Fréttablaðið - 20.03.2010, Page 102

Fréttablaðið - 20.03.2010, Page 102
74 20. mars 2010 LAUGARDAGUR „Það er gott fyrir hann að fá frí. Hann er að koma sér fyrir hjá nýjum klúbbi og er að reyna að vinna sig inn. Hann fær plús í kladdann frá klúbbnum líka,“ sagði líklega skilningsríkasti landsliðsþjálfari heims, Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari Íslands, aðspurður um af hverju Eiður Smári Guðjohnsen væri ekki í landsliðshópnum sem mætti Kýpur á dögunum. Það er líklega leitun að öðrum landsliðsþjálfara í heiminum sem er til í að segja já og amen við öllum bónum stjörnunnar sinnar. Maður sér ekki stjörnur annarra landsliða fá slíka kóngameðferð sem Eiður Smári fær frá Ólafi. Þetta var í þriðja skiptið sem Ólafur gefur Eiði frí frá vináttu- landsleikjum og alltaf af sömu ástæðu – svo Eiður fái plús í kladd- ann hjá félaginu sínu og fái þar af leiðandi að spila meira. Eins og Eiður sé eini leikmaður lands- liðsins sem hefur lent í því að þurfa að sitja á bekknum hjá félagsliði sínu. Í fyrstu tvö skiptin var Eiður að spila með Bar- celona. Fríin góðu skil- uðu honum engu þá. Hann spilaði í 18 og síðan 32 mín- útur í leikjunum sem komu beint eftir fríið. Nú síðast spilaði hann ekki eina mínútu með Tottenham í leiknum eftir Kýpurleikinn. Plús- inn í kladdann alls ekki að skila sér. Í leiknum þar á eftir spilaði hann rétt í lok leiksins. Ég gekk á landsliðsþjálfar- ann fyrir Kýpurleikinn og spurði af hverju Eiður fengi þessi sér- meðferð. Sérstaklega í ljósi þess að fríin hefðu ekki skilað honum neinu hingað til. Ólafur brást hinn versti við spurningunni. „Ég nenni ekkert að diskútera það. Það kemur málinu ekkert við. Ákvörðun var tekin. Hann fékk frí, búið. Ég tel mig ekkert þurfa að útskýra það betur,“ sagði Ólafur pirraður en hann hefur því miður ekki eins mikinn skilning á gagnrýnum spurningum blaða- manna og á séróskum stjörnunnar sinnar. Það hvernig Eiður nýtti þennan frípassa að þessu sinni sýnir svo ekki verður um villst að hann er með þjálfarann algjörlega í vas- anum og er í raun að gera grín að honum. Á landsleikjadaginn sjálfan var Eiður nefnilega kominn til Íslands í frí. Sást meðal annars til hans um kvöldið á hótelbar með vínglas um hönd. Á sama tíma voru liðs- félagar hans í landsliðinu að svitna á Kýpur. Eiður tók síðan morg- unflug heim til London og mætti á æfingu um hádegisleytið hjá Tot- tenham, að því er talsmaður hans segir. Maður sem er að berjast fyrir lífi sínu hjá félagi og vill ganga í augun á stjóran- um sínum undirbýr sig ekk i fyrir æfingar með því að fara til Íslands, lyfta sér upp, fljúga til London morgun- inn eftir og mæta beint á æfingu. Það getur aldrei talist heilbrigður undirbúningur fyrir æfingu. Ef Eiður á annað borð nennti að standa í þessum ferðalögum þá ætti hann að hafa nennt til Kýpur. Kannski nennir hann ekki að spila fyrir landsliðið lengur – nema þegar það hentar honum. Ef Eiður nennir ekki að spila fyrir landslið- ið þá á hann bara að koma hreint fram og segja það. Ekki vera með einhvern skrípaleik. Þegar það hentar honum að spila fyrir landsliðið næst má hann í það minnsta vera öruggur um að landsliðsþjálfar- inn bíður með opinn faðminn. Landsliðsþjálfar- inn sem heldur því stöðugt fram hvað æfinga- leikir skipta miklu máli. Samt virðist vera í lagi að spila þá leiki án stjörnu liðsins sem leikur liðs- ins á að snú- ast um. Það er afar lítið vit í því. Eiður Smári er með lands- liðsþjálfarann í vasanum FÓTBOLTI Stórleikur helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni er án nokk- urs vafa slagur erkifjendanna Manchester United og Liverpool klukkan 13.30 á sunnudaginn. United er með fimmtán stigum meira og liðin eru ekki að keppa um titilinn eins og í fyrra en það breytir ekki því að leikir liðanna eru einn af hápunktum tíma- bilsins í ensku úrvalsdeildinni. Manchester United er í magnaðri baráttu við Chelsea og Arsenal um enska meistaratitilinn á sama tíma og Liverpool keppir við Tot- tenham, Manchester City og Aston Villa um fjórða sætið sem er það síðasta sem gefur sæti í Meistara- deildinni. Manchester United er á mik- illi siglingu þessar vikurnar með Wayne Rooney í fararbroddi en United er búið að vinna síðustu fimm leiki sína í öllum keppnum, með markatöluna 13-1. Wayne Rooney hefur verið gjörsamlega óstöðvandi síðasta mánuðinn en hann hefur skorað alls níu mörk og gert fjórar tvennur í síðustu sex leikjum sínum. Það er líka kannski kominn tími á mark hjá honum á móti Liverpool en Roon- ey hefur aðeins skorað 1 mark í 14 leikjum með United á móti Liverpool. Gott fyrir sjálfstraustið að vera á toppnum „Við lítum á leikinn á sunnudag- inn sem hluta af leið okkar að öðrum meistaratitli. Liðið hefur bætt spilamennskuna á síðustu vikum og það er mjög gott fyrir sjálfstraust liðsins að vera í topp- sætinu á þessum tímapunkti,“ sagði Alex Ferguson, stjóri Unit- ed. „Það bjuggust allir við að Liverpool stæði sig betur en liðið er að keppa um fjórða sætið við nokkur lið og það er ekki síðri barátta en sú um meistaratitil- inn,“ sagði Ferguson. Ef það er eitthvert lið sem Unit- ed hefur átt í vandræðum með það þá eru það erkifjendurnir í Liver- pool sem hafa unnið þrjá síðustu leiki liðanna. Það er nákvæmlega ár síðan Liverpool vann óvæntan 4-1 stór- sigur á Manchester United á Old Trafford þegar liðin voru í hörku- baráttu um enska meistaratitilinn. Þetta var aðeins fjórði sigur liðs- ins á Old Trafford í 17 leikjum frá árinu 1992. Cristiano Ronaldo kom United yfir með marki úr víti en mörk frá Fernando Torres, Steven Gerrard, Fabio Aurelio og Andrea Dossena tryggðu Liverpool eftirminnileg- an sigur. Það fór þó samt svo að Manchester United vann sinn 18. meistaratitil um vorið og jafnaði þar með met Liverpool. Liverpool vann einnig fyrri leik- inn á móti United á síðasta tíma- bili og fylgdi stórsigrinum fyrir ári síðan eftir með því að vinna 2-0 sigur á United í fyrri leik lið- anna á Anfield. Fernando Torres og David Ngog skoruðu mörkin í þriðja sigri Liverpool í röð á móti Manchester United. Liverpool vaknað til lífsins Eftir dapra viku á undan þar sem liðið skoraði ekki mark og tapaði fyrir Wigan og Lille hefur Liver- pool unnið tvo síðustu leiki sína (á móti Portsmouth og Lille) með markatölunni 7-1. Þar hefur munað miklu um það að Spánverjinn Fernando Torres er búinn að finna formið eftir meiðsli en hann var með 3 mörk og 2 stoðsendingar í þessum tveimur sigrum. Javier Mascherano fagnar því að Liverpool getur teflt þeim Steven Gerrard og Fernando Torres fram að nýju. „Það vita allir að þeir ná vel saman og nú getum við hlakkað til þessa mikilvæga leiks á sunnudaginn. Við ætlum að reyna að vinna fyrir okkur, stuðningsmennina og félagið,“ sagði Mascherano og bætti við: „Við vitum að okkar bíður mjög erfiður leikur því þeir eru að spila mjög vel þessa dagana. Þetta er samt öðruvísi leikir en allir því þetta er derby-slagur,“ sagði Javier Mascherano. ooj@frettabladid.is Stund hefndarinnar á Old Trafford Manchester United fær Liverpool í heimsókn á sunnudaginn ári eftir að Liverpool vann þar 4-1 sigur en heimamenn í United hafa tapað þremur leikjum í röð á móti erkifjendum sínum í Liverpool. STÓR SKELLUR Liverpool vann 4-1 sigur á Manchester United á Old Trafford í fyrra. Hér fagnar Fabio Aurelio þriðja markinu með Steven Gerrard. MYND/GETTY IMAGES FÓTBOLTI Enski landsliðsframherj- inn Jermain Defoe spilar ekki með Tottenham Hotspur næstu vikurnar vegna meiðsla. Þetta er mikið áfall fyrir Spurs enda hefur Defoe verið einn af bestu mönnum liðsins sem er í harðri baráttu um fjórða sæti deildarinnar. Harry Redknapp, stjóri Spurs, hefur þó ekki of miklar áhyggj- ur af málunum enda eigi hann marga aðra góða leikmenn. „Við höfum vissulega verið óheppnir með meiðsli en við eigum Peter Crouch, Roman Pavlyuchenko og Eið Smára til taks í sókninni. Við erum í góðum málum þar en það eru meiri meiðslavandræði í öðrum stöðum,“ sagði Redknapp. - hbg Hagur Eiðs Smára vænkast: Defoe frá næstu vikurnar FÓTBOLTI Sir Alex Ferguson, stjóri Man. Utd, er allt annað en sáttur við aganefnd enska knattspyrnu- sambandsins sem hann segir vera óstarfhæfa. Ferguson reiddist mjög þegar agefndin dæmdi Rio Ferdinand, leikmann Man. Utd, í fjögurra leikja bann fyrir ruddaskap gegn Craig Fagan, leikmanni Hull. Steven Gerrard hefur að sama skapi sloppið í tvígang vegna hegðunar sem verður seint talin til eftirbreytni. Fyrst sendi Gerrard dómara dónalegt merki með puttunum og síðan lamdi hann Michael Brown með olnboganum í höfuðið. „Það er ekkert samræmi hjá aganefndinni. Að þeir skyldu ekki taka á máli Gerrards kom mér ekki á óvart. Þetta er óstarf- hæfur hópur og ég veit ekki hvað hann er eiginlega að gera,“ sagði Ferguson. - hbg Ferguson ekki sáttur: Aganefndin er í tómu rugli ÓSÁTTUR Sir Alex klappar ekki fyrir enska knattspyrnusambandinu þessa dagana. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES LEIKIR HELGARINNAR Laugardagur: Arsenal - West Ham Aston Villa - Wolves Everton - Bolton Portsmouth - Hull City Stoke - Tottenham Sunderland - Birmingham Wigan - Burnley Sunnudagur: Blackburn - Chelsea Fulham - Man. City Man. Utd - Liverpool UTAN VALLAR Henry Birgir Gunnarsson segir sína skoðun
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.