Fréttablaðið - 20.03.2010, Page 86
58 20. mars 2010 LAUGARDAGUR
BAKÞANKAR
Davíðs Þórs
Jónssonar
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Þetta er eitthvað
alveg nýtt. Ég er á
mjög leitandi tíma-
bili! Ég er að leita að
einhverju alveg nýju!
Hvernig
væri að
fá sér
vinnu?
Já! Það
væri
frábært!
„Skjóta“?
Eruð þið Dóróthea
enn að skjóta
ykkur saman?
Eruð þið
saman? Ekki
þannig
séð.
Hvað þá,
eruð þið
ekki par?
Það er svo
mikil tíma-
skekkja.
Hvað eruð
þið þá? Við erum
samrýmdir selir
með varir sem
sogast hvor að
öðrum.
Mmm. Það er
vanillubragð af
hálsinum á þér.
Hey strákar,
getið þið
rétt mér
hjálparhönd?
Ég heiti Solla, þetta
er Hannes bróðir
minn og þetta er
Lóa, litla systir okkar.
Og þið hljótið að vera
stoltu foreldrarnir.
Við viljum frekar vera
kölluð „stolt af því að hafa
tórað svona lengi“.Gaman að hitta ykkur.
Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24
alla virka daga frá kl. 9-17.
óðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn...
Blaðberinn
bíður þín
Um daginn hringdi fornvarnarfulltrú-inn í skóla sonar míns í mig. Um leið
og hún kynnti sig fann ég hjartsláttinn
örvast og áhyggjurnar flæða um líkam-
ann. „Í hverjum andskotanum er strákur-
inn nú lentur?“ hugsaði ég. Í ljós kom að
erindi hennar varðaði son minn ekki neitt
heldur allt annað.
EN þetta minnti mig á sögu sem gömul
skólasystir mín sagði mér. Hún er nú
prestur í sveit. Eitt af hennar fyrstu
verkum var að afhenda fermingarbörn-
um sínum námsgögn. Hún ákvað að nýta
tækifærið til að kynna sér staðhætti í
sveitinni og keyra um prestakallið sjálf
til að afhenda þeim bækurnar. En henni
gekk erfiðlega að finna einn bæinn.
Hún renndi því í hlað á öðrum bæ til að
spyrja til vegar. Þar kom eldri kona til
dyra en þegar hún sá prest í einkennis-
skyrtu stéttarinnar ljóslifandi á hlaðinu
hjá sér kom hún ekki upp einu orði held-
ur brotnaði saman og brast í grát.
Það tók þessa fyrrum skólasyst-
ur mína dágóða stund að róa
konugreyið og útskýra fyrir
henni að hún væri bara að
spyrja til vegar, hún ætti
ekkert erindi við hana sjálfa.
ÞESSI gamla kona er ábyggi-
lega hvorki heimsk né vit-
laus, viðbrögð hennar voru
sennilega fullkomlega eðlileg í ljósi
reynslu hennar af fyrirvaralausri og
óundirbúinni heimsókn prests í embætt-
isklæðum. Slík heimsókn hefur væntan-
lega ávallt boðað henni harm og sáran
missi. Ég tala nú ekki um ef hún hefur
á þessum tíma vitað af kærum ástvini á
sjó eða öðru ferðalagi. Hún hefur ekkert
að skammast sín fyrir og þarf ekki að
biðjast afsökunar á neinu.
AFTUR á móti er það umhugsunarefni
hvort prestastéttin skuldi konu þess-
ari ekki afsökunarbeiðni fyrir að hafa
ekki dúkkað upp í lífi hennar öðruvísi
en þannig að viðbrögð af þessu tagi séu
eðlileg við óútskýrðri heimsókn fulltrúa
hennar. Það er vissulega eitt af hlutverk-
um prests að tilkynna fólki dauðsföll ást-
vina og mikilvægt að það sé gert af alúð
og nærgætni. Ég hef heyrt margar hryll-
ingssögur af prestum við slíkar kringum-
stæður. En þar sem þetta er eitt af hlut-
verkum presta er kannski einmitt þeim
mun mikilvægara að það sé ekki eina
hlutverk þeirra.
ÞESSI saga hlýtur líka að vera verðandi
prestum umhugsunarefni. Hver er arf-
leifðin sem tekið er við? Inn í hvaða
ímynd er gengið? Hve eftirsóknarvert er
það hlutverk í daglegu lífi fólks að vera
aldrei neitt annað en boðberi válegra
tíðinda, engill dauðans?
Englar dauðans