Fréttablaðið - 31.03.2010, Blaðsíða 67
MIÐVIKUDAGUR 31. mars 2010 51
KÖRFUBOLTI Þriðji leikur KR og
Hamars í lokaúrslitum Iceland
Express-deildar kvenna fer fram
í DHL-höllinni í kvöld en staðan er
1-1 eftir að bæði lið höfðu unnið á
útivöllum í fyrstu leikjunum.
Lokaúrslitin byrjuðu alveg eins
í fyrra en þá vann KR fyrsta leik-
inn á útivelli en Haukar svöruðu
með sigri í DHL-höllinni. Það voru
síðan Haukar sem unnu þriðja
leikinn og unnu að lokum titilinn
í oddaleik. Mikilvægi leiksins í
kvöld er mikið því í öll skiptin sem
staðan hefur verið 1-1 í lokaúrslit-
um kvenna þá hefur sigurvegari
þriðja leiksins unnið titilinn.
Hildur Sigurðardóttir, fyrirliði
og leikstjórnandi KR, jafnaði frá-
kastametið í lokaúrslitum kvenna
með því að taka 19 fráköst í öðrum
leiknum í Hveragerði á mánudags-
kvöldið en KR-liðið vann fráköstin
50-34 og tók meðal annars 26 af 41
frákasti í boði undir körfu Hamar-
sliðsins í leiknum.
KR-liðið tapaði frákastabar-
áttunni illa í fyrsta leiknum sem
Hamar vann og Hildur tók 17
fleiri fráköst í leiknum á mánu-
dagskvöldið en hún gerði í fyrsta
leiknum á föstudaginn. Hildur tók
7 fráköst strax í fyrsta leikhluta
og 9 af fráköstum hennar í leikn-
um voru sóknarfráköst. Hildur er
leikstjórnandi og langt frá því að
vera með hæstu leikmönnum.
Hildur á nú metið með Heather
Corby sem tók 19 fráköst fyrir KR
í fyrsta leiknum á móti Keflavík
26. mars 2001. Hildur bætti hins
vegar met Íslendings um eitt frá-
kast en það áttu þær Anna María
Sveinsdóttir og Þórunn Bjarna-
dóttir saman. - óój
Þriðji leikur KR og Hamars í lokaúrslitum Iceland Express-deildar kvenna í kvöld:
Hildur jafnaði frákastametið
19 FRÁKÖST Hildur Sigurðardóttir lét til sín taka í frákastabaráttunni í leik tvö á móti
Hamri. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
SUND Hrafnhildur Lúthersdótt-
ir, sundkona úr SH í Hafnarfirði,
náði góðum árangri á páskamóti
SH sem var haldið í Ásvallalaug
um helgina. Hrafnhildur var ein
af 180 þátttakendum á mótinu og
náði besta árangri mótsins þegar
hún tryggði sér farseðilinn á HM
í Dúbaí í desember með flottu 100
metra bringusundi.
Hrafnhildur synti vel undir
lágmörkunum á HM með því að
synda 100 metra bringusund á
tímanum 1 mínútu og 9,06 sek-
úndum. Hrafnhildur fer því til
Dúbaí í desember til þess að
keppa á heimsmeistaramótinu í
25 m laug en lágmark Sundsam-
bandsins fyrir 100 m bringusund
er 1.09,70. - óój
Hrafnhildur Lúthersdóttir í SH:
Fer til Dúbaí í
desember
Í GÓÐUM GÍR Hrafnhildur Lúthersdóttir,
sundkona úr SH. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FÓTBOLTI Fyrsti súpufundur KSÍ
sló í gegn á dögunum og nú er
komið að súpufundi númer tvö
sem verður haldinn fimmtu-
daginn 8. apríl. Yfir 90 manns
mættu á fyrsta fundinn en á þess-
um fundum er boðið upp á 30
mínútna fyrirlestur og svör við
spurningum.
„Að þessu sinni mun fyrir-
lesari á vegum SÁÁ koma og
flytja erindi um spilafíkn og það
hvernig þjálfarar og aðrir innan
knattspyrnuhreyfingarinnar
geti greint einkenni spilafíknar
og hvert eigi að snúa sér í þeim
málum. Fjárhættuspil leikmanna
allt frá meistaraflokki og niður í
yngri flokka hefur aukist mikið
undanfarin ár og nú er svo komið
að spilafíkn er vaxandi vandamál
innan íþróttahreyfingarinnar,“
segir í frétt á ksi.is. - óój
Annar súpufundur KSÍ:
Taka fyrir spila-
fíkn leikmanna
EX
PO
·
w
w
w
.e
xp
o
.is
BSÍ - Umferðarmiðstöðin / 101 Reykjavík / 580 5400 / main@re.is / www.re.is
Komdu með!
Þúsundir ferðalanga hafa lagt lykkju á leið sína til að skoða gosið á Fimmvörðuhálsi frá ýmsum sjónarhornum.
Það sem blasir við er stórkostlegt sjónarspil náttúruaflanna, þar sem eldur og ís heyja baráttu um yfirráð.
Kynnisferðir bjóða sætaferðir í Þórsmörk um páskana (1. - 5. apríl 2010) til að fá enn eitt sjónarhorn á
gosið og upplifa krafta íslenskrar náttúru. Gönguleiðin upp á Valahnúk frá Húsadal er nokkuð brött, en
stígur liggur upp á toppinn og þar er útsýnisskífa með nöfnum allra sjáanlegra fjalla.
Frá Valahnúk er útsýni til gosstöðvanna vægast sagt stórkostlegt.
Farfuglar bjóða gistingu og annað viðurværi í Húsadal,
Ferðafélag Íslands í Langadal og Ferðafélagið Útivist í Básum.
Verið vel klædd og munið eftir myndavél og sjónauka!
ÞÚ KEMST
ÞANGAÐ
MEÐ OKKUR!
NJÓTTU ÞESS AÐ FERÐAST Á EINFALDAN HÁTT
Ferðaskrifstofa
Leyfishafi
Ferðamálastofu
Reykjavík-Þórsmörk (önnur leiðin) kr. 5100
Hvolsvöllur/Seljalandsfoss-Þórsmörk
(önnur leiðin) kr. 2000
Börn 0 - 11 ára ferðast frítt.
Börn 12 - 15 ára borga hálft fargjald.
Verð á mann:
Frá
Reykjavík
Hveragerði
Selfoss
Hella
Hvolsvöllur
Seljalandsfoss
Þórsmörk Húsad.
Daglega
08:30
09:10
09:25
09:50
10:15
10:45
11:45
Daglega
16:00
16:40
17:00
17:30
17:50
18:10
19:10
Frá
Þórsmörk Húsad.
Seljalandsfoss
Hvolsvöllur
Hella
Selfoss
Hveragerði
Reykjavík
Daglega
08:30
09:30
10:10
10:20
10:50
11:00
11:45
Daglega
16:00
17:00
17:50
18:00
18:30
18:40
19:20
Frá
Húsadalur
Langidalur
Básar
Langidalur
Húsadalur
Daglega
-
07:30*
08.00*
-
-
Daglega
13:00
13:30
13:40 / 15:00
15:10 / 15:20
15:45 /16:00
Páskaáætlunin er sem hér segir: Leið 9 - 9a
*Þarf að bóka hjá skálaverði fyrir kl: 21:00 daginn fyrir brottför
Bókaðu núna á www.re.isBókaðu núna í síma 580 5450