Fréttablaðið - 20.03.2010, Page 94
66 20. mars 2010 LAUGARDAGUR
folk@frettabladid.is
„Þetta hefur aldrei verið haldið áður,“
segir Reynar Davíð Ottósson hjá Brim.
Verslunin heldur í dag, í samstarfi
við Element sem er eitt stærsta hjóla-
brettamerki í heimi, hjólabrettakeppn-
ina Make It Count, eða Láttu það skipta
máli. Þessi alþjóðlega keppni verður
haldin úti um allan heim á þessu ári og
er Ísland engin undantekning.
„Þetta er þeirra innlegg í að gefa til
baka í senuna. Þeir opna möguleika
fyrir nýja hjólabrettastráka til að geta
fengið styrk frá þeim. Sá sem vinnur
hér fer út og keppir og þar verður
fylgst vel með honum,“ segir Reynar
Davíð.
Aðalverðlaunin verða ferð á úrslita-
keppni Evrópu sem verður haldin í
Belgíu 29. maí.
Hér heima verður keppt í tveimur
flokkum, 13 ára og yngri og 14 ára og
eldri, og fer mótið fram í Reykjavík
Skatepark sem er í húsi við hliðina á
Loftkastalanum.
Fimmtíu fyrstu sem skrá sig fá Elem-
ent-stuttermabol auk þess sem allir fá
Element-límmiða. Plötusnúður á mót-
inu verður Addi Intro og rapparinn
Diddi Fel sér um að kynna herlegheitin.
Reynar býst við helling af áhorfendum
og þegar hafa á annað hundrað manns
boðað komu sína.
Skráning á mótið hefst klukkan 15 í
dag og hefst mótið klukkutíma síðar. - fb
Alþjóðleg hjólabrettakeppni í Reykjavík
HJÓLABRETTAKAPPI Hjólabrettakappi leikur list-
ir sínar í Reykjavík Skatepark. Stórt mót verður
haldið þar í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Opnunarhátíð Hönnunarmars 2010 var haldin í Hafnar-
húsinu á fimmtudag og var fjöldi góðra gesta viðstaddur.
Þetta er í annað sinn sem hátíðin er haldin. Fjöldi áhuga-
verðra viðburða er í boði á hátíðinni og ættu allir þeir sem
hafa áhuga á hönnun og arkitektúr að finna þar eitthvað
við sitt hæfi. Hátíðinni lýkur á morgun.
Hönnunarmars
í Hafnarhúsinu
NAFNAR Nafnarnir Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra og ljósmyndarinn Páll
Stefánsson. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
BROSMILDAR Hafdís Brandsdóttir,
Inga Elín og Ragnheiður Ingunn voru
brosmildar í Hafnarhúsinu.
TVÆR GÓÐAR Rithöfundurinn Steinunn
Jóhannesdóttir og listfræðingurinn G.
Erla voru mættar.
ÞRJÚ Í HAFNARHÚSINU Gréta Hlöðvers-
dóttir, Haukur Már Hauksson og Snæfríð
Þorsteinsdóttir voru á meðal gesta.
HJÁLMAR OG GUÐRÚN Hjálmar H.
Ragnarsson og Guðrún Margrét mættu
á opnunarhátíðina.
Ný heimildarmynd um popparann Michael Jackson verður frumsýnd
í næsta mánuði. Rithöfundurinn og kvikmyndagerðarmaðurinn Ian
Halperin ákvað að breyta bók sinni, Unmasked: The Final Years of
Michael Jackson, í 88 mínútna heimildarmynd og nefnist hún Gone
Too Soon.
Í myndinni verðar sýndar myndir sem voru teknar skömmu áður
en hann dó. Einnig verða í henni viðtöl við vini og samstarfsmenn
Jacksons. Fjölskylda popparans tók ekki þátt í gerð myndarinnar,
sem verður frumsýnd í Cannes í næsta mánuði. Stutt er síðan heim-
ildarmynd um undirbúning Jack-
sons fyrir tónleikaferð sína í
London var sýnd við góðar við-
tökur um heim allan. Skömmu
áður en tónleikaferðin hófst lést popp-
arinn úr hjartaáfalli vegna banvænnar
lyfjablöndu.
Ný mynd um Jacko
Lagið Bye Bye Troubles eftir Lay
Low, sem er lokalag kvikmyndar-
innar Kóngavegur í leikstjórn
Valdísar Óskarsdóttur, er komið
í spilun á útvarpsstöðvum. Lay
Low samdi tónlistina í myndinni
og henni til aðstoðar voru Pétur
Hallgrímsson, Björn Sigmundur
Ólafsson, Agnes Erna Estherar-
dóttir og Unnur Birna Björnsdótt-
ir. Kóngavegur verður frumsýnd
föstudaginn 26. mars. Hún gerist í
hjólhýsahverfi og segir
frá atburðum sem eiga
sér stað þegar Júní-
or snýr heim eftir
þriggja ára fjar-
veru. Á meðal
leikara eru
Björn Hlynur
Haraldsson,
Daniel Brühl
og Gísli Örn
Garðarsson.
Nýtt lag úr
Kóngavegi
MICHAEL JACKSON Ný
heimildarmynd um popparann
Michael Jackson er væntanleg.
> LAGÐI Í STÆÐI FATLAÐRA
Hin smávaxna Nicole Richie lagði í stæði
fyrir fatlaða þegar hún var á rúntinum í
Beverly Hills á dögunum. Vegfarendur
fylgdust hneykslaðir með þegar hún
stökk lipurlega út úr bílnum, aug-
ljóslega ófötluð. Nicole var heppin
að Ómar Ragnarsson var ekki nærri,
þar sem hann hefði vafalaust tekið
hana á teppið.
Smáratorgi 1, Kópavogi + Sími: 580-0000 + sala@a4.is + www.a4.is
Gleráreyrum 2, Akureyri + Sími: 580-0060 + akureyri@a4.is + www.a4.is
Fram að páskum stendur A4 fyrir
páskaföndurkeppni.
Þátttakendur föndra fallegt páskaföndur
sem þeir skila í verslun A4 á Smártorgi
eða Akureyri.
Vegleg verðlaun eru í boði auk þess sem
þáttakendur fá páskaegg númer 3 frá
Nóa Síríus fyrir að taka þátt.
Skila þarf föndrinu inn fyrir 26. mars nk.
Sjá nánar á www.a4.is
Hjá A4 er hægt að KEPPA í páskaföndri