Fréttablaðið - 22.05.2010, Page 40
22. maí 2
SUNDFÖT
Bikiní og sundbolir voru meðal þess
sem hönnuðir sýndu á tískuvikunni í
Mílanó síðasta haust.
Indjánamynstur voru áberandi á sund-
fatasýningu Miss Bikini Luxe fyrir sum-
arið. Sundbolir úr línunni voru efnislitlir og
opnir í hliðum og brjóstaskorunni leyft
að njóta sín.
Fallegt bik-
iní frá Blug-
irl vakti einn-
ig athygli en
það var alsett
blómum auk
þess sem fal-
leg blómahett-
an setti punkt-
inn yfir
i-ið.
Blóm og
indjánar
Sundbolir frá Miss Bikini Luxe voru ekki beint klæðamiklir. Blómahetta
og bikiní frá
Blugirl.
Sundkonan Anette Kellerman frá Ástralíu
er talin vera fyrsta sundrottning veraldar
en Kellerman ferðast um og vakti mikla
athygli í Bandaríkjunum fyrir ýmiss konar
vatnadansa þar sem hún kafaði og sýndi
listdans sem hægt var að horfa á í gegn-
um gler. Hún jafnvel borðaði og las undir
yfirborðinu. Á sýningum sínum klædd-
ist Kellerman sundfötum sem sýndu
hendur, fætur og háls en það olli upp-
þoti þegar sundkonan mætti í æfinga-
gallanum á baðströnd í Boston árið 1907
og var hún handtekin fyrir ósiðlega fram-
komu. Er jafnframt talið að Kellerman
hafi þarna verið fyrst kvenna til að mæta
í slíkum sundfötum á almannafæri.
Anette var ólík öðrum konum á þeim
tíma sem hún lifði, mun stæltari og betur
á sig komin líkamlega en konur þess
tíma. Frægð hennar barst víða og hún
lék í kvikmyndum og skemmti með fólki
eins og Chaplin, Önnu Pavlovu og Maur-
ice Chevalier. - jma
Sunddrottning handtekin á strönd
SUNDKONAN ANETTE KELLERMAN VAR TEKIN FÖST FYRIR ÓSIÐLEGT FRAMFERÐI
ÞEGAR HÚN MÆTTI Í SUNDFÖTUM Á STRÖND Í BANDARÍKJUNUM ÁRIÐ 1907.
Sundfötin sem Anette klæddist þegar
hún var handtekin líktust þessum.
Hún greip til þess ráðs í framhaldinu
að sauma ermar og skálmar á bún-
inginn til að fá að vera í friði.
N
O
R
ID
C
PH
O
TO
S/A
FP
Tvær fyrirsætur í
sundfötum frá Miss
Bikini Luxe.
Indjánamynstur voru áberandi
á sundfötum Miss Bikini Luxe.
BRIGITTE BARDOT er jafnan talin vera sú sem kom
bikiníinu á kortið. Árið 1953 hneykslaði hún í senn og vakti
aðdáun þegar hún sýndi sig á bikiníi á baðströnd þegar
kvikmyndahátíðin í Cannes stóð yfir, þá aðeins 19 ára.
Bikiníið kom fram á sjónarsviðið árið 1946. Það var nefnt eftir lítilli eyju
í Kyrrahafi sem heitir Bikini en þar höfðu Bandaríkjamenn gert tilraunir
með kjarnorkusprengingar. Franski hönnuðurinn Louis Rénard, sem
hannað hafði sundfatnað í 25 ár, kom fram með þessa nýjung
Tíska aldanna.