Fréttablaðið - 15.05.2010, Page 61
FERÐALÖG 7
BORG SEM BREYTTI UM NAFN St. Pétursborg er nefnd eftir
Pétri postula en ekki Pétri mikla sem þó byggði upp borgina.
Árið 1914 fékk borgin nafnið Petrograd og tíu árum síðar var
hún nefnd í höfuðið á Lenín, Leníngrad. Hún endurheimti ekki
sitt fyrra nafn, St. Pétursborg, fyrr en árið 1991. Pétursborg hef-
ur fengið mörg viðurnefni, þar á meðal „Feneyjar norðursins“
vegna hins mikla fjölda síkja í borginni, „Palmyra norðursins“
og að síðustu „höfuðborg Norður-Rússlands.“
umsátrið er ríkti hér í um 900
daga, frá 1941-1944. Þá var borg-
inni lokað af nasistum og ætlunin
var að eyða henni af kortinu. 3,2
milljónir manna bjuggu hér þá, en
ekki nema 560 þúsund urðu eftir
er umsátrinu lauk. Flestir létust af
hungri og í stríðsátökum.
Borgin er alveg einstök og feg-
urðin er í smáatriðunum. Sagan er
stórmerkileg allt frá dögum keisar-
anna sem byggðu stórvirki á borð
við Vetrarhöllina. Það var einstakt
að geta heimsótt þessa ævintýra-
legu borg sem ég vona að eigi eftir
að opnast meira í framtíðinni, enda
er algjör synd að fleiri fái ekki að
njóta þess sem hún hefur upp á að
bjóða.
N RÍKTI
Valdís Thor ljósmyndari er
Kona kaupir blómvönd Blómasalar eru
algengir á götum borgarinnar.