Ég var alltaf keyrður og sóttur,“
segir hann. „Mamma var í eilífu skutli.“ Hann segir alls
konar tónlist hljóma í hans heimahúsum, en hvað kýs hann
sjálfur helst að hlusta á? „Mest klassík,“ svarar hann. „En
svo hlusta ég líka á útvarpið og þá fæ ég allan grautinn.“
Hann hefur djúpa rödd og syngur bass-baritón. Varla hefur
það verið sýnt þegar hann var barn. „Nei, ég söng hæsta
sópran til að byrja með en mætti svo dimmraddaður eitt
haustið því ég fór í mútur um sumarið. Ég held að söngnám-
ið hafi hjálpað mér að fara í gegnum þær því ég hafði lært
að beita röddinni.“
Ekki hefur Andri Björn látið námið hjá Ólöfu Kolbrúnu
nægja heldur hefur hann sótt ýmis námskeið hjá öðrum virt-
um kennurum. Af íslenskum nefnir hann Þóru Einarsdótt-
ur og Kristin Sigmundsson og af erlendum Galinu Pisar-
enko, Christopher Field og Alexander Schmalcz. Síðastliðið
sumar bauðst honum þriggja vikna námskeið á Ítalíu sem
einungis tólf efnilegir söngvarar víða að úr heiminum kom-
ust á og það í boði dívunnar Dame Kiri Te Kanawa. „Það
var mjög gaman,“ segir hann. „Þar kenndi Kanawa og líka
Dennis O‘Neill og José Carreras. Síðan fór ég til Frakklands
á ljóðanámskeið.“
Þótt einsöngstónleikar Andra Björns nú séu þeir fyrstu þá
hefur hann oft komið fram áður, bæði sem einsöngvari við
ýmis tækifæri og þátttakandi í nemendaóperu Söngskólans
í Reykjavík. Nú stefnir hann á framhaldsnám erlendis. „Ég
fer líklega til London næsta haust, er kominn inn í skóla þar
sem heitir Royal Academy. Ég fór þangað í nóvember til að
skoða mig um og leist bara mjög vel á,“ segir hann og býst
við þriggja til fjögurra ára útivist. gun@frettabladid.is
ANDRI BJÖRN RÓBERTSSON: ER MEÐ
SÍNA FYRSTU EINSÖNGSTÓNLEIKA
Dimmraddað-
ur eitt haustið
BASS-BARITÓNSÖNGVARINN „Ég var alltaf keyrður og sóttur. Mamma
var í endalausu skutli,“ segir Breiðhyltingurinn Andri Björn um æfinga-
ferðirnar í Langholtskirkju. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Bítillinn John Lennon og ástkona
hans Yoko Ono tóku skyndi-
ákvörðun um að gifta sig á
þessum degi 1969. Eftir nokkrar
þreifingar ákváðu skötuhjúin að
gifta sig á Gíbraltar. Þau flugu
þangað í einkaflugvél 20. mars
og fóru beint til bresku ræðis-
mannsskrifstofunnar þar sem 10
mínútna athöfn var framkvæmd
af ritaranum Cecil Wheeler. Eftir
innan við klukkutíma stopp flugu
þau til Amsterdam, komu sér
fyrir í aðalsvítu Hilton-hótelsins,
þar sem þau dvöldu í viku og ræddu frið á jörð. Blaðamenn áttu
þar greiðan aðgang milli klukkan 10-22 á hverjum degi. Lennon
samdi síðar The Ballad of John and Yoko um ævintýrið.
ÞETTA GERÐIST: 20. MARS 1969
Lennon og Yoko gifta sig
Innilegar þakkir til allra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát
og útför móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
Sigurlaugar Jónsdóttur
Hjallabraut 33, Hafnarfirði.
Jón Aðalsteinsson Guðbjörg J. Eyjólfsdóttir
Björg Aðalsteinsdóttir Ómar Ólafsson
Kristín J. Aðalsteinsdóttir Björn Ágústsson
Eygló Aðalsteinsdóttir Bergsveinn Halldórsson
barnabörn og barnabarnabörn.
100 ára afmæli
Björg E. Elísdóttir
verður 100 ára 23. mars nk.
Björg tekur á móti vinum og
ætting jum í tilefni dagsins 21. mars
í Víkingasal, Hótel Loftleiða
milli kl. 15.00–17.00
Okkar bestu þakkir fyrir samúð og
hlýhug við andlát vinar og frænda,
Ragnars Þ.
Guðmundssonar
bónda, Nýhóli, Fjöllum,
sem við fylgdum þann 6. mars sl. með yndislegri
stund í Húsavíkurkirkju og í Bjarnahúsi að athöfn
lokinni. Enn og aftur, innilegar þakkir til starfsfólks á
Heilbrigðisstofnun Þingeyinga fyrir umönnun og hlýju.
Þeim sem vildu minnast þessa yndislega manns er bent
á styrktarfélag Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga (1110
26 1060 kt. 520296 2479).
F.h. aðstandenda,
Guðrún Garðarsdóttir
Unnur Sig. Gunnarsdóttir
Þorbjörg Júlíusdóttir.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
María Öen Magnússon
ljósmóðir, Hjúkrunarheimilinu
Eir, Reykjavík, áður til heimilis að
Bleikjukvísl 15, Reykjavík,
lést fimmtudaginn 18. mars. Útförin fer fram frá
Fríkirkjunni í Reykjavík, föstudaginn 26. mars kl. 15.00.
Rögnvald Othar Erlingsson Helena Kristjánsdóttir
Erling Elís Erlingsson Ásdís Bjarnadóttir
Baldur P. Erlingsson Bryndís Helgadóttir
barnabörn og barnabarnabarn.
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Grétar Guðmundsson
frá Hól í Hafnarfirði,
lést þann 9. mars. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að
ósk hins látna.
Gréta Dóra Grétarsdóttir Birgir Ottósson
Sigþór Grétarsson
Grétar Þór Grétarsson Katrín Sigurþórsdóttir
Hanna Grétarsdóttir Örvar Már Haraldsson
barnabörn og barnabarnabörn hins látna.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
Áslaug Hafberg
fyrrverandi kaupmaður,
Vesturgötu 7, Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir miðvikudaginn 17. mars.
Útförin verður auglýst síðar.
Elías Árnason Jette Svava Jakobsdóttir
Gunnar Viðar Árnason Bjarnveig Valdimarsdóttir
Bjarney Anna Árnadóttir Friðfinnur Halldórsson
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug
við andlát og útför ástkærs vinar míns,
bróður okkar og mágs,
Guðmundar
Ásbjörnssonar
Faxastíg 22, Vestmannaeyjum.
Sérstakar þakkir eru til starfsfólks Sjúkrahúss
Vestmannaeyja.
Sigurlaug Ólafsdóttir
Fjölnir Ásbjörnsson Guðlaug Kjartansdóttir
Garðar Ásbjörnsson Ásta Sigurðardóttir.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir og afi‚
Ingvar Þorgilsson
fyrrverandi flugstjóri, Vogatungu 19,
Kópavogi,
lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi,
laugardaginn 13. mars. Útförin fer fram frá
Kópavogskirkju þriðjudaginn 23. mars kl. 15.00.
Inga Thorlacius
Ágústína Ingvarsdóttir Kristinn Sigtryggsson
Haraldur Ingvarsson Nanna K. Árnadóttir
Þorgils Ingvarsson Hólmfríður Benediktsdóttir
og barnabörn.
Hjartkær frænka okkar,
Helga Guðjónsdóttir
Litlu Háeyri, Eyrarbakka,
lést á Kumbaravogi miðvikudaginn 17. mars.
Brynjólfur G. Brynjólfsson
Bára Brynjólfsdóttir
Auðbjörg Ögmundsdóttir
Valgerður K. Sigurðardóttir