Fréttablaðið - 22.05.2010, Qupperneq 38
6 matur
Þeir sem hafa einhvern tím-a n n prófað
grillaða ávexti vita
að glóðarsteiking
dregur fram sæta
bragðið í ávöxtunum, þetta kara-
mellubragð sem er svo ljúffengt.
Þess vegna eru þeir auðvitað alveg
tilvaldir á grillið,“ segir Sigurrós
og tekur fram að suma ávexti sé þó
heppilegra að grilla en aðra.
„Mikilvægt er að velja stóra
ávexti sem eru alls ekki of þrosk-
aðir og grilla stutt, bara rétt yfir-
borðið til að mýkja ávextina upp og
koma í veg fyrir að safinn leki úr
þeim. Mangó, ananas, ferskjur og
plómur koma sterkt inn,“ útskýr-
ir Sigurrós og segir plómur í sér-
stöku uppáhaldi.
„Ég fékk af einhverjum ástæð-
um algjört æði fyrir plómum á
síðustu metrunum á seinni með-
göngunni minni; þær eru bara svo
sætar og safaríkar og sérstaklega
á þessum árstíma“ segir Sigurrós
upp, sem finnst gott að grilla plóm-
ur og bera fram með hindberja-
sósu. „Hindberin eru örlítið súr og
vega vel upp á móti sæta bragðinu
af plómunum. Svo lítur þetta svo
vel út á disk, rauði eða réttara sagt
bleiki litur hindberjasósunnar og
fjólublái litur plómnanna og gul-
leitt innihaldið.“
Sigurrós segist reyna að hafa
hollustuna að leiðarljósi í sinni
matseld og bregður ekki út af vana
með eftirréttinn. „Sem dæmi nota
ég í hrásykur í sósuna,“ segir hún
en viðurkennir að
eins sé rosa gott
að bæta út í
hann púður-
sykri. - rve
Glóðarsteiktar
PLÓMUR
Sigurrós er
yfirkokkur hjá
Manni lifandi og
segist hafa
sérstaka ánægju
af því að útbúa
rétti úr ávöxtum
og grænmeti.
2 ¼ bolli hindber,frosin
3 msk. vatn
3 msk. hrásykur
1 msk. sítrónusafi
3 msk. kókosolía(eða
smjör)
2-3 msk. hrásykur(eða
púðursykur)
6 stórar plómur
Búið til hindberjasós-
una: Maukið hindber
með vatni. Sigtið þau
og hendið fræjunum.
Bræðið saman sykurinn
og örlítið vatn, passið að
sjóði ekki, kælið örlítið
niður og blandið saman
við hindberin. Hægt er
að búa sósuna til daginn
áður.
PLÓMURNAR
Bræðið saman olí-
una(smjörið) og syk-
urinn þar til blandast
vel saman og verður
að þykkri karamellu (ef
blandan er of þunn setj-
ið þá meiri sykur). Einnig
er hægt að bæta bragði
við karamelluna eins og
kanil, vanillu eða jafnvel
súkkulaði.
Smyrjið plómurnar og
grillið við háan hita í um
8 mínútur snúið þeim við
einu sinni þannig að það
komi fallegar grillrendur
í sárið.
Gott er að bera fram með
vanilluís og skreytið með
ferskum hindberjum.
Grillaðir ávextir eru sætir og ljúffengir enda vinsælir eftirréttir. Sig-
urrós Pálsdóttir veit allt um það og segir grillaðar plómur með hind-
berjasósu hreinasta lostæti.
GLÓÐARSTEIKTAR PLÓMUR MEÐ HINDBERJASÓSU
Fyrir 6
Sigurrós segir mikilvægt að
velja stóra ávexti og gæta
þess að hafa þá ekki þroskaða.
Sætar og saðsamar. Sigurrós
mælir með safaríkum plómum
á grillið og getur þess að
hindberjasósa sé góð með.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
N
TO
N
Nammi
namm!
E