Fréttablaðið - 20.03.2010, Blaðsíða 92
64 20. mars 2010 LAUGARDAGUR
utlit@frettabladid.is
DAÐRAÐ VIÐ TÍSKUNA
Anna Margrét Björnsson
> BJARTAR VONIR
Í kvöld verður tískusýning fatahönnunarnema í Lista-
háskóla Íslands sem eru að ljúka öðru ári. Hönnun
þeirra Alenku Pahor, Dainus Bendikas, Elísabetar Ölmu
Svendsen, Elsu Maríu Blöndal, Evu Brár Barkardóttur,
Gígju Ísisar, Guðmundar Jörundssonar, Guðrúnar Töru
Sveinsdóttur, Gyðu Sigfinnsdóttur,Halldóru Lísu Bjargar-
dóttur, Hjördísar Gestsdóttur, Jennýjar Höllu Lárusdótt-
ur, Mai Shirato, Signýjar Þórhallsdóttur og Sigríðar Maríu
Sigurjónsdóttur verður sýnd á Nasa klukkan 21.
Línan frá Miucciu Prada fyrir næsta haust og vetur var í senn kven-
leg og stelpuleg með áherslu á brjóst og mjaðmir. Eitthvað við klæðin
minnti á sjöunda áratuginn. Það, ásamt minipilsum og túberuðu hári,
svörtu og hvítu í bland við skæra liti eins og gult og grænt ásamt háls-
taui í anda Kubrick-myndanna, vakti upp skemmtilega retró-stemn-
ingu. Prada sjálf segist hafa búið til venjuleg föt í anda hönnun-
ar sinnar á tíunda áratugnum. Fyrirsæturnar sem Prada valdi
minntu óneitanlega á bombur eins og Brigitte Bardot og í fyrsta
sinn í langan tíma sjást þrýstnar stúlkur með barm á tískupöll-
unum. Með því besta í línunni voru pils með A-sniði, svartar
bróderaðar kápur og stuttir kasmírkjólar í pastellitum. - amb
FALLEG VETRARLÍNA FRÁ PRADA:
Sixtís áhrif ríkjandi
KVENLEGT Lillablár
bróderaður kjóll
með áherslu á
brjóst og mjaðmir.
BRÓDERAÐ Gullfalleg svört stutt kápa.
STUTT
Stutt pils voru í
fyrirrúmi á sýn-
ingunni ásamt
sixtís-hnútum og
skærum farða.
SYKURSÆTT Pastellitir við svartar þykkar sokkabuxur minntu
mikið á sjöunda áratuginn.
Fyrir nokkrum árum ritstýrði ég blaði um tíma sem nefndist Sirkus og
á forsíðu eins tölublaðsins stóð orðið Fíaskó stórum stöfum. Þar mund-
aði tískuflugan Diane Pernet símann sinn eins og skammbyssu og lýsti
því yfir að íslenska tískuvikan væri dauð. Hvílíkur skandall sagði hún
og fleiri tóku undir. Enn eina ferðina var einhver ónefnd manneskja
búin að skipuleggja einhvers konar tískuviku á Íslandi þar sem hönn-
uðir frá Austur-Evrópu sýndu á tískupöllum gerðum úr fiskikörum
eða vatnflöskum eða einhverju álíka smart. Einhvern veginn hélt ég
að eitthvað myndi gerast eftir þetta blessaða fíaskó þar sem útlenskir
blaðamenn voru orðlausir eftir hall-
ærislegustu tískuviku allra tíma.
En nei, þetta endurtók sig í fyrra og
bloggsíður erlendis loguðu af lýsing-
um af hrakförum fátækra tískuhönn-
uða og skelfilegra uppákoma. Nú var
íslenska tískuheiminum loksins nóg
boðið og ákveðið var að setja á lagg-
irnar raunverulega tískuviku sem
sýndi af fullri alvöru hvað Ísland
hefur fram að færa í fatahönnun.
Um helgina á sér stað hátíðin
Reykjavík Fashion Festival en undir-
búningur hennar hefur staðið yfir
undanfarna mánuði. Umgjörð hennar
er öll hin glæsilegasta, og fylgist að
með hönnunarmarsi. Þar að auki hefur flott tónlistarprógramm verið
sett saman um helgina og má með sanni ætla að það allrabesta verði
sýnilegt fyrir Íslendinga sem útlendinga sem hátíðina sækja.
Fatahönnun hefur blómstrað hér á landi undanfarin ár og það þarf
ekki annað en ganga niður Laugaveginn til að sjá gífurlegt úrval af
flottum rammíslenskum flíkum. Ég vona sannarlega að Reykjavík
Fashion Festival eigi eftir að verða árviss viðburður, vaxa og dafna
með hverju árinu og verða landinu til sóma.
Loksins alvöru tískuvika
… ilmvatnið Miss Dior Chérie frá Dior
ilmar eins og Parísarborg í flösku.
…geggjað nagla-
lakk í skærbleikum
fúksíulit mun laða
að þér athygli um
helgina.
OKKUR
LANGAR Í
…
…nýtt Lipglass gloss
frá Mac í fölum tóni
sem minnir á sixtís
skvísur eins
og Brigitte
Bardot.