Fréttablaðið - 20.03.2010, Síða 88
60 20. mars 2010 LAUGARDAGUR
menning@frettabladid.is
ath kl. 16 á morgun
Átta kórar halda sameiginlega tónleika
í Kjarnanum í Mosfellsbæ. Í Mosfells-
bæ eru starfræktir tveir barnakórar,
tveir kvennakórar, sex blandaðir
kórar og einn karlakór. Kórarnir
sem taka þátt í tónleikunum eru:
Álafosskórinn, Barnakór yngri deildar
Lágafells- og Varmárskóla, Kammerkór
Mosfells bæjar, Karlakór Kjalnesinga,
Mosfellskórinn, Skólakór Varmárskóla,
Karlakórinn Stefnir og Vorboðarnir.
> Ekki missa af …
Brynhildur Guðjónsdóttir
verður með nokkrar sýningar á
Brák sinni í Landnámssetrinu
í apríl og er miðasala hafin.
Brynhildur gerði hlé á sýning-
um þegar Frida fór í sýningar
en hafði þá heillað gesti
Landnámsseturs veturlangt.
Nú er því tækifæri fyrir þá sem
sáu ekki einleik hennar um
keltnesku ambáttina, fóstru
Egils og Þórólfs, að sjá þennan
rómaða einleik. Miðapantanir
eru á www.landnamssetur.is.
Á morgun kl. 14.00 verða tónleikar í tónleikaröð
Menningarmiðstöðvarinnar Gerðubergs; Tóney í
Gerðubergi. Þar kemur Egill Ólafsson fram ásamt
Caput-hópnum og flytur Ástarsögu úr fjöllunum
eftir Guðrúnu Helgadóttur. Guðni Franzson tónlist-
armaður hefur samið sönglög við texta Péturs Egg-
erz sem tengjast þessari fallegu sögu. Aðgangur á
tónleikana er ókeypis.
Sagan kom út á bók fyrir mörgum
árum skreytt af Brian Pilkington og varð
metsölubók: segir þar af tröllskessunni
Flumbru sem verður svo hræðilega
ástfangin af stórum og lötum tröllkarli
sem býr langt í burtu. Hún verður
að leggja á sig mikið og áhættusamt
ferðalag til að njóta ásta með honum,
það tekst meðan nóttin er löng. Tónlist-
in við Ástarsögu úr fjöllunum var samin
fyrir nokkrum árum fyrir barnatónleika Sinfóníu-
hljómsveitar Íslands en heyrist nú í nýjum búningi
fyrir minni hóp hljóðfæra. Tóney í Gerðubergi er
tónleikaröð ætluð tónlistarunnendum
á öllum aldri, með þátttöku leik-
inna sem lærðra, ungra sem ald-
inna, fjölbreytt efnisskrá í flutningi
upprennandi tónlistarfólks jafnt sem
atvinnumanna. Lögð er áhersla á
breiða þátttöku, söng og hljóð-
færaleik en einnig tengingu við
heim leikhússins og dansins.
Gestgjafi og umsjónarmaður
Tóneyjar í Gerðubergi er Guðni
Franzson tónlistarmaður. Tón-
leikarnir eru um klukkustund-
ar langir, án hlés og hefjast kl.
14. Aðgangur er ókeypis.
Egill með Caput í Gerðubergi
Beint ofan í Hönn-
unarmars senda
útskriftarnemar í
grafískri hönnun við
Listaháskóla Íslands
frá sér ársrit, Mæna
kallast það og heit-
ið tvírætt. Er hinn
opinberi útgáfutími í
dag kl. 13 og er opn-
unarhátíð í Lista-
safni Reykjavíkur,
Hafnarhúsi.
Mænu fylgir blað
með sýnishorni af
verkum. Samtím-
is verður opnaður
vefur, www.mæna.is,
formlega sama dag.
Í tengslum við útgáfuna munu
útskriftarnemar á þriðja ári í
grafískri hönnun við Listaháskóla
Íslands kynna ritið og vefinn frá
kl.13.00-13.20 í Hafnarhúsinu í
fyrirlestraröð Hönn-
unarmars. Mark-
miðið með útgáf-
unni er að deila
með samfélaginu
þeirri þekkingu og
umræðu sem fram
fer á námsbrautinni
og skapa opinn vett-
vang fyrir upplýsta
og gagnrýna sam-
ræðu í greininni.
Vefnum er ætlað
að verða safn verka
þar sem grafísk
hönnun kemur við
sögu, verka þar sem
sjónrænum rökum
er beitt til miðlunar
með myndum og orðum. Útskrift-
arnemar Listaháskólans 2010 eru
hönnuðir beggja miðla, sem munu
verða endurhannaðir árlega af
útskriftarnemum hvers árs. - pbb
Mæna mætt á svæðið
HÖNNUN Kápa fyrsta heftis
ársrits um grafíska hönnun.
Hamskipti Norræna hússins verða 25. mars, á
fimmtudaginn í næstu viku. Þann dag verður það
kallað Suðræna húsið, enda er húsið allt lagt undir
dagskrá sem tengd er Hátíð franskrar tungu. Um
morguninn er boðið upp á sögustund frá Senegal
fyrir 6 til 8 ára krakka milli 9 og 10. Hin kunna
kvikmynd Rauða blaðran frá 1956, sem mörgum er
kunn frá útgáfu samnefndrar bókar sem hér kom út
1964, verður sýnd kl. 10.30 og er hún einkum ætluð
8-11 ára börnum.
Petrína Rós Karlsdóttir kynnir norður-afrískar
bókmenntir með fyrirlestri kl. 12 og Irma Erlings-
dóttir kynnir alsírska rithöfundinn Assia Djebar kl.
12.30.
Síðar um daginn verða sýndar tvær heimildar-
myndir, önnur um Yves Saint Laurent tískusnill-
ing, en hin um meistarakokkinn Michel Bras. Fyrri
sýningin er kl. 14 og sú síðari kl. 16.
Suðrænn blær í mýrinni
MENNING Assia Djebar er um þessar mundir talin einn helsti
höfundur Frakka þótt hún fjalli nær einvörðungu um samfélag
Norðurafríkumanna í sínum fjöbreyttu verkum.
Í mars ár hvert er þess
minnst víða um heim
hversu vítt franska mál-
svæðið er í raun og hvaða
gildi standa undir fransk-
ættaðri menningu um heim
allan.
Hér á landi hafa franska sendiráð-
ið og Alliance Francaise um nokk-
urra ára skeið staðið fyrir margs
konar samkomuhaldi í tengsl-
um við frönsku vikuna, rétt eins
og tíðkast í sjötíu löndum, en 200
milljónir manna eiga frönsku að
móðurmáli og 870 milljónir eru
sameinaðar í samtökum frönsku-
mælandi landa.
Raunar hófst Hátíð franskrar
tungu á fimmtudag með opnun
sýningar á ljósmyndum Öldu Lóu
Leifsdóttur frá Tógó á fimmtudag
í samkomusal Alliance í Tryggva-
götu. Þar verða samfara sýningu
á ljósmyndum Öldu Lóu sýningar
á þremur heimildarmyndum um
stöðu kvenna í Afríku. Menning í
fornum nýlendum Frakka er fyrir-
ferðarmikil á hátíðinni: þannig er
Haítí í brennidepli í aðalstöðvum
Borgarbókasafnsins við Tryggva-
götu í dag en þar verður klukkan
13.30 upplestur úr verkum haít-
ískra höfunda. þar er einnig uppi
málverkasýning á næfum verkum
Laviette Léonsois og að auki eru
þar kvikmyndasýningar tengdar
Haítí.
Landnám franskra gilda og
máls er bundið kennslu tungu-
málsins. Hér á landi hafa nemend-
ur í frönsku í framhaldsskólum att
kappi um kunnáttu sína í málinu, í
ár með frumsömdum verkum. Þá
mun á mánudag skreytt rúta fara
milli þeirra grunnskóla í Reykja-
vík sem halda úti frönskukennslu
og er börnunum boðið um borð. Á
þriðjudag kemur út safn afrískra
ljóðskálda sem yrkja á frönsku en
bindið heitir Trumbur og strengir
og er annað safn ljóðaþýðinga Þórs
Stefánssonar.
Norræna húsið skiptir um ham
og er fjallað um það sérstaklega
hér að neðan.
Samtökin sem standa að baki
þessu árlega menningarátaki voru
stofnuð 1970 og voru þar í forsvari
leiðtogar frá fyrrum nýlendum
frakka. Fimmtíu og sex ríki eru
fullgildir þátttakendur í þessu
menningarstarfi en fjórtán ríki
eiga setufulltrúa í stjórn samtak-
anna. Starfa samtökin í fjölmög-
um undirdeildum og hafa ekki síst
á stefnuskrá sinni að halda fram
hinum fornu borgaralegu gildum
franskrar menningar. Þess má svo
geta að á föstudag voru þeir Pétur
Gunnarsson rithöfundur og Torfi
Tulinius prófessor heiðraðir af
franska sendiherranum fyrir styrk
sinn við franska menningu á sínum
langa starfsferli hér á landi.
pbb@frettabladid.is
FRÖNSK MENNING HYLLT
MENNING Franskir hermenn í Reykjavík 2009 að taka út úr hraðbanka. Fyrstu kynni Íslendinga af franskri menningu voru af sjó,
þegar hingað komu bretónskir fiskimenn hvert vor til fiskjar. Ár hvert sækja boðberar franskrar menningar hingað en hátíðisdagur
franskrar tungu er í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Dagana 22. til 25. mars
Suðræna húsið
Með hækkandi sól horfir Norræna húsið suður á
bóginn og beinir sjónum að bókmenntum og
tungumáli fjögurra Suður-Evrópuþjóða og leitar auk
þess til Norður-Afríku. Fyrirlestrar, ljóðatónleikar,
kvikmyndir, upplestur og kúskús.
Síðasta sýningarhelgi
CON – TEXT: Sýning á norrænum bókverkum
25 norrænir listamenn sýna bókverk í sýningarsal
Norræna hússins. Leiðsögn verður um sýninguna
sunnudaginn 21. mars kl. 15:00. Sýningin stendur til
24. mars.
Alla daga frá 12-17
Sameiginlegt sameinast: Fatahönnunarsýning
Tveir fatahönnunarnemar frá Kolding, School of
Design í Danmörku, sýna endurhönnun á íslenska
faldbúningnum annars vegar og á grænlenskum
skinnjakka hinsvegar, auk annara verka.
Félagsfundur
Sjálfsbjörg félag fatlaðra á höfuðborgarsvæðinu,
heldur félagsfund þriðjudaginn 23. mars kl.19:00
í félagsheimilinu, Hátúni 12
Fundarefni:
Kosning á þing Sjálfsbjargar lsf
Þeir einir hafa kjörgengi og kosningarétt sem hafa
greitt félagsgjaldið fyrir árið 2009
Félagsmenn eru hvattir til að mæta á fundinn